Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.2003, Blaðsíða 48

Frjáls verslun - 01.01.2003, Blaðsíða 48
Þórólfur tekur við lyklunum að Ráðhúsinu úr hendi Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, fráfarandi borgarstjóra. stjóri Tals frá 1998 þar til í nóvember sl. Þórólfur tók við starfi borgarstjóra um síðustu mánaðamót. Hann hefur setið í stjórn íjölda fyrirtækja auk þess sem hann hefur setið í aðal- stjórn Verslunarráðs Islands frá 2000 og hefur verið í fram- kvæmdastjórn þess frá 2001. Þórólfur hefur gegnt trúnaðar- störfum fyrir Lífeyrissjóð verkfræðinga og m.a. gegnt þar for- mennsku. Þórólfur var valinn markaðsmaður ársins 2002 af Imark. Persóna Þórólfur er tilfinningamaður, heiðarlegur, heill og vænn og geðþekkur, traustur og góður félagi og vinur. Hann er félagslyndur, opinn og skemmtilegur og alltaf mikið lif í kringum hann. Honum er lýst sem mannlegum og jarð- bundnum, manni sem hefur ekki óþarfa áhyggjur af fortíð og framtíð heldur lifir í nútíðinni og nýtur lifsins. Árni Páll, yngri bróðir hans, segir að Þórólfur sé hrókur alls fagnaðar í ijöl- skyldunni og ágætur sögumaður. Hann sé ræktarsamur, muni vel eftir fólki og rækti tengslin við það, jafnt ættingja og samferðamenn frá gamalli tíð. Greiðvikni hans sé einstök og hann sé gjarnan fyrsti maður á staðinn ef eitthvað bjátar á hjá öðrum og spari sig þá hvergi. Hann er afskaplega vinsæll meðal þeirra sem hafa unnið með honum eða til hans þekkja. Stjórnandi Þórólfur þykir alhliða sterkur stjórn- andi. Hann á auðvelt með að setja sig inn í málin, er áhugasamur og hefur gaman af starfinu. Geir A. Gunnlaugsson, framkvæmdastjóri Hæfis, segir að Þórólfur sé einn allra mesti og besti sölumaður sem hann hafi kynnst. Ljóst er að Þórólfur er mikill markaðsmaður enda hefur hann starfað hjá fyrirtækjum sem hafa náð góðum árangri á því sviði. Geir segir að Þórólfur gangi til verka af miklum áhuga og ákafa og sé fær í mannlegum samskiptum. „Hann áttí einstaklega auðvelt með að ná sambandi við viðskiptavini og stofnaði til mjög góðs samstarfs, oft á tíðum persónulegs samstarfs, við þá. Það er ein af forsendum þess að ná góðum árangri sem sölumaður," segir Geir. Þórólfi er einkar lagið að virkja fólk, fá það með sér og treysta því fyrir verkefnum. Hann hvetur fólk áfram og gerir því ljóst að það býr yfir meiri hæfni en það hefur oft gert sér grein fyrir og laðar fram kostí þess. Hann stendur sam- starfsfólki sínu nærri, er vinsæll meðal þess og gerir sér far um að þekkja alla með nafni. Hann á gott með að ræða við fólk, bæði um vinnutengd mál og persónuleg, og fólk leitar gjarnan til hans. Guðjón Reynisson, framkvæmdastjóri 10-11, vann með Þórólfi í fjögur ár hjá Tali. Hann segir að Þórólfi hafi tekist að byggja upp gríðarlega góðan starfsanda. Hann hafi látið sér annt um starfsfólkið og sett gott fordæmi gagnvart hinum sljórnendunum, t.d. með því að vera mjög virkur í starfs- mannafélaginu. A miklum aðhaldstímum hjáTali hafi Þórólfi gengið vel að leiða starfsfólkið áfram, m.a. vegna þess hve gott samband hann hafi haft við það. Þórólfur hafi alltaf gengið fremstur í flokki og lagt sig allan fram. Hann hafi inn- leitt og beitt öguðum vinnubrögðum hjáTali, lagt t.d. áherslu á íundargerðir, stundvísi og að menn kæmu vel undirbúnir á fundi. Hann hafi krafist ákveðinnar formfestu en samt hafi Hann er sagður viðræðugóður og tílbúinn tíl að hlusta á sjónarmið annarra en þolir illa óheiðar- leika. Hann er mikill keppnismaður og á erfitt með að viðurkenna ósigur, bítur frekar á jaxlinn og heldur áfram. Hann á erfitt með að sætta sig við að slagurinn sé búinn. Hann hefur alltaf unnið mikið og axlað mikla ábyrgð í starfi og hefur að matí eiginkonu sinnar því að miklu leytí verið laus við að bera ábyrgð á heimilisstörfum og fiöl- skyldulífi. Hann hefur þó sinnt heimilishaldi eftir bestu getu og er góður félagi barnanna sinna. Þórólfur hefur stundum haft miklar fiarvistir frá heimilinu vegna starfa sinna, allt upp í 100 daga á ári, t.d. þegar hann starfaði hjá Marel. Hann leggur því mikið upp úr því að eiga frí um helgar tíl að sinna fiölskyldunni. Þórólfi er einkar lagið að virkja fólk, fá það með sér og treysta því fyrir verkefnum. Hann hvetur fólk áfram, stendur samstarfsfólki sínu nærri, er vinsæll meðal þess og gerir sér far um að þekkja alla með nafni. 48
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.