Frjáls verslun - 01.01.2003, Blaðsíða 96
Stefán Sigurðsson,framkvœmdastjóri Perlunnar, í nýupþgerðri kaffiteríu Perlunnar.
Perlan:
Að undanförnu hafa staðið yfir breytingar á
kaffiteríu á 4. hæð Perlunnar. Starfsemin hefur
fyrir löngu sprengt utan af sér húsnæðið að sögn
Stefáns Sigurðssonar framkvæmdastjóra. „Við
tökum á móti um það bil 380 þúsund gestum á ári
og einfaldlega höfum ekki undan,“ segir hann.
„Með þessu nýja fyrirkomulagi verður þetta mun
auðveldara auk þess sem úrvalið stóreykst."
Stærstu breytingarnar eru þær að viðskiptavin-
urinn afgreiðir sig að mestu sjálfur og hefur val
um margskonar brauðtegundir, súpur, sætabrauð
og heitan og kaldan mat og salatbar. Gengið er inn
um lítið hlið og þegar búið er að velja á bakkann
er farið fram hjá afgreiðslukassa þar sem greitt er
fyrir veitingarnar. „Önnur nýjung er sú að í skot-
inu við hlið eldhússins verður verslun með
Eitt aðaleinkenni
Reykjauíkur
íslenskt handverk, minjagripi, íslenska og
erlenda, séríslenskar jólavörur og gourmetvörur
en ferðamenn spyrja mjög mikið um slíkar vörur,“
segir Stefán.
„Flestir þekkja sýningaraðstöduna hér en kannski færri salinn í
kjallaranum þar sem við getum verið með 70-80 manns í
en 150 standandi,“ segirStefán Sigurðsson,
framkvæmdastjóri Perlunnar.
Eftír Vigdísi Stefánsdóttur Myndir: Geir Ólafsson
Það er ljóst að Perlan hefur fyrir löngu öðlast sess sem eitt
af einkennum Reykjavíkurborgar og að þangað liggi
leiðir flestra fyrr eða síðar. Hinn almenni borgarbúi
kemur til að skoða sýningar, ferðamaðurinn kemur til að skoða
bygginguna sem er allsérstæð og sennilega einstök í sinni röð,
fólkið úr viðskiptaheiminum heldur fundi og matsalurinn á 5.
hæð dregur marga gesti til sín og svo mætti lengi telja.
Fundir af öllum stærðurn Stefán segir það aukast
ár frá ári að smáfundir séu haldnir í kaffiteriunni.
„Hér koma gjarnan nokkrir saman og sitja yfir
léttum réttum á meðan þeir skeggræða það sem á
dagskrá er,“ segir hann. „Hvað varðar stærri fundi
og ráðstefnur er um marga kosti að velja. Flestir
þekkja sýningaraðstöðuna hér en kannski færri
salinn í kjallaranum þar sem við getum verið með
70-80 manns í bíóuppstillingu en 150 standandi.
Allur búnaður til fundahalda og ráðstefnuhalds er
fyrir hendi í húsinu, hver sem stærð fundarins er,
og veislusalur okkar á 5. hæð gefur möguleika á að ljúka ráð-
stefnu eða fundi á frábæran hátt með mat og drykk. Þar starfa
matreiðslumeistarar og framreiðslumeistarar á heimsmæli-
kvarða en eins og alþjóð veit hafa matreiðslu- og framreiðslu-
meistarar okkar unnið til ijölda verðlauna og eru í fremstu röð.“
Reyndar störfuðu Stefán og Gísli Thoroddsen, sem einnig
er matreiðslumaður í Perlunni, í ijölda ára sem matreiðslu-
menn forseta íslands. Allt starfsfólk er fagfólk en í húsinu
starfa nú alls um 70 manns og gríðarlega mikil áhersla er lögð
á fagmennsku og góða þjónustu við gesti.
Perlan er opin allan daginn og langt fram á kvöld en fyrstu
gestir mæta oft snemma. „Erlendir gestir vilja helst að við
opnum um kl. 8 en það er ekki mögulegt," segir Stefán. „Við
þurfum tíma til að undirbúa húsið fyrir daginn en þó að húsið
sé skemmtilegt til skoðunar er óhemju erfitt að vinna þar og
mannfrekt. Hins vegar höfum við opið lengi fram eftir og eru
síðustu gestir að fara héðan um og eftir miðnætti."
Lúxuskanínur Eins og mörgum er kunnugt um hafa kanínur
numið land í Öskjuhlíð. Stefán segir þær tíða gesti og þeim sem
koma fyrstir á bílastæðið alltaf vera heilsað af kanínum. „Svo er
hér heitur blástur frá útbyggingunni og undir honum er kanínu-
hola. Þar sjáum við oft kanínur spóka sig í morgunblíðunni
hversu kalt sem er úti. Það má kannski segja að þarna séu
bústaðir með innbyggðri hitaveitu," segir Stefán sem kann
greinilega vel að meta félagsskapinn. ŒI
I fundarsal Perlunnar.
96