Frjáls verslun - 01.02.2003, Blaðsíða 59
KÖNNUN STJÓRNENDUR
Hinn dæmigerði forstjóri er karlmaður á aldrinum 36-50 ára. Hann klæðist jakkafötum í
vinnunni og eyðir undir 250 þúsundum króna í fatnað á ári. Hann er vel menntaður, með
háskólapróf eða framhaldsnám úr háskóla og vinnur óhemju mikið, jathvel um og yfir
60 klukkustundir á viku og gerir ekki mikinn greinarmun á virkum dögum og helgum. Hann
ekur gjarnan um á jeppa, t.d. Land Cruiser 100 eða MMC Pajero. Hann hefur helst dálæti á
Davíð Oddssyni forsætisráðherra sem leiðtoga utan fyrirtækjarekstrar, jafnvel líka Ingibjörgu
Sólrúnu Gísladóttur, forsætisráðherraefni Samfylkingarinnar. Honum þykir Össur vel rekið
fyrirtæki og Þórólfur Árnason og Brynjólfur Bjarnason dæmi um hæfustu stjórnendur
fyrirtækja þessa lands. Hvað eigin stjórnunarstíl varðar telur stjórnandinn sig dreita ábyrgð
mjög vel og er stoltur af því að koma hlutunum til framkvæmda. Hann telur sig hafa náð langt
vegna færni í starfi og reynslu sinnar og þess að vera réttur maður á réttum stað á réttum
tíma en aðeins tíu prósent telja að það sé mikilli vinnu að þakka. Forstjóranum þykir verst
hvað álag og streita er mikið í starfinu og honum sárnar sömuleiðis áhrifin á tjölskyldulífið.
Hann reynir þó að sinna Jjölskyldu og vinum vel í tritíma sínum og stefnir að því að hætta að
vinna rétt um og eftir sextugt.
Þessa lýsingu má lesa úr könnun sem Þröstur Olaf Sigurjónsson, ritstjóri Sjónarhóls -
fréttarits KPMG, gerði á viðhorfum og lífsstíl íslenskra stjórnenda. Spurningafisti var sendur
til forstjóra, flármálastjóra og annarra æðstu yfirmanna hjá 300 stærstu fyrirtækjum lands-
ins. í svörunum kom í ljós hve fáar konur sinna stjórnun, þær voru aðeins 12 prósent.
StjÓ
- Hvað kom þér mest á óvart í niðurstöðum könnunarinnar?
„Það er athyglivert að sjá hversu fáir ungir stjórnendur eru í þessum hópi. Tíðrædd
æskudýrkun virðist ekki hafa náð inn
fyrir ráðir íslenskra stjórnenda, þar sem
aðeins 13% þeirra eru yngri en 36 ára.
Síðan tel ég það vera stórmerkilegt að
kvenkyns stjórnendur eiga í 75% tilfella
maka sem jafnframt eru stjórnendur
nand
Vinna um helgar
Huað hefur komið þér áfram?
Karlar
Færnin skíptir miklu máli hvað varðar
velgengni í starfi, reynslan sömuleiðis.
Karlar telja þó færnina skipta minna máli
en konur. Þær telja það að uera á réttum
stað á réttum tíma mikiluægari en við-
eigandi reynsla.
eða þá menn í sjálfstæðum rekstri. Get-
ur það verið tilviljun ein sem hefur ráð-
ið þessu? Sækja konur, sem ætla sér
áfram í viðskiptalífinu, styrk í það að ná
sér í maka sem jafnframt gegnir sömu
Menntun
Háskólapróf 45,6%
| MBA/MA/MS 29%
Stúdentspróf 9,3%
Ýmis námskeið 1,9%
Annað 12,3%
Ph.D. 1,9%
Stjórnandinn er uel menntaður, með
háskólapróf eða framhaldsnám úr háskóla.
59