Frjáls verslun - 01.02.2003, Page 14
□ TV, Aco-Tæknival, hefur keypt yfir 90 prósent hluta-
íjár í Svari hf. og tekur fyrirtækið yfir rekstur Svars
frá næstu mánaðamótum þegar félögin verða sam-
einuð. Kaupverðið verður greitt með 10 prósenta hlut í ATV.
Rúnar Sigurðsson, stofnandi Tæknivals og fráfarandi fram-
kvæmdastjóri Svars, mun koma til starfa hjá ATV. Bæði Svar
og ATV hafa staðið illa ijárhagslega en vonir eru bundnar
við að þeirri þróun verði snúið við á næstu mánuðum. ATV
var á brauðfótum vorið 1999 þegar alvarleg tilraun var gerð
til að reisa það við. Árið 2000 átti sér stað viðsnúningur og
skilaði fyrirtækið hagnaði fyrir ljármagnsliði og sölu eigna
en 2001 fór að halla undan fæti aftur og í árslok 2002 keyptu
Baugur og Fengur tæplega helmingshlut í félaginu. S9
Rúnar Sigurðsson, fráfarandi framkvæmdastjóri Svars,
kemur til starfa hjá ATV. Mynd: Geir Ólafsson
ATV kaupir Svar
Helgi Vilhjálmsson, sem á og rekur sælgætisgerðina Góu-
Lindu og veitingastaðina Kentucky Fried Chicken, vill
hvetja til umræðu um lifeyrissparnað landsmanna.
Mynd: Páll Stefánsson
Helgi tekur upp práðinn
elgi Vilhjálmsson, framkvæmdastjóri Góu-Lindu og
Kentucky Fried Chicken veitingastaðanna, tók upp
þráðinn nýlega og birti auglýsingar til að kveikja um-
ræðu um lifeyrissparnað landsmanna, hve mikill sparnaður-
inn er og í hvað hann fer. Helgi vakti einnig athygli á þessu
máli í fyrra. Hann telur að lifeyrissparnaðinn mætti t.d. nota
til að byggja íbúðir fyrir eldri borgara. „Eg vil vekja fólk til
umhugsunar. Hvað vill það láta bíða sín þegar kallið kemur,
uppsagnarbréf, 67 ára? Lífeyrissparnaðurinn er skemmtileg
sameign þjóðarinnar og ég hefði gjarnan viljað sjá breytingu
hjá lífeyrissjóðunum," segir Helgi. SD
Viíjj'diíí í Hsteniingij
Áskriftarsími: 512
Miðað við árið 1998 þá hafa laun tíu
tekjuhæstu forstjóra landsins farið úr
17,2 milljónum á ári í 25,6 milljónir skv.
tekjublaði Frjálsrar verslunar en það er
48,8% hækkun... Eftir sem áður eru ís-
lenskir stjórnendur „láglaunaforstjórar"
miðað við evrópska starfsbræður
þeirra, þeir hæstu á fslandi eru að narta
í meðaltal þeirra í Evrópu.
Eyþór l'uar Jónsson
(Græðgi á fslandskortinu).
7575
Stærðargráða þessara framkvæmda
(orkuvers við Kárahnjúka og álvers í
Reyðarfirðil, sem hlutfall af vergri
landsframleiðslu (VLF), fer hæst í um
9% árið 2006. Til samanburðar skal
þess getið að framkvæmdir við Búr-
fellsvirkjun og álverið í Straumsvík í lok
sjöunda áratugar liðinnar aldar náðu
hámarki 1968 og mældust þá um 8%
af VLF það ár.
Ólafur Klemensson
(Mestu framkvæmdir fslandssögunnar).
Niðurstaðan virðist því í fljótu bragði
vera sú að hér sé við lýði kerfi í land-
búnaðarmálum sem á árinu 2001
kostaði ríkissjóð og neytendur búvara
um 9,4 milljarða. Samt sem áður er
meðaltalsafkoma bænda á sama tíma
ekki góð. I Ijósi þessa er sú spurning
áleitin hvers vegna stjórnvöld halda
óbreyttri stefnu.
Guflmundur G. Sigurbergsson og Sig-
urður P. Harðarson
(Búverndarstefna á villigötum?).
Margir hafa ályktað sem svo, að engin
hætta stafaði af lántökum undangeng-
inna ára - lántökum, sem tvöfölduðu
erlendar langtímaskuldir þjóðarbúsins
í hlutfalli við landsframleiðslu á aðeins
fjórum árum, 1997-2001, úr 50%
upp í nærri 100%. Með þessum lán-
tökum er þó búið að veðsetja útflutn-
ingstekjur þjóðarinnar langt fram f
tímann - og það skömmu áður en
stórfelldasta lántökuhrina fslandssög-
unnar fer af stað vegna Kárahnjúka-
virkjunar.
Porualdur Gylfason
(Hversu dregur ísland að?).