Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.2003, Blaðsíða 107

Frjáls verslun - 01.01.2003, Blaðsíða 107
LUNDUNAPISTILL SIGRÚNAR Baráttan um Safeway að breytast í trylli Baráttan um Safeway er að breytast í hinn mesta trylli, því að auk þess sem stóru keðjurnar Tesco og Sainsbury takast á um tapþrungið Safeway er stærsta verslanakeðja í heimi með í baráttunni. Wal-Mart á þegar lágverðskeðjuna Asda, sem stefnir á Safeway. Marga Breta hryllir við tilhugsuninni um meiri Wal- ÍMart umsvif hér, bæði vegna stærðarinnar - keðjan selur árlega fyrir 125 milljarða punda og á 4 þúsund búðir víða um heim - en líka vegna slæms orðstírs hennar í aðbúnaði og launum starfsfólks, auk ásakana um að nota þriðjaheims verk- smiðjur með hörmulegum kjörum til að pína verðið niður. Á bak við þá sex aðila sem beijast um Safeway eru tuttugu bankar, sem hugsa sér gott til glóðarinnar þar sem samruna- og kaupsamningum fækkaði um þriðjung í City í fyrra. Eini stóri bankinn, sem ekki er með er Morgan Stanley, sem í fyrra var reyndar á toppnum hvað varðar ráðgjöf í yfirtökum. Þegar Green kom til sögunnar lét Tesco Merril Lynch róa sem sinn ráðgjafa, því að bankinn var handgenginn Green í Arcadiu-kaupunum, þai' sem Baugur kom við sögu. Allir hafa áhuga á Baugi Markaðsrýnar hér hafa einmitt augun á Baugi, því þeir eru búnir að sjá ákveðið mynstur í kaupum Baugs hér: Þar sem Baugur ber niður dregur innan skamms til kauptíðinda. Þess vegna spá menn nú í hvað gerist með Sommerfield-kjörbúðakeðjuna, sem Baugur bauð í um jólin. Miðað við uppruna Baugs eru verslanakaup rökrétt framhald fyrirtækis sem fetar sig af litlum markaði með tak- markaða vaxtarmöguleika yfir á stóran markað með himin- ^ víða möguleika. En kannski hafa Baugsmenn lært af Green: Greet er einn af auðugustu mönnum Bretaveldis, býr að mestu í Mónakó og hélt upp á sextugsafmælið með „The Great Gatsby“ stæl. í hug að fara í Iceland. Þegar ég stend á verslunargötu með röð kjörbúða fyrir augunum dytti mér síðast í hug að versla í Iceland, ekki bara út af nafninu, heldur af því að mér þykja búðirnar einstaklega óspennandi. Hvað gerlr Baugur við lceland-búðirnar? Baugur á ógnarverk fyrir höndum og spurning hvort Baugsmenn, með 19,35% hlut sinn í Big Food Group, sem á Iceland og Booker búðirnar, velji Green-leiðina, einbeiti sér að því að búta keðjuna niður og selja hinar 759 Iceland-búðir. Stórar keðjur eins og Asda, Tesco og Sainsbury væru örugglega meira en fúsir kaupendur. Markaðsrýnar hér geta sér til að hvað sem Baugur hefur í huga muni þeir steíha að því síðar á árinu að kaupa Big Food Group eins og það leggur sig. Gengið á Iceland er í botni, 64% markaðsverðsins hafa gufað upp á einu ári, þrátt fyrir víðáttumikil tílboð sem dembt hefur verið yfir viðskiptavinina þar. Jólasalan var ekki góð. Hvað sér Baugur við Sommerfield? En hvað ætlar Baugur sér með Sommerfield? Hér er því spáð að þeir leiki Arcadiu- leikinn, bíði eftir að tjárfestar kaupi Sommerfield, sem hefur tapað ört undanfarin misseri, og selji í pörtum, sem væri býsna ábatavænlegt. Markaðsrýnum þykir ekki sennilegt að Baugur ætli sér að nota Sommerfield til að auka í Big Food Group. Grimsey er framkvæmdastjóri Það er ekki ein báran stök með Icelandnafnið. Framkvæmdastjóri Big Food Group heitir... Bill Grimsey! Hann dró nýlega að sér ijölmiðlaathygli, þegar hann útilokaði markaðsrýninn Paul Smiddy írá fundi um afkomu fyrirtækisins því að hann var ósáttur við skrif hans. Smiddy hafði bent á að verð hlutabréfa í keðjunni ættu að vera 20% undir skráðu verði. Grimsey sagði hann fara rangt með staðreyndir. En hann var kannski líka ósáttur við að í haust skrifaði Smiddy í skýrslu sinni að Big Food Group, sem veittí ekki af að spara, notaði 400 þúsund pund á ári í að reka einkaþotu. Grimsey segir þetta ranga tölu. Kostnaðurinn sé aðeins 250 þúsund pund. Smiddy yppti bara öxlum En í huga Smiddy snýst þetta ekki um pund og pens heldur sýni að Big Food Group hugsi eins og stórfyrirtæki án þess að vera það. En hvað sagði Smiddy um að komast ekki á fundinn? Hann ypptí bara öxlum og sagði: „Það þarf nú ekki annað en að virða fyrir sér hvers konar fyrirtæki hafa áður gripið til svona ráða.“ 35 Nota verslanaumsvif aðeins til að ávaxta sitt pund, leggja áhersluna á fasteignahlutann og kaupa því til að selja seinna. Iceland búðarkeðjan Það er óneitanlega undarlegt fyrir íslendinga að sjá Iceland sem heiti á búðarkeðju og Iceland.co.uk sem vefsíðu. Nafnið þótti snjallt þegar keðjan hóf rekstur því áherslan var á frosinn mat. í búðunum voru rekkar frystiskápa og allt gekk út á lágt verð. Þannig er það enn þó að ferskmeti hafi bæst við og búðirnar líkist nú meira venjulegum kjörbúðum. Um tíma reyndi keðjan að keppa við keðjur eins og Tesco og Sainsbury, sem slógu sér upp á lífrænum mat, en sú tilraun tókst ekki. Þeir sem leita lága verðsins höfðu engan áhuga að fara að kaupa dýrari mat og þeir sem leita gæðanna datt ekki Baugur á ógnarverk fyrir höndum og spurning hvort þeir Baugsmenn, með 19,35% hlut sinn í Big Food Group, sem á lceland og Booker búðirnar, velji Green-leiðina, ein- beiti sér að því að búta keðjuna niður. Mjög er núna fylgst með því sem Jón flsgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, er að sýsla í Bretlandi. Fjölmiðlarnir meta stöðuna svona: Þar sem Baugur ber niður dregur innan skamms til kauptíðinda. 107
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.