Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.2003, Síða 53

Frjáls verslun - 01.02.2003, Síða 53
SÉRFRÆÐINGAR SPÁ í SPILIN Spwmngin til Eddu Rósar Karlsdóttur, forstöðumarms greiningardeildar Búnaðarbankans, er þessi: Margir telja að hækka þurfi vexti verulega þegarfyrirhugaðar stór- iðjuframkvœmdir verða komnar á skrið til að vinna á móti þeirri þenslu í efnahagslífinu sem fylgir framkvæmdunum, þ.e. vegna launa- hækkana og verðbólgu. Ertþú á öðru máli? Uaxtahækkanir vegna stóriðju gætu rutt í burtu fyrirtækjum Frá því horfið var frá fastgengisstefnu Seðlabankans í lok mars 2001 hefur gengi krónunnar spilað stærra hlut- verk í aðlögun efnahagslífsins en nokkurn óraði fyrir. Gengisaðlögunin hefur að mínu mati flýtt mjög fyrir nauðsynlegri aðlögun að innra og ytra jafnvægi í þjóðarbú- skapnum. Eftir á að hyggja var hið svokall- aða „yfirskot" gengisvísitölunnar á seinni hluta ársins 2001 hinn mesti happafengur, því að við það lokaðist viðskiptahallinn. Mikil styrking krónunnar í kjölfarið kæfði síðan háa verðbólgu. A þessum tíma hafa samkeppnis- og útflutningsgreinarnar upp- lifað langa rússíbanaferð, þar sem gengis- sveiflur hafa kippt stoðunum undan öllum rekstrar- og afkomuáætlunum. Stóriðjuframkvæmdirnar nú eru þær fyrstu sem verða í umhverfi fljótandi gengis íslensku krónunnar. Um er að ræða fram- kvæmdir fyrir um 300 milljarða króna (37% af vergri landsframleiðslu), sem verða að fullu fjármagnaðar erlendis frá. Um þriðj- ungur upphæðarinnar mun flæða inn í landið til kaupa á innlendum framleiðslu- þáttum: vinnu, efni og þjónustu. Þetta vænt- anlega innflæði hefur nú þegar styrkt gengi krónunnar og margt bendir til að sú styrk- ing geti haldið áfram. Þetta leiðir til versn- andi stöðu útflutnings- og samkeppnis- greina og framkallar ruðningsáhrif og þar með aukið rými í hagkerfinu sem dregur úr þensluáhrifum framkvæmdanna. Við þetta verður hlutverk Seðlabankans annað og minna en áður hefur verið talið. Hlutverk opinberra ijármála verður hins vegar mun meira. Verðbólgumarkmið peningastefnunnar og fljótandi gengi er fyrirkomulag sem hefur reynst vel í mörgum löndum. I þessu sambandi er þó mikilvægt að hafa í huga að markmið þessara landa er verðstöðugleiki fyrir þá atvinnustarfsemi sem náð hefur að festa sig í sessi á hverjum tíma. Nýsköpun og hagvöxtur byggir siðan yfirleitt á innri vexti og framleiðniþróun en ekki byltingar- kenndum stökkum eins og gjarnan ein- kenna framvinduna hér á landi. Fyrirhugaðar stóriðjuframkvæmdir, þar sem verið er að taka í notkun nýjar orku- lindir, eru dæmi um ytri vöxt og má líkja við aðstæður fyrri áratuga þegar útfærsla land- helginnar stóð að baki miklum hagvexti. Hagvöxtur og væntanleg spenna næstu ára byggir á tímabundnum framkvæmdum og það ijármagnsinnflæði sem af því leiðir getur leitt til þess að gengi krónunnar þróist úr takt við það sem talist getur ásætt- anlegt fyrir aðrar atvinnugreinar í landinu. Nauðsynlegt er að horfast í augu við þá staðreynd að háir vextir hérlendis hvetja til erlendrar lántöku sem aftur styrkir gengi krónunnar. Verði gripið til vaxtahækkana í mótvægisskyni er því ekki einungis verið að ryðja tímabundið úr vegi ijárfestingum sem ekki standast háa vexti, heldur einnig fyrirtækjum sem skapa gjaldeyristekjur og gætu verið arðbær þegar gengi krónunnar er nær jafnvægi. Því er æskilegt að stjórn- völd peninga- og ríkisijármála leiti í samein- ingu leiða til að draga úr þörf á vaxtahækk- unum Seðlabankans á framkvæmdatíma stóriðju. Það er að mínu mati óásættanlegt að sitja hjá aðgerðalaus. B5 Edda Rós Karlsdóttir, for- stöðumaður greiningardeildar Búnaðarbankans, segir að stóriðjuframkvæmdirnar nú séu þær fyrstu sem verða í umhverfi fljótandi gengis íslensku krónunnar. Um er að ræða framkvæmdir fyrir um 300 milljarða króna (37% af vergri landsframleiðslu), sem verða að fullu fjármagnaðar erlendis frá. Nauðsynlegt er að horfast í augu við þá staðreynd að háir vextir hérlendis hvetja til erlendrar lántöku sem aftur styrkir gengi krónunnar. 53
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.