Frjáls verslun - 01.02.2003, Qupperneq 22
BAÍ!h:fedgar
Sonurinn, Jón Ásgeir Jóhannes-
son, forstjóri Baugs, hnýtir núna
augljóslega flesta hnútana.
Baugs-feðgarnir, Jóhannes Jónsson og Jón
Ásgeir Jóhannesson, eru valdablokk. Báðir
hafa verið í eldlínunni, þótt sonurinn, Jón
Ásgeir, haíi haft sig miklu meira í frammi síðustu
fimm árin. Fjárfestingarfélag ijölskyldunnar,
Gaumur, er stærsti hluthafinn í Baugi, auk þess
sem félagið lætur mjög að sér kveða í mörgum
öðrum félögum, m.a. Flugleiðum. Fyrir aðeins 15
árum voru Baugs-feðgar bláfátækir menn sem
voru að baksa við að setja á fót lágvöruverðsverslun
í fremur óhrjálegu húsnæði í Skútuvoginum.
Þeir feðgar urðu sjálfstæð
valdablokk á vormánuðum
árið 1998 þegar þeir
keyptu Hagkaup og
helminginn í Bónus af
fjölskyldu Pálma
heitins Jónssonar
með aðstoð
Kaupþings og
Fjárfestingar-
banka atvinnulífsins. Eðli málsins samkvæmt
mæddi mikið á þeim Sigurði Einarssyni, forstjóra
Kaupþings, og Bjarna Ármannssyni, forstjóra
FBA, í þessum viðskiptum sem urðu upphaf að
hrinu á sölu fjölskyldufyrirtækja. Við þessi fyrir-
tækjakaup varð Baugur til en hann rekur m.a.
Bónus, Hagkaup, 10-11 og fleiri verslanir.
Náið samstarf hófst með þeim Sigurði Einars-
syni og Jóni Ásgeiri á þessum tíma. Svo náið hefur
það verið að í daglegu tali í viðskiptalífinu er þetta
orðað svo að ,Jón Ásgeir gangi sjálfkrafa í tékk-
heftið hjá Kaupþingi við kaup á fyrirtækjum". Jón
Ásgeir stóð að stofnun Orca-hópsins á miðju
sumri árið 1999 og fékk þá Þorstein Má Baldvins-
son, Jón Olafsson og Eyjólf Sveinsson til fiðs við
sig. Það endaði með því að þeir keyptu 26,5% hlut
í FBA af sparisjóðunum og Kaupþingi - sem frægt
varð. Næsta skref varð svo þegar FBA og Islands-
banki sameinuðust. Frá og með þeim degi varð til
hernaðaráætlun innan Orca-hópsins um að ná yfir-
tökum í Islandsbanka.
í DAGLEGU TALI í viðskiptalífinu er
þetta orðað svo að „Jón Ásgeir
gangi sjálfkrafa í tékkheftið hjá
Kaupþingi við kaup á fyrirtækjum'1 11.
Fimmtán stærstu hluthafarnir
1 Gaumur Holding SA ............ 20,5
2 Fjárfestingaf. Gaumur ehf. 16,7
3 Reitan Handel AS .......... 11,8
4 Kaupþing banki hf.............. 8,7
5 Fasteignaf. Stoðir hf...... 7,0
6 Búnaðarbanki íslands hf. 3,8
7 Lífeyrissj. Bankastr. 7 ... 3,6
8 Eignarhaldsfélagið ISP ehf. 2,0
9 Lífeyrissjóður sjómanna ... 1,9
10 Lífeyrissj. verslunarm. ... 1,9
11 Lífeyrissj. Norðurlands ... 1,6
12 Fjárfestingaf. Straumur hf. 1,5
13 íslandsbanki hf................ 1,5
14 Fjárfestingasj. Búnb. Hf.... 1,3
15 Kaupthing Luxembourg SA 1,2
Baugur Group