Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.2003, Blaðsíða 94

Frjáls verslun - 01.01.2003, Blaðsíða 94
Sigfus Sigfússon, stjórnarformaður Heklu. Flaggað fyrir gestum býður strax upp á tengsl og tækifæri til samskipta. Einnig hef ég gert að reglu að flagga þjóðfána gestanna þegar þeir koma hingaðsegir Sigfus. „Eg lærði það þegar ég fór að ferðast sem ungur maður og kom til Bretlands í heimsókn. Þar var þá íslenski fáninn dreginn að húni og mér þótti ósköp vænt um það. Þá ákvað ég að taka þannig á móti mínum eigin gestum og það hef ég gert síðan.“ Sigfús segist gjarnan bjóða gestunum heim til sín, sérstak- lega ef um kunningsskap er að ræða á milli hans og þeirra. , Auk þess býð ég gestum í sumarhúsið mitt til að leyfa þeim að kynnast Iandinu,“ segir hann. „Smáferðir út á land þar sem gest- irnir kynnast fegurð íslenskrar náttúru eru lika mjög algengar. Stuttar ferðir á jökla, í útreiðartúra, auk sundferða og ferðar í Bláa lónið eru dæmi um það sem Hekla býður gestum sínum.“ Hekla, eins og mörg önnur íslensk fýrirtæki, tekur á móti ijölmörgum gestum. En á annað hundrað erlendra gesta heimsækja Heklu árlega. Sigfús Sigfússon, stjórnarfor- maður í Heklu, hefur því langa reynslu af þvi að taka á móti gestum og hefur við það ákveðna siði. „Segja má að grunntónn- inn í siðum okkar, hvað þetta varðar, sé að skapa okkur hér á Islandi sérstöðu. Við erum lítill markaður og gestir okkar vinna á flestum öðrum stöðum að mun stærri og arðbærari viðfangs- efnum. Þrátt iýrir smæðina hefur okkur tekist að gera okkur sýnilegri og eiga gestamóttökur okkar örugglega sinn þátt í því.“ Kynni landið „Við gerum okkur far um að taka vel á móti erlendum gestum. Við byrjum á því að sækja þá til Keflavíkur. Þetta er góður siður, m.a. vegna þess að klukkustundarakstur Golfað að nóttu „Ég man eftir því að við héldum Evrópufund með öllum umboðsmönnum Mitsubishi í Evrópu og á meðal gesta voru 30 Japanir frá móðurfyrirtækinu," segir hann. „Það var auðvitað mikið um fundahöld en Japanirnir voru mjög áhugasamir um að komast í golf. Það leit þó ekki vel út þar sem fundir stóðu langt fram á kvöld en við enduðum á því, þegar síðasta fúndi lauk, kl. 11 að kvöldi, að fara með þá út á Sel- tjarnarnes þar sem þeir fengu völlinn lánaðan. Þeir fengu ekki bara völlinn heldur lánuðu kyliingarnir þar þeim kylfúrnar sínar og svo spiluðu þeir bara í sínum „bisnessfötum og bisness- skóm“ af miklum móð, um miðja nótt á bjartasta tíma ársins.“ „Það er afskaplega þýðingarmikið að vanda sig við móttöku gesta. Svona í lokin spillir ekki iýrir að færa gestum litla gjöf þegar þeir yfirgefa landið. Reykti laxinn stendur alltaf iýrir sínu hvað það varðar,“ segir Sigfús að lokum. SS Þjóðarsálin er í sundi Hvað ætti ég helst að gera á íslandi?" spyr alsaklaus ferða- maðurinn íslending sem situr við hlið hans í flugvélinni á leið heim. „Fara í sund,“ er líklegt að svarið verði og svo kemur loigjörð til íslenskra sundlauga, hversu mikið sport þetta sé og að allir, bókstaflega allir íslendingar fari í sund í hverri viku. Hversu sannfærandi og ákafur íslendingurinn er fer kannski svolítið eftir því hvað hann hefur verið lengi í burtu frá landinu og þar með farinn að sakna þessara mjög svo sjálfsögðu gæða okkar en vist er að í augum eyjaskeggja og þá kannski helst þeirra sem búa á höfuðborgarsvæðinu, eru sundlaugar eitthvað sem útlendingar verða að kynnast. Erlendir gestir eru dregnir í sund og ekki hlustað á mótbárur, vandræðagangur þeirra sem aldrei hafa vanist því að afklæða sig innan um fjölda manns, hvað þá fara í sturtu með ókunnum, er hin besta skemmtun og víst er að eftir fyrstu ferðina er viðkomandi ferðalangur með það á hreinu að þessa upplifun vilji hann prófa aftur. 33 Erlendir ráðstefnugestir fara gjarnan í sund á Islandi. Mynd: Geir Olafsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.