Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.2003, Blaðsíða 59

Frjáls verslun - 01.01.2003, Blaðsíða 59
VIÐTflL REKUR PÖBBfl í FRAKKLANDI vera vel varðir. Við lentum aldrei í neinni hættu nema þá helst þegar foreldrar mínir voru eitt sinn handteknir af Rúss- um ásamt öðrum vestrænum diplómötum. Frelsissviptingin stóð ekki lengi yfir enda byggð á „rússneskum misskiln- mgi“. I Líbanon, þar sem faðir minn var sérlegur erindreki aðalritara Sameinuðu Þjóð- anna, var borgarastyijöldin í fullum gangi og daglegt líf °ft erfitt og hættulegt," segir Thor Hallgrímur Ragnars- son Guðmundsson, forstjóri hrogpubs-keðjunnar Frakklandi. Thor er íslendingum lítt bekktur enda hefur hann htið búið á föðurlandinu ef frá eru skildir nokkrir fyrstu mánuðir ævinnar. Hann er feddur í London árið 1963, sonur Ragnars Guðmunds- sonar, sem starfaði lengi á Vegum Sameinuðu þjóð- anna, m.a. Unesco, víða um heim, lengst af í Paris, og frhnu Hallgrímsson hús- nioður. Ragnar er sonur Guðmundar Karlssonar, afyinnurekanda á ísafirði, og Onnu Baldvinsdóttur, versl- unarkonu í Reykjavík. Móðir frhors, Elína Hallgrímsson, er dóttir Hallgríms Friðriks Hallgrímssonar, fv. forstjóra Skeljungs, og Margrétar Thors, dóttur Thors Jensen. Enskir pöbbar í Frakklandi Thor gekk í barnaskóla og menntaskóla í Frakklandi nema þau tvö ár sem ijölskyldan hjó í Taílandi. Hann lærði hagfræði við London School of Economics, LSE, tók framhaldsgráðu við Sciences Po í hrakklandi, fór svo aftur til London að vinna fyrir japanska tjárfestingabankann Nomura 1985-1991. Þá hélt hann aftur heim til Frakklands og tók þar MBA-gráðu í Insead- skólanum í Fontainebleau. Hluti af því námi var verkefni, Sem Thor vann með kunningja sínum, um að korna á fót uýju fyrirtæki. Það fólst í því að opna í Frakklandi enska PÖbba sem brugga bjórinn á staðnum. Verkefnið fékk góðar viðtökur, þeir töldu það raunsætt og að það ætti að geta skilað góðum hagnaði svo að þeir ákváðu að skoða hetur möguleikann á því að opna svona pöbba. „Þetta var frekar vinsælt í Englandi og var að ná vin- sa&ldum í Bandaríkjunum. Við töldum að þetta gæti gengið ágætlega í París. Það tók okkur um það bil eitt ár að finna goðan stað, fá Jjármögnun og byggja pöbbinn. Við vorum 'l(f leita að stað í miðborg Parísar, nálægt kauphöllinni og öðrum fjármálafyrirtækjum þar sem flestir útlendingarnir eru. Við fundum góðan stað, að vísu ekki nákvæmlega þar sem við ætluðum okkur, en góðan stað engu að síður. Húsið hafði svipað útlit og margir pöbbar í London og því var auðvelt að breyta. Okkur fannst útlitið skipta máli. Við opnuðum fyrsta staðinn í október 1993 og þá var lítið af útlenskum pöbbum í París. Frakkar höfðu ekki lært að fara á pöbba á þessum tíma heldur sóttu frekar diskótek og slíka skemmtistaði en smátt og smátt hefur þróunin verið sú að Frakkar fara meira á bari og krár,“ segir Thor. Ódýrt að brugga sjálfur Ensku pöbbarnir hafa áunnið sér svo miklar vin- sældir í Frakklandi að bandaríska viðskiptablaðið Fortune þótti ástæða til að taka viðtal við forsprakka Frogpubs. Enska bjórfyrir- tækið Guinness hefur eytt töluverðum peningum í að kynna bjórmenninguna fyrir Frökkum og hafa margir pöbbar verið opnaðir. Þegar Frogpubs-fyrirtækið hóf starfsemi sína 1993 voru 12- 13 enskir pöbbar í París og einn eða tveir með amerísku yfirbragði. I dag eru pöbbarnir 80 í París einni saman. Frogpubs bauð í upphafi upp á bæði Guinness og franskan Kronenburg til viðbótar við bjórinn, sem fyrirtækið bruggaði sjálft, en þróunin hefur verið sú að framleiða allan bjór á staðnum, ekki síst vegna þess að þekkingin innan fyrirtækisins á bjórfram- leiðslu hefur aukist og svo er ódýrara að brugga sjálfur þegar magnið er komið um og yfir 80 þúsund lítra á ári. Fyrsti Frogpubs staðurinn gekk vel frá upphafi og komst framleiðslan yfir þetta mark strax á fyrsta árinu og hefur aukist stöðugt síðan. Tegundirnar eru nú 14; Darkitaine, Trenta Wheat, Maison Blanche o.s.frv. ,Á hinum stöðunum hefur þetta líka gengið mjög vel. Staðirnir eru nú Jjórir í París, tveir í Bordeaux og Toulouse og svo höfum við opnað einn stað í Lissabon í Portúgal. Portúgali, sem hafði unnið fyrir okkur, fluttist aftur heim til Portúgals. Hann hafði áhuga á frekara samstarfi svo að við gripum tækifærið og stofnuðum fyrirtæki með honum, fundum stað og opnuðum í júní á síðasta ári. Reksturinn hefur farið frekar hægt af stað. Þó að veturinn sé ekki sá sami í Portúgal og hér þá verður oft grátt og mikið rok og rigning í Iissabon á þessum árstíma. Kráin er á mjög veðurbundnum stað þannig að við bíðum efdr vorinu til að sjá hvort rekstur- inn fer ekki að ganga betur," segir Thor og minnir á að kaup- mátturinn sé ekki sá sami í Portúgal og í Frakklandi, Bret- landi eða á Islandi. Það verði því að sýna þolinmæði. Tveir á ári næstu árin Uppbygging Frogpubs-keðjunnar hefur gengið hratt og vel. Fyrsti pöbbinn var opnaður 1993. Pöbb númer tvö var opnaður þremur árum síðar því að erfiðlega gekk að finna rétta húsnæðið. Þriðji pöbbinn var Thor og kunningi hans, Paul Chantler, unnu saman verkefni sem miðaði að því að koma á fót nýju fyrirtæki í Frakklandi, enskum pöbbum þar sem bjórinn er bruggaður á staðnum. Verkefnið fékk góðar viðtökur. Thor og Paul töldu sig eiga mögu- leika á að hrinda því í framkvæmd og fá góðan hagnað. Það reyndist rétt vera. 59
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.