Frjáls verslun - 01.02.2003, Page 67
Sléttasta gólf í heimi „Gólfið skiptist í tvennt. Á hluta húss-
ins er venjulegt gólf þar sem gerðar voru hefðbundnar kröfur
um að hæðarmismunurinn sé plús/mínus sentimetri yfir ailt
gólfið. Þar sem rekkarnir eru - sem eru um 9 þúsund fermetrar
- er um „súperflatt" gólf að ræða. Þar má hæðarmunurinn vera
einn plús/mínus millimetri á metra. Þetta eru kröfur sem
þekkjast ekki á Islandi. Akveðið var að leita til hollensks fyrir-
tækis, van Berlo, sem sérhæfir sig í steypu á iðnaðargólfum.
Ástæðan fyrir þessari nákvæmni eru lyftararnir - rekkarnir eru
15 metra háir, lyftararnir lyfta upp í 13,5 metra hæð og þeir geta
keyrt með bretti í hæstu stöðu. Lyftararnir myndu sveiflast ef
gólfið væri ójafnt.“
Um 3.100 rúmmetrar af steypu frá BM Yallá fóru í gólfið.
„Samvinna þessara hollensku undirverktaka og hönnuða
þeirra sem komu að gólfinu, ásamt BM Vallá og okkar verk-
þekkingu í undirbúningi og við verkstjórnina skilar sér í gólfi
sem ég myndi telja að væri tullkomið."
Vöruhótelið er tölvustýrt og á að tryggja hámarksnýtingu.
Strikamerki eru á öllum rekkum. „Afgreiðslutíminn er styttur
með þessu „súperflata" gólfi.
Eg tel að við séum að skila mjög góðu verki á stuttum tíma
sem er okkur til sóma og Eimskip væntanlega til mikillar
ánægju.“S3
Gunnar Bachmann hjá Eimskip
„Vöruhótelið býður öllum þeim sem þurfa að halda birgðir -
hvort sem það er innflytjandi með vörur til endursölu, inn-
lendur framleiðandi eða aðili með rekstrarvörulager - að
haldið sé utan um lager og dreifingu viðkomandi hjá Vöru-
hótelinu að hluta eða öllu leyti,“ segir Gunnar Bachmann,
framkvæmdastjóri Vöruhótelsins ehf. „Ástæða þess að við
bjóðum upp á þessa þjónustu er að við sáum þörf á mark-
aðnum og höfum jafnframt séð þessa þróun erlendis frá.“
,AUflest fyrirtæki búa við síbreytilegar markaðsaðstæður.
Afleiðing þess er að miklar sveiflur geta orðið í geymslu og
dreifingarþörf frá einum tíma til annars. Af þeim sökum er
þörf fyrir mikinn sveigjanleika til að geta brugðist nægilega
fljótt við ef markaðsaðstæður breytast. Þegar fyrirtæki kaupa
eða leigja húsnæði þá er verið að horfa til mjög langs tíma, allt
upp í 25 ár við ijárfestingu í lagerhúsnæði. Strax við undir-
skrift slíks samnings er húsnæðiskostnaðurinn orðinn að
föstum kostnaði, ásamt rafmagni, hita, viðhaldi og öðrum
rekstrartengdum þáttum.“
Vöruhótelið ehf. býður fyrirtækjum að greiða aðeins fyrir
það geymslurými sem það hefur þörf fyrir hvetju sinni.
„Þannig er mjög hratt hægt að bregðast við aukinni eða minni
sölu og láta lagerkostnaðinn fylgja rekstrinum. Á sama tíma
nær viðskiptavinur Vöruhótelsins fleiri jákvæðum áhrifum.
Allur kostnaður við birgðahald verður sýnilegur og íjármagns-
binding minnkar þar sem ekki þarf að eiga húsnæði fyrir
lager, lyftara, tæki, tölvukerfi eða hillukerfi. Obein áhrif verða
einnig, s.s. sett verða skýr þjónustumarkmið, engin rýrnun,
og fókus stjórnenda verður skýrari.
Ölgerðin Egill Skallagrímsson ehf. hefur undirritað samn-
ing við Vöruhótelið um að það taki að sér birgðahald þess
næstu fjögur árin. Ölgerðin er með eigin framleiðslu á gosi,
vatni, áfengi og bjór auk þess sem þeir flytja inn mikið af
áfengi, bjór og öðrum vörum. Allt þetta verður nú geymt á
sama stað. Þá er sama hvort varan (áfengi og bjór) sé staðsett
á frísvæði eða á „tollafgreiddu svæði“. Vöruhótelið mun sjá
um að lágmarka það magn sem á hverjum tíma er tollafgreitt
af innfluttri vöru Ölgerðarinnar. Þannig verður hægt að lág-
marka fjármagnsbindingu tollgjalda í innfluttum lager. Vöru-
hótelið mun taka við pöntunum Ölgerðarinnar til viðskiptavina
þeirra, taka þær til og gera þær tilbúnar til afgreiðslu til við-
skiptavina Ölgerðarinnar. Ölgerðin mun sjá sjálf um dreifingu
sinna vara. Á sama tíma mun Vöruhótelið fylgjast með fram-
leiðsludegi og afgreiða í samræmi við síðasta söludag."
Auk þess að bjóða upp á umsjón með lagerhaldi tekur
Vöruhótelið að sér dreifingu, bæði á öllu höfuðborgarsvæðinu
og úti á landi. Með samstarfsaðilum er það með 80 daglega
viðkomustaði úti á landi. SH
Gunnar Bachmann, framkvæmdastjóri Vöruhótelsins.
67