Frjáls verslun - 01.01.2003, Blaðsíða 28
Jón Ásgeir Jóhannesson,
forstjóri Baugs, er þeirrar
skoðunar að neytendur muni
horfa mikið í aurinn og láta
budduna ráða ferðinni næstu
tvö árin. „Við erum að sjá
neyslusamdrátt."
Þetta eru frábærai
Bónus og Hagkaup eru vinsæl-
ustu fyrirtæki landsins og er
Bónus par með aftur á
toppnum eftir ab hafa vikid
fyrir Islenskri erföagreiningu
síðustu þrjú árin. Baugur hefur
aukið vinsældir sínar verulega.
/
Jón Asgeir Jóhannesson,
forstjóri Baugs, er ajskaplega
ánægður með niðurstöðuna.
Efdr Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur
Mynd: Geir Olafsson
Mér líst feikilega vel á þetta. Þetta
eru frábærar fréttir fyrir mig per-
sónulega og starfsfólk Baugs
Group. Við höfum haft á tilfinningunni
að við hefðum meðbyr á markaðnum þó
að við hefðum ekki endilega haft
meðbyr innan þröngs hóps á landinu.
Það er búið að beija mikið á okkur og
toppmenn í pólitíkinni hafa reynt að
mála okkur sem vonda kallinn í mat-
vöruverðinu en það er greinilegt á
þessum tölum að fólk metur það öðru-
vísi. Viðskiptavinirnir hafa komið til
okkar, vonandi vegna þess að við höfum
haft ýmislegt fram að bjóða,“ segir Jón
Asgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs.
Neytendur fagnandi Eins og sjá má á
niðurstöðum skoðanakönnunar
Frjálsrar verslunar eru stórverslan-
irnar Bónus og Hagkaup vinsælustu
fyrirtæki landsins og hafa þó nokkra
yfirburði, sérstaklega Bónus sem þar
með er aftur á toppnum eftir að hafa
vikið niður í annað sæti fyrir íslenskri
erfðagreiningu í fyrra og hittifyrra.
Hagkaup fer úr Ijórða sæti í annað. Jón
Ásgeir telur að breytt markaðssetning
Hagkaupa með lægra matvöruverði og
lágt sérvöruverð, mikið og gott vöruval
og góða þjónustu hafi þarna sitt að
segja. Af niðurstöðum könnunarinnar
sé ljóst að neytendur taki því fagnandi.
Athygli vekur að vinsældir Baugs hafa
aukist verulega og kemur það nokkuð
á óvart þar sem Baugur er ekki í beinni
snertingu við neytendur. Jón Ásgeir
rýnir í listann, sér að Lyfja kemst ekki á
blað og segir svo: „Skrítið!“ Hann telur
vinsældir Baugs sýna að neytendur átti
28