Frjáls verslun - 01.02.2003, Síða 47
NÆRMYND ÁSIVIUNDUR STEFÁNSSON
Asmundur Stefánsson
börn: Gyðu, sem er viðskiptafræðingur og er í
barneignarleyfi, og Stefán, sem er þjóðréttar-
fræðingur í sjávarútvegsráðuneytinu. Maður
Gyðu er Matthías Asgeirsson, kerfisfræð-
ingur hjá CCP, og eiga þau þrjár dætur.
Persóna Asmundur er eldklár, vand-
aður, traustur og góður strákur, heil-
steyptur og heiðarlegur, samviskusamur
og áræðinn ákafamaður sem er fljótur að
hugsa og sjá nýja fleti á hlutunum. Hann er
mjög fróðleiksfús og vel lesinn enda
kafar hann gjarnan djúpt
ofan í það sem vekur áhuga
hans, er að vissu leyti dellu-
karl í því sem hann tekur
sér fyrir hendur. Hann er
fljótur að mynda sér skoð-
anir, verður mjög sann-
færður um að hans skoðun
sé sú rétta og liggur þá
ekkert á henni heldur
byrjar að predika. Viðmæl-
endur Frjálsrar verslunar
segja þó að hann sé alltaf til-
búinn til að virða skoðanir
annarra. Þór bróðir hans segir að hann sé mjög rökfastur og
það sé ekki hægt að hnika honum hafi hann bitið eitthvað í
sig, hann sé ákveðinn og fastur fyrir, ræðinn og skemmti-
legur. Hann verði aldrei einstrengingslegur. Guðrún segir að
Ásmundur geti verið mjög óþolinmóður. Hann sé hreinskil-
inn og þoli illa að vinna með fólki sem ekki kemur hreint
fram. Þeir sem þekkja Ásmund vel segja að hann hafi leið-
togahæfileika en hann hafi nýtt þá sorglega lítið í seinni tíð.
„Eg hreifst mikið af honum og mér finnst slæmt að menn
eins og hann séu ekki nógu áberandi í þjóðfélaginu, taki ekki
forystuna meira til sín. Mér finnst vera skortur á hæfum
stjórnendum í pólitík og ég vil sjá í eldlínunni menn eins og
Ásmund, vel menntaða, vel gefna menn með myndugleika,
sem geta talað af reynslu og leiðbeint," segir Lára V. Júlíus-
dóttir hrl., sem starfaði með Ásmundi hjá ASI.
Grétar Þorsteinsson, forseti ASI, segir að Ásmundur hafi
verið vel liðinn og haft orð á sér fyrir að hafa staðið sig vel.
Ásmundur á gott með að lesa yfir mönnum með miklum sann-
færingarhita, hann er „sannfærandi málafylgjumaður."
Ásmundur er metnaðargjarn og er sagður eiga gott með að
taka ákvarðanir.
Fæddur I Reykjavík 21. mars 1945:
Fjölskylda Kvæntur Guðrúnu Guðmundsdóttur, fi'amlívæmda-
stjóra Þjóðleikhússins. Þau eiga tvö börn og þrjú barnabörn.
Menntun Stúdentspróf (MR 1965), cand. polit. í þjóðhagfræði
(Kaupmannahafnarháskóli 1972).
Starf Framkvæmdastjóri Framtaks fjárfestingabanka.
Ahugamál Lestur og sagnfræði, ferðalög.
hann verið hagfræðingur (1974-1978) og fram-
kvæmdastjóri og forseti ASI (frá 1979). Hann
var hagfræðingur hjá Hagvangi (1972-1974)
og kenndi við MH og HI. Ásmundur er fv.
varaþingmaður fyrir Alþýðubandalagið.
Stjórnandi Ásmundur hefur gríðar-
lega langan og góðan feril í félagsmál-
unum, bæði innan verkalýðshreyfingar-
innar og Alþýðubandalagsins. Hann
hefur tamið sér gott lag að vinna með fólki.
,Ásmundur er frábær stjórnandi.
Hann var mjög áhugasamur
og lagði allt sitt í hlutina, var
vakinn og sofinn og hlífði
aldrei sjálfum sér. Áhuginn
var svo mikill að hann smit-
aði út frá sér og hreif mann
með,“ segir Lára.
Grétar segir að
Ásmundur hafi verið sam-
viskusamur og fylginn sér.
Hann hafi að sumu leyti verið
maður málamiðlana. Hann
hafi borið sig saman við
menn í stað þess að æða
áfram og fái þá einkunn að hafa haldið á málum með farsælum
hætti. Það hafi verið umdeilt þegar hann hafi verið kjörinn for-
seti ASÍ því að hann hafi ekki komið beint úr röðum félaganna
í hreyfingunni en honum hafi tekist að treysta sig í sessi og
komist vel í gegnum þetta tímabil. Undir þetta tekur Lára.
„Það voru ákveðnir fordómar í gangi gagnvart ungu og
menntuðu fólki á þessum árum en ég held að honum hafi
tekist að ávinna sér hylli og virðingu allra sem hann vann
með,“ segir Lára.
Gallar Ásmundur er viðkvæm og tilfinningasöm persóna
sem hefur gjarnan fundist að sér vegið þegar gagmýni er
annars vegar, t.d. í starfinu hjá ASÍ. Hann á það til að telja sig
vita betur en aðrir. Guðrún eiginkona hans segir að hann hafi
átt til að vera of beinskeyttur, segja skoðun sína hispurslaust
þannig að fólk hafi oft átt erfitt með að taka því. Þetta hefur þó
slípast mikið með árunum. Hann var lengi alltof feitur og því
latur, hreyfði sig ekki mikið. Ásmundur grennti sig fyrir íjór-
um til fimm árum. Á ASI-árunum átti hann það til að vera illa
til fara og stakk í stúf í t.d. stuttermabol en þetta hefur ijátlast
af honum.
Menntun Stúdentspróf (MR 1965), cand. polit. í þjóðhag-
fræði (Kaupmannahafnarháskóli 1972).
Ferlll Ásmundur er framkvæmdastjóri EFA, sem
sameinaðist Þróunarfélagi Islands og heitir nú Framtak ijár-
festingabanki. Hann sat í bankaráði Islandsbanka fyrir hönd
ASI og var framkvæmdastjóri bankans 1993-2001. Áður hafði
Áhugamál Lestur, sérstaklega um sagnfræði og fornleifar.
Ásmundur er Biblíufróður og hefur lesið mikið af fræðiritum
um árin í kringum Krists burð og trúverðugleika þess að
Kristur hafi verið til. Ásmundur kaupir mikið af bókum.
Ferðalög. Á yngri árum var hann félagi í Æskulýðsfylking-
unni og svo Alþýðubandalaginu en pólitískur áhugi hefur
minnkað með árunum. 33
47