Frjáls verslun - 01.01.2003, Blaðsíða 31
VINSÆLASTA FYRIRTÆKIÐ 2003
V/insœlustu fyrirtækin
1. sæti
1989: Sól
1990: Hagkaup
1991: Flugleiðir
1992: Hagkaup
1993: Sól
1994: Hagkaup
1995: Bónus
1998: Flugleiðir
1997: Bónus
1998: Bónus
1999: Bónus
2000: ísl. erfðagrein.
2001: ísl. erfðagrein.
2002: ísl. erfðagrein.
2003: Bónus
2. sæti
Hagkaup
Flugleiðir
Hagkaup
Bónus
Flugleiðir
Bónus
Hagkaup
Bónus
Hagkaup
Hagkaup
Eimskip
íslandsbanki
Bónus
Bónus
Hagkaup
Jóhannes Jónsson getur verið ánægður með útkomuna.
Bónus malar þetta
Þótt einhver kynni að hafa haldið að öll þessi umræða
um Jón Ásgeir hefði skaðað ímynd Baugs og verslana hans
þá virðist svo alls ekki vera. Bónus malar vinsældarkönn-
unina og er fyrirtækið komið á fornar slóðir eftir að hafa
gengið í gegnum rysjótta tíð undanfarin ár. Þetta er í
fimmta sinn sem Bónus mælist vinsælast. Minnst var fylgið
árið 2000 þegar það fór niður í 6,6% og lenti fyrirtækið þá í
fimmta sæti. Hagkaup, sem oft hefur verið í þriðja til sjötta
sæti, lenti í tíunda sæti þetta sama ár. Þetta var erfiðasta ár
Baugs og Baugsbúða í þessum könnunum. Vinsældirnar
dvínuðu og fleiri en nokkru sinni nefndu fyrirtækin sem
óvinsæl fyrirtæki.
Vinsældir Bónuss
Vinsældir Bónuss frá árinu 1995 þegar hann toppaði í fyrsta
sinn. Á árinu 2000 hrundu vinsældirnar sem og annarra
Baugsbúða.
Bónus malar önnurfyrirtæki í vinsældum í
könnun Frjálsrar verslunar. Hagkaup er í ööru
sœti og Baugur rýkur upp vinsældarlistann.
/
Toppfyrirtæki sl. priggja ára, Islensk erfða-
greining, er í sjöunda sæti.
Effir Jón G. Hauksson Myndir: Geir Ólafsson
íslensk erfðagreining Toppfyrirtæki síðustu þriggja ára,
Islensk erfðagreining, fellur að þessu sinni niður í sjöunda
sæti og dettur fylgið niður í 4,9% úr um 14,7%. Erfitt ár er að
baki hjá Islenskri erfðagreiningu. Það lenti í tvenns konar
stórhríð á síðasta ári. Allt varð vitlaust í þjóðfélaginu þegar
Alþingi samþykkti að heimila fiármálaráðherra að veita
fyrirtækinu ríkisábyrgð upp á 200 milljónir Bandaríkjadala
í tengslum við áform þess að stofna fyrirtæki í lyfiaþróun
hérlendis. Enn er ekki komið til kasta fiármálaráðherra að
veita ábyrgðina - og óvíst hvort af því verði. Hin stórhríðin
voru uppsagnir fyrirtækisins á 200 starfsmönnum sl. haust
til að draga snarlega úr útgjöldum og ná fram hagnaði úr
rekstrinum fyrr en áætlanir gera ráð fyrir.
Bankarnir Bankarnir bæta við sig í vinsældum. Islands-
banki er í þriðja sæti og Landsbankinn færir sig upp í átt-
unda sætið, úr því fiórtánda. Sparisjóðirnir og Búnaðar-
bankinn raða sér í næstu tvö sæti. Einkavæðing ríkisbank-
anna tveggja hefur greinilega ekki komið niður á þeim í vin-
sældum og er það ánægjulegt. Œl
31