Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.2003, Page 23

Frjáls verslun - 01.02.2003, Page 23
VALDA- BLOKKIR? Hvað eru valdablokkir? Er kannski betra að segja valdakeðjur, við- skiptablokkir, auðhringir eða auðmanna- hringir? Getur t.d. einn maður verið valdablokk? Skilin eru oft á tíðum óljós og nafnið viðskiptablokk er jafnvel oftar notað en valdablokk. Fyrir fjörutíu árum hefði umræðan um valdablokkir snúist um helmingaskipta- reglu Sjálfstæðisflokks og Framsóknar- flokks sem var hvað sýnilegust í sjávar- útvegi og bankakerfinu. Takið eftir að núna komast tvö stærstu fyrirtæki landsins, risarnir í útflutningi á fiskaf- urðum, SÍF og SH, ekki inn á listann okkar sem sérstakar valdablokkir. Fyrir aðeins tólf árum var rætt um tvær valdablokkir hér á landi, Kol- krabbann og Smokkfiskinn sem var leif- arnar af gamla Sambandinu. Lengi vel var rætt um að viðskiptalífið skiptist í þrennt: einkageirann, Sambandið og hið opinbera. Við skilgreinum valdablokkir hér ein- göngu út frá völdum og áhrifum í krafti fjármagns - og það að vilja hafa áhrif. Sömuleiðs að standi til að gera eitthvað verulega öflugt átak í viðskiptalífinu komi þær við sögu með einum eða öðrum hætti - sem og fleiri fjárfestar þótt þeir séu ekki endilega innstu koppar í búri. í hugum flestra er valdablokk samspil og samvinna nokkurra sterkra, tengdra fé- laga þar sem peningarnir eru látnir vinna saman til að ná fram auknu afli. Sumir sáu raunar baráttuna um völdin í (slandsbanka fyrir sér sem baráttu „gamalla peninga og nýrra“ þar sem líf- eyrissjóðirnir tilheyra þá „gömlu pening- unurn". 35 Jóhannes Jónsson, stjórnarmaður í Gaumi og Baugi. Hann er auðvitað best þekktur sem Jóhannes í Bónus. Gaumur og þeir Baugsfeðgar hafa farið mikinn í kaupum á fyrirtækjum undanfarin ár. Þegar Þorsteinn Vil- Flugleiðir Fimmtán stærstu hluthafarnir 1 Burðarás ehf. (Eimskip) ... 28,0 2 Fjárfestingaf. Gaumur ehf. 10,1 3 Flugleiðir hf................ 7,0 4 Sjóvá-Almennar .............. B,2 5 Eignarhaldsf. Fengur hf.... 5,8 6 Skeljungur hf................ 5,1 7 Ovalla Trading Ltd .......... 4,6 8 Lífeyrissj. verslunarm. ... 3,5 9 Búnaðarbanki íslands hf. 3,0 10 Sigurður Helgason......... 1,4 11 Kaupþing hf................... 1,4 12 Anna Kristjánsdóttir ........ 1,3 13 Vogun hf..................... 0,9 14 íslandsbanki hf.............. 0,7 15 Lífeyrissjóðurinn Framsýn 0,7 helmsson seldi í Samheija og Kaupþing keypti hlut hans komu þeir t.d. þar við sögu sem kaupendur bréfanna. Þá á Gaumur t.d. veitingastaðina Hard-Rock og Pizza-Hut. Auk þess sem Baugur á auðvitað ótal verslanir hér. Loks má geta þess að þeir feðgar eru komnir með næstum 20% hlut í Flugleiðum og Jón Asgeir hefur verið kjörinn þar í stjórn. Þá má ekki gleyma því að þeir eiga ráðandi hlut í Fasteignafélaginu Stoðum sem á fjölda þekktra stórra fast- eigna, m.a. Kringluna. Þá á Gaumur um 18% í Smáralindinni. Fyrir utan yfirtökutilraunirnar á Islandsbanka í gegnum TM og Straum hefur mest borið á Jóni Asgeiri í Bret- landi. Baugur hagnast um 7,4 milljarða króna eftir skatta á Arcadia-sölunni og verður sá hagnaður notaður til frekari framsóknar á Bretlandi. Þeir feðgar telja að verð á ýmsum matvælafyrir- tækjum þar sé lágt um þessar mundir og þar séu kauptækifæri. Baugs-feðgar leggja núna mesta áherslu á Bretland í útrás sinni. 33 23
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.