Frjáls verslun - 01.01.2003, Blaðsíða 25
FORSÍÐUGREIN flCO-TÆKWIVflL
Fikra mig áfr
sagnarbréf á gamlársdag. Almar segir þá ákvörðun ekkert óeðli-
lega. „Þegar maður kemur inn í svona fyrirtæki er ekkert óeðlilegt
að maður vilji ráða í ákveðnar stöður það fólk sem maður vill
starfa með til að koma sínu handbragði á fyrirtækið. Ég tók
þessa ákvörðun og hef verið gagnrýndur fyrir það, bæði inn-
andyra og utan. Eg ætla ekki endilega að leggja þessi störf
niður, ég fæ inn nýtt fólk og endurræð hluta af gömlu
starfsmönnunum. Ég get heldur ekki útilokað að nýr ijár-
málastjóri vilji og kjósi að endurráða einhvern af fyrrver-
andi starfsmönnum."
- Nú ert þú búinn að taka óvinsælar ákvarðanir, td.
mót Er það ekkert óheppilegt sé litið til samstarfs við
tíðinni?
„Þeir sem velja sér að starfa á þessum vettvangi
verða að vera reiðuþúnir til þess að taka bæði
skemmtilegar og leiðinlegar ákvarðanir. Auðvitað
er alltaf leiðinlegt að segja upp fólki en það er
betra að segja upp 40 manns en að 180 manns
missi vinnuna og fyrirtækið fari í gjaldþrot.“ 33
uppsagnir fyrir ára-
starfsmennina í fram
Almar Örn Hilmars-
son, forstjóri ATV. „Ég
held að tækifærin liggi
fyrst og fremst hjá okkur
sjálfum, að sýna viðskipta-
vinum okkar að við séum þess
virði að skipta við."
Mynd: Geir Ólafsson
Ætlum ekki að tapa peningum Þegar Almar er spurður að
því hvað hafi valdið áhuga Fengs og Baugs á ATV, hvort
það hafi fyrst og fremst verið verslanir BT og kannski
Office 1, segir hann að frá fyrsta degi hafi markmiðið
veríð að halda starfseminni lítið breyttri, helst óbreyttri.
„Við ætlum ekki að hopa af neinum mörkuðum. Við ætl-
um að sjálfsögðu að gera einhverjar breytingar á fyrir-
tækinu, það liggur í hlutarins eðli. Við ætlum ekki að
tapa peningum ár eftir ár, hvort sem það þýðir færri eða
fleiri BT-búðir, stærra fyrirtækjasvið eða minna. Það
verður tíminn að leiða í Ijós en við ætlum ekki að draga
í land á neinum mörkuðum,“ segir hann og telur enga
grundvallarstefnubreytingu í bígerð hjá fyrirtækinu,
þvert á móti geti verslanirnar, fyrírtækjamarkaðurinn
og þjónustumarkaðurinn stutt hvert annað.
Hugsa urn daglnn í dag „Þetta virkar ágætlega saman,
það þarf bara að skerpa fókusinn og láta vélina fara að skila
jákvæðu ijárstreymi. Ég sé engan stórkostlegan vöxt á
þessum markaði. Samdráttur hefur verið almennur sl. eitt og
hálft ár og ég held að samdráhurinn haldi áfram. Ég rek ekki
mitt fyrirtæki með það fyrir augum að spá í morgundaginn. Ég
hugsa um daginn í dag og reyni svo að fikra mig áfram. Tæki-
færin liggja mest í þvi að gera þetur það sem við höfum verið að
gera, sannfæra okkar viðskiptavini um að hér sé gott að vera og
leita leiða inn á við til að vera betur undir það búin að taka þátt í
harðri samkeppni á þessum markaði. Þetta fyrirtæki hefur skaðast
mikið undanfarið. Ovissuástand, sem hefur verið ríkjandi, dregur
kraftinn úr fólkinu og heinir huganum í neikvæða átt. Ég held að tæki-
færin liggi fyrst og fremst hjá okkur sjálfum, að sýna viðskiptavinum
okkar að við séum þess virði að skipta við.“