Frjáls verslun - 01.02.2003, Side 36
Jæja. Þá er víst bara eitt eftir.“ Og við
svo búið tók hann vatnsglasið sem
hann hafði drukkið úr og pússaði
vandlega með klútnum. Fundarmenn
hurfu skellihlæjandi á braut.“
Þessi gamansaga kemur fram í greina-
flokki Agnesar Bragadóttur,
blaðamanns á Morgun-
blaðinu, um yfirtökutilraunir
Jóns Asgeirs Jóhannessonar,
forstjóra Baugs, og Þorsteins Más
Baldvinssonar, forstjóra Samheija, á
TM og Islandsbanka. Sagan er mynd-
ræn, festist í minni og kemur upp í hug
flestra þegar þeir eru spurðir um greina-
flokk Agnesar.
Eftir fingrafarabrandarann í grein Agnesar
um vatnsglasið, sem pússað var með klút,
er slíkt glas að verða táknrænt fyrir valda-
blokkir almennt.
ATNSglasið
Sagan af vatnsglasinu undirstrikar hve
erfitt getur verið að skilgreina valda-
blokkir í íslensku viðskiptalífi og hvernig
þræðir liggja þvers og kruss á milli blokka.
Sennilega hefur þessi brandari og ályktun
Agnesar í kjölfarið um að Kolkrabbinn sé
vaknaður til lífsins orðið til þess að nafnið
Kolkrabbinn er að fá á sig aðra merkingu
en eignatengslin á milli Sjóvár-Almennra,
Eimskips, Skeljungs og Flugleiða; einfald-
lega þá að hann standi fyrir „gamla pen-
inga“ í þjóðfélaginu, hvar í valdablokk sem
eigendur þeirra kunna að vera.
Og líklega er vatnsglas, sem verið er að
pússa með klút, orðið táknrænt fyrir valda-
blokkir almennt. 33
VIÐSKIPTI MILLI BLOKKA
Aður var oft litið á valdablokkir út irá því sjónar-
horni að ekki væri aðeins verið að kaupa hluta-
fé í viðkomandi fyrirtæki heldur væri ekkert
síður verið að tryggja viðbótarviðskipti í leiðinni.
Þessi hugsunarháttur er á undanhaldi með auknum
kröfúm um arðsemi. Hver fjárfesting verður að
standa undir sér.
Viðskipti innan blokka eiga því ekki að koma til
nema þau séu þess virði og séu hagstæðust, hvort
sem horft er til langs eða stutts tíma. I síðasta tölu-
blaði Frjálsrar verslunar var fjallað um bflamarkað-
inn og kaup Sjóvár-Almennra á 25% eignarhlut í R
Samúelssyni, Toyota-umboðinu.
Sú spurning vaknaði hjá öllum hvað Sjóvá-
Almennar væru að gera þarna. Var verið að kaupa
sér viðbótarviðskipti í formi aukinna bflalána og
trygginga hjá kaupendum Toyotabfla eða átti ijár-
festingin ein og sér að standa undir sér? I viðtali við
sjónvarpsstöðvarnar vakti athygli að Einar Sveins-
son, forstjóri Sjóvár-Almennra, tók sérstaklega fram
að um væri að ræða fjárfestingu sem ætti ein og sér
að standa undir sér. Ekki voru allir á eitt sáttir með
þetta svar og töldu að viðbótarviðskipti héngju á
spýtunni. Hvað um það, í almenningshlutafélögum
eiga allir hluthafar rétt á því, hver svo sem hlut-
hafinn er, að einum hluthafa sé ekki hyglað. [B
36