Frjáls verslun - 01.02.2003, Page 27
Eiríkur S. Jóhannsson, forstjóri Kaidbaks.
Samherji ■ Síldarvinnslan
Fimmtán stærstu hluthafarnir Fimmtán stærstu hluthafarnir
(Eftir sameininguna við SR-mjöl)
1 Kaldbakur fjárf.f. hf 17,2 1 Samherji ...20,6%
2 Kristján V. Vilhelmsson ... 16,0 2 Snæfugl (Kaldbakur) ... ..12,9%
3 Þorsteinn Már Baldv 15,7 3 íslandsbanki ..12,6%
4 Llfeyrissj. Bankastr. 7 ... 7,4 4 Samvinnuf. útgerðarm. ..10,9%
5 Lífeyrissj. Framsýn 4,0 5 Haukþing ... 4,7%
B Tryggingamiðstöðin hf. ... 3,6 6 Sjóvá-Almennar ... 4,6%
7 Naftahf 2,7 7 Kaldbakur ... 3,9%
8 Lífeyrissj. sjómanna 2,6 8 Fjárf. Fjörður ... 3,6%
9 Vátryggingaf. ísl. hf 2,4 9 Rauðavík ... 3,2%
10 F-15 1,8 10 Lífeyrissj. Austurlands . ... 2,6%
11 Fjárfestingaf. Straumur hf. 1,5 11 Fjarðabyggð ... 1,8%
12 Búnaðarb. íslands hf 1,4 12 VlB, sjóður 6 ... 1,0%
13 Kaupþing banki hf 1,3 13 Olís ... 0,8%
14 Kerhf 1,1 14 Olíusamlag útv. í Nesk. . ... 0,8%
15 Fjárfestingaf. Gaumur ehf. 1,1 15 Nafta ... 0,8%
HAFA ÞÆR
VERIÐ í
FRÉTTUM?
Valdablokkirnar átta hafa allar meira og
minna verið í fréttum undanfarna
mánuði. Kolkrabbinn hefur ekki síst verið í
umræðunni vegna fyrirtækisins Hauk-
þings sem stofnað var 11. nóvember á
síðasta ári af Eimskip, Sjóvá-Almennum
og Skeljungi.
Haukþing er, eins og NATO, eins konar
varnarbandalag sem stofnað var gagngert
til að verjast yfirtökutilraunum Kaupþings á
Skeljungi. Sú vörn tókst. Reiturinn stóri á
taflborðinu, eignarhlutur Shell Petroleum í
Skeljungi, var valdaður. Shell Petroleum í
London spilar því með Kolkbrabbanum í
Skeljungi og eftir situr Kaupþing „læst inni“
í Skeljungi. Því vakti það athygli í Viðskipta-
blaðinu nýlega þegar forráðamenn Kaup-
þings sögðust ekki hafa neinar áhyggjur af
seljanleika hlutarins í Skeljungi. Haukþing
hefur sömuleiðis fjárfest í Sjóvá-Almennum.
Ekki fer á milli mála að Baugsfeðgar
sýna Flugleiðum mikinn áhuga um þessar
mundir og eiga þeir þar núna um 20%
hlut. Þá hefur Baugur mjög svo látið til sín
taka á matvælamarkaðnum í Bretlandi.
Segja má að Jón Ásgeir hafi undanfarin
tvö ár verið í fréttum vegna átakanna í
kringum íslandsbanka.
S-hópurinn hefur auðvitað verið í frétt-
um undanfarna mánuði vegna kaupanna á
hlut ríkisins í Búnaðarbankanum. Það
sama má segja um félagana í Samson
vegna Landsbankans.
Kaupþing-banki hefur lítið hreyft sig
hér innanlands eftir að félagið var skráð í
Kauphöllinni f Stokkhólmi í Svíþjóð, það er
einna helst að hann hafi reynt að minnka
við sig í óskráðum félögum. Þannig seldi
bankinn Jóni Ásgeiri hlut í Fjárfestingar-
félaginu Stoðum sem m.a. er stærsti eig-
andi Kringlunnar. 33
27