Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.2003, Síða 102

Frjáls verslun - 01.01.2003, Síða 102
Nýherji: Tæknilega fullkomnir fundarsalir Sveinn Þ. Jónsson, sölustjóri ráðstefnubúnaðar hjá Nýherja. Ljóst er ab fyrirtæki eiga möguleika á ab auka sóknarfæri sín verulega efþau geta komib vöru ogþjónustu á framfæri meb markvissari hætti í rétt hönnubu fundarherhergi. Eftír Vigdísi Stefánsdóttur Myndir: Geir Olafsson Krafan um tæknilega fullkomna ráðstefnu-, kynningar-, fundar- og veislusali hefur aukist á undanförnum árum. Vegna mikillar tækniþróunar er mun auðveldara að hanna sali að þörfum viðskiptavina. Þá skiptir máli að samspil myndar, hljóðs og stýringa virki sem ein heild. Allar faglegar kynningar í dag eru fhittar á rafrænu formi og þar af leiðandi er mjög áríð- andi að fundaraðstaða sé búin nýjustu tækni hvers tima þannig að auðvelt sé fyrir hvern og einn að koma sínu kynningarefni vel og auðveldlega til skila. Því er ákaflega mikilvægt að mynd, hljóð og stýringar séu til staðar og að þau séu rétt valin. Stærð myndar Skiptir máli Við hönnun á fundarsal er mikilvægt að huga að stærð myndar svo að allir fundargestir sjái vel á skjá- inn hvar sem þeir sitja í salnum. Sem dæmi um nægilega stóra mynd er gott að miða við einfalda reikniformúlu, sbr. lengd her- bergis deilt með 5 gefur upplýsingar um minnstu mögulega myndbreidd. Þannig má segja að sé herbergi um 10 m langt þurfi breidd myndflatar að vera minnst um 2 m. Oft gerist það að í góðum fundarherbergjum eða -sölum sé of litil lofthæð svo að ekki verður komið fyrir þeirri myndstærð sem hentar. Þegar sýna þarf heppilega stærð myndar þarf að velja tæki og er algengast að notast við skjávarpa. Þar sem mjög mikið úrval er af skkum tækjum er hægt að velja bæði ljósmagn og mymdupp- lausn við hæfi í hvert sinn. Á undanförum misserum hefur áhugi á að nota svokallaða plasmaskjái á fúndum aukist til muna en stærð þeirra er þó tak- mörkuð við um 50“ (geta verið stærri). Þessir skjáir gefa alveg ótrúlega góða og skýra mynd frá hvaða miðli sem er en aftur er takmörkun á notkun vegna smæðar og þá er ekki ráðlagt að nota plasmaskjái í rými sem er lengra en ca. 6 m. Myndsýningartæknin Eitt lykilatriða við myndsýningar er myndupplausnin en algengt er að merkið í upplausninni sé 800x600 punktar eða 1024x768 punktar. Tæki eins og DVD- spilari, vídeótæki og fjarfundabúnaður senda oftast aftur merki sitt sem vídeómerki. Þó geta verið enn fleiri tegundir mynd- merkja á ferðinni. Miðillinn sem sýnir þessi merki verður að vera tæknilega mjög fjölhæfúr og gengur t.d. venjulegt sjónvarp engan veginn, heldur verður að notast við skjávarpa, plasmaskjá eða jafnvel stóra LCD-skjái. Þegar sýna á mynd úr tölvu þá verður skjávarpinn að ráða við upplausn þess merkis sem kemur úr tölvunni. Til dæmis er ekki heppilegt að sýna mynd úr nýrri gerðum fartölva sem búa yfir a.m.k. 1024x768 myndupplausn og notast við skjávarpa sem ræður einungis við 800x600 myndupplausn. Krafan um Skýrf mal 1 vaxandi mæli krefst kynningarefni frá tölvum og myndtækjum einnig hljóðbúnaðar og er þá oftar en ekki krafa um betra hljóð en hægt er að ná frá viðkomandi sýningarbúnaði. Einnig er nauðsynlegt í góðu fundarherbergi að talað mál frá kynningu eða myndfundi sé skýrt og gott. Það er því mikilvægt að hljóðkerfi í fundar- og ráðstefnusölum sé rétt hannað með tilliti til aðstæðna. Það er td. stórt atriði að salur sem notaður er til myndkynninga sé hljóðhannaður þannig að hljóðið komi frá myndfletinum sem horft er á. Þá er mikilvægt að talað mál berist skýrt og jafnt til allra áheyrenda. Ein fjarstýring - tæknimenn úbarfir í tæknivæddum fundarsal er töluvert af miklum og ósamstæðum búnaði. T.d. er eftirtalinn búnaður hluti af því sem er venjulega til staðar í ráðstefnusölum: Skjávarpi eða plasmaskjár, tölva tengd innra neti fyrirtækisins, önnur tölva (fartölva), DVD-myndtæki, myndbandstæki, hljóð- kerfi, sýningartjald (rafdrifið), rafræn tússtafla, ljósastemmn- ingar (dimmaðar), gluggatjöld (oft rafdrifin), ijarfundamynda- vélar og gagnamyndavélar. Vegna þessa mismunandi búnaðar er fundarsalurinn jafnvel með 6-10 stk. af mismunandi ijarstýr- ingum sem oft er flókið að læra á. Með stjórnbúnaði frá Crestron, sem er með þráðlausum snertiskjá, er hægt á einfaldan og myndrænan hátt að yfirtaka allar fjarstýringar og þar með stjórna öllum tæknibúnaði í salnum með einu tæki og svo auðveldlega að ekki er nokkur þörf á að kalla sérhæfða tæknimenn til aðstoðar. Nýherji hefur búnaðinn og reynsluna Nýheiji hefur um langt árabil sérhæft sig í öllu því sem viðkemur ráðstefnu- og kynn- ingartækni. Fyrirtækið býr yfir fremstu sérfræðingum landsins á þessu sviði og hafa starfsmenn Nýheija unnið að mörgum glæsi- legum verkefnum. Má þar nefna Nordica hótel, sem örugglega verður í sérflokki hvað varðar góða fundaraðstöðu, Tónlistarskól- ann í Garðabæ, Islenska erfðagreiningu, Landsvirkjun, Alcan á Islandi, Barnaspítala Hringsins, Grand hótel o.m.fl. 33 102
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.