Frjáls verslun - 01.02.2003, Blaðsíða 68
Björgólfur Guðmundsson eyddi sínum fyrsta virka vinnu-
degi sem nýkjörinn stjórnarformaður Landsbankans á kynn-
ingarfundi með 90 erlendum fjárfestum í London.
Björgólfur Thor Björgólfsson: „Það er svigrúm til að auka
hagnað Landsbankans og arðsemi eiginfjár. Landsbankinn á
augljós tækifæri komi til frekari uppstokkunar í íslenska
bankakerfinu sem nýtur mikils trausts af hálfu Moody's."
■
Halldór Jón Kristjánsson, bankastjóri Landsbankans: „Mark-
miðið að koma hlutfalli kostnaðar af tekjum niður fyrir 60%
á árinu. Arðsemi eiginfjár Landsbankans eftir skatta var
13,5% á síðasta ári."
Geir H. Haarde fjármálaráðherra: „Einkar ánægjulegt hve
einkavæðing ríkisbankanna hefur tekist vel. Stöðugleikinn í
íslensku efnahagslífi er mikill. Verðbólgan er lítil og útlit er
fyrir 2,5 til 3% hagvöxt á næstu árum, m.a. vegna stóriðju-
framkvæmda."
Samson
Efitír Jón G. Hauksson
Björgólfur Guðmundsson eyddi sínum fyrsta virka
vinnudegi sem nýkjörinn stjórnarformaður Lands-
bankans í London þar sem hann bauð hann hátt í 90
erlenda ijárfesta frá öllum helstu bönkum Bretlands vel-
koma á kynningarfund bankans.
Þessi fundur var á vissan hátt táknrænn fyrir þá áherslu
sem Landsbankinn leggur á Bretland í útrás sinni.
Landsbankinn á einn banka í London, Heritable-bankann,
og hefur sú ijárfesting gefist einkar vel. Heritable-bankinn
lánar til fárra en Jjárhagslega öflugra verktaka og fyrirtækja
í London
í byggingarstarfsemi. I kortunum er að víkka út starfsemina
frekar og er m.a. horft til íbúðalánamarkaðarins í Bretlandi.
Þar gæti Landsbankinn raunar öðlast góða reynslu sem
kæmi sér sér vel verði íbúðalánakerfið á íslandi stokkað upp
á næstu árum og fært undir bankana. Umræður um slíkt
skjóta alltaf upp kollinum annað slagið. Með starfsemi
Heritable-bankans í London er Landsbankinn augljóslega að
dreifa áhættunni og bæta við tekjupósta sína.
Skýr Skilaboð á fundinum Með Björgólfi í för voru félagar
hans í Samson, þeir Björgólfur Thor Björgólfsson og
Magnús Þorsteinsson, sem og Geir Haarde ijármálaráð-
68