Frjáls verslun - 01.02.2003, Page 29
Sigurður Einarsson, starfandi stjórnarformaður Kaupþings banka.
Kaupþing banki hefur komið mjög
við sögu í yfirtökutílraunum annarra
blokka í viðskiptalífi, sérstaklega þeirra
Baugsfeðga. Kaupþings banki hefur fjár-
fest í mörgum fyrirtækjum, bæði
skráðum og óskráðum, hér á landi. Þetta
var raunar eitt af því sem Svíarnir gagn-
rýndu þegar Kaupþing banki sameinað-
ist sænska ijármálafyrirtækinu JP Nor-
diska á síðasta ári og var skráð í Kaup-
höllinni í Stokkhólmi.
Mörgum hefur þótt Kaupþing banki
eiga óþarflega stóra eignarhluti í
mörgum fyrirtækjum hérlendis og
finnst mörgum sem bankinn sé „læstur
inni“ með þessa hluti. Ekki síst í ljósi
þess að eigið féð bankans var ekki
nema rúmir 18 milljarðar króna í lok
síðasta árs. Vegna þessara eignahluta í
fyrirtækjum á Islandi og vangaveltna
um seljanleika þeirra hafa ýmsir orðað
það þannig að Kaupþing banki sé ekki
eins sterkur og hann er stór.
Kaupþing banki er núna skráður á
hlutabréfamarkaðinn i Stokkhólmi,
fyrstur íslenskra hlutafélaga. Aðeins
eitt annað „íslenskt“ fyrirtæki er skráð
erlendis. Það er DeCODE sem skráð
er á bandaríska hlutabréfamarkaðnum
Nasdaq.
Núna er öldin önnur hjá sparisjóð-
unum í landinu frá því þeir áttu Kaup-
þing að fullu. Sparisjóðirnir hafa á
skömmum tíma misst meirihlutann í
þremur félögum: Kaupþingi, SP-ijár-
mögnun og Alþjóða líftryggingafélag-
inu sem er núna að mestu í eigu
Kaupþings banka.
Segja má að sparisjóðirnir séu aftur
komnir til uppruna síns; að vera
fremur litlar innlánsstofnanir sem lána
einstaklingum og smáum fyrirtækjum.
Samkvæmt lögum frá Alþingi skömmu
fyrir jól geta sparisjóðir eingöngu sam-
einast öðrum sparisjóðum. Þeir geta
hins vegar ekki sameinast banka nema
þeim verði fyrst breytt í hlutafélög.
Eftir Spron-storminn síðasta sumar
dettur fáum í hug að einhverjir spari-
sjóðir verði gerðir að hlutafélögum og
felldir inn í einhvern stóru bankanna.
Hins vegar þykir líklegt að margir
sparisjóðir verði sameinaðir á næstu
árum.
Fróðlegt verður að fylgjast með
framgangi Kaupþings banka á komandi
árum og hvar hann muni beita sér sem
valdablokk í viðskiptalífinu. Aætlað er
að um helmingur tekna þessa árs komi
af viðskiptum erlendis sem staðfestir
best að fyrirtækið leggur mesta
áherslu á að vaxa erlendis. I viðskipta-
lífinu er þó almennt talað um að
Kaupþing banki hafi áhuga á að sam-
einast öðrum banka og hefur Búnaðar-
bankinn oftast verið nefndur í því sam-
bandi. Það getur þó ekki gerst fyrr en í
fyrsta lagi fyrr eftir 21 mánuð, næstum
tvö ár, vegna skilmála í sölunni á Lands-
banka og Búnaðarbanka um að Sam-
son og S-hópurinn verði að eiga sína
hluti þar óbreytta þann tíma. [H
Kaupþing banki
Sextán stærstu hluthafarnir
1 Meiðurehf. (Bakkavör) ... 15,7
2 Arion verðbréfavarsla..... 12,3
3 Lffeyrissj. Bankastr. 7 ... 5,1
4 Kaupþing- fjárfestingav. ... 5,0
5 Kaupthing Luxembourg SA 4,B
6 Lífeyrissj. verslunarm. ... 3,4
7 Sparisjóðurinn í Keflavík ... 3,4
8 Bankaktieb. JP Nordiska... 2,8
9 Kaupþing hf.............. 2,6
10 Föroya Sparikassi ........... 2,3
11 Eignarh.fél. Brunab.fél. fsl. 1,7
12 Lífeyrissjó. sjómanna...... 1,7
13 Holt Holding SA.......... 1,4
14 Everest Equities......... 1,4
15 Sparisjóður Mýrasýslu ... 1,4
16 Bakkabræður sf........... 1,2