Frjáls verslun - 01.01.2003, Blaðsíða 100
Síminn:
Streymisþjónusta Símans
Sœvar Freyr Þráinsson, forstöðumaður á gagnasviði Símans.
Síminn hefur um nokkurt skeið rekið streymis-
þjónustu sem gerir mögulegt að senda hljóð og mynd
út á Internetinu. Eftirspurn eftir þessari þjónustu
hefur aukist í takt við það að sífellt fleiri hafa
aðgang að Internetinu um ADSL eða breiðband.
Eftír Vigdísi Stefánsdóttur Mynd: Geir Olafsson
nýlega að bjóða viðskiptavinum sínum að
leigja sérhannaðan búnað sem hægt er að
nýta til að senda beint út frá ráðstefnum og
fundum. Að sögn Sævars Freys henta
beinar útsendingar mjög vel þegar haldin
eru málþing, aðalfundir og aðrir fundir sem
vekja athygli og mikil aðsókn er að. Þeir
sem ekki sjá sér fært að vera á staðnum geta
fylgst með öllu saman á Netinu og hafa
þannig sömu upplýsingar og þeir sem eru á
staðnum. „Fjölmörg fyrirtæki hafa sýnt
þessari þjónustu áhuga í sambandi við aðal-
fundi og árshlutauppgjör, enda er sífellt
verið að gera meiri kröfur til fyrirtækja um
að bæta upplýsingastreymi til hluthafa,“
segir Sævar Freyr. „Með því að senda slika
fúndi út á Internetinu geta fyrirtækin veitt öllum hluthöfúm
aðgang að þeim. Fyrirtæki sem nýta þessa þjónustu velja oftast
að láta Símann sjá um alla þætti þjónustunnar; setja upp mynda-
vélar og ljós og tvinna saman hljóð og mynd á glærum. Það eina
sem fyrirtækið þarf að gera er að setja tengil á heimasíðu sína til
þess að notendur geti nálgast efnið.“
Myndfundabjónusta Símans Síminn hefur um árabil rekið
myndfundaþjónustu. A myndfundi geta fundarmenn séð hver
annan og rætt saman eins og um venjulegt samtal væri að ræða
og hægt er að senda glærur og önnur gögn á milli fundarmanna.
Það eina sem notendur þurfa er myndfundabúnaður sem fæst í
ýmsum útgáfum. Myndfundir henta vel fyrirtækjum og stofn-
unum sem eru með dreifða starfsemi og eru góður kostur fyrir
fyrirtæki sem vilja spara tíma og ferðakostnað vegna funda
starfsmanna. Að sögn Sævars eru myndfundir mikilvægur
þáttur í starfi háskóla og símenntunarstöðva um land allt. Sævar
segir að Síminn sé með fjölmörg verkefni í gangi sem tengjast
flutningi á hljóði og mynd um Internetið og IP-net. Sem dæmi
nefndi Sævar að fyrirtæki sem tengd eru IP-neti Símans geta for-
gangsraðað gögnum sem fara um IP-net þeirra og þannig tryggt
að mynd og hljóð gangi alltaf fyrir.
Að lokum segir Sævar brosandi: „Við höfum alltaf verið í
fararbroddi hvað tæknilegar nýjungar á þessu sviði varðar og
ætlum okkur að vera það áfram!“ SS
námskeiðin við tölvur sínar. Þetta er ótví-
ræður kostur og gerir alla vinnu mun
þægilegri en ella.“
Sent beint frá ráðstefnum Síminn hóf
■■ ð sögn Sævars Freys Þráinssonar, forstöðumanns á gagna-
■ M sviði Símans, eru margir stórir aðilar sem nýta sér þessa
iiniþjónustu Símans. Þar á meðal eru RÚV og Norðurljós en
bæði fyrirtækin bjóða viðskiptavinum sínum að hlusta á útvarps-
stöðvar sínar á Internetinu.
Vistað á Netinu „Fyrirtæki geta einnig vistað efni (hljóð og
mynd) hjá streymisþjónustunni," segir Sævar Freyr. „Mörg
fyrirtæki eiga í fórum sínum hljóð og vídeóefni, t.d. auglýs-
ingar og annað markaðstengt efni sem hægt er að gera
aðgengilegt á vef fyrirtækisins með litlum tilkostnaði. Sem
dæmi má nefna að fræðsludeild Símans hefur látið útbúa
stóran hluta af kennsluefni sínu þannig að hægt sé að senda
það um Netið og þannig gefa starfsmönnum kost á að sækja
100