Frjáls verslun - 01.02.2003, Qupperneq 69
Yfir 90 erlendir fjárfestar frá öllum helstu bönkum Bret-
lands mættu á kynningarfundinn sem haldinn var í City,
breska fjármálahverfinu.
herra, Halldór Jón Kristjánsson bankastjóri og Brynjólfur
Helgason, framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Landsbankans.
Skilaboðin með kynningarfundinum í London voru skýr:
Nýir, ráðandi eigendur bankans voru mættir til að kynna
sig, stefnu sína og fyrir hvað þeir standa sem alþjóðlegir ijár-
festar. Frjáls verslun sat fundinn í boði bankans, en hann var
haldinn í City, ijármálahverfinu í London.
Björgólfur Thor um dreiföa eignaraðild Mikla athygli vakti
SÚ yfirlýsing Björgólfs Thors Björgólfssonar á fundinum að
Samson hygðist ekki eiga nema urn 10% í bankanum til
frambúðar og ætlaði að selja öðrum fjárfestum, m.a.
íslenskum lífeyrissjóðum, af 45,8% hluta sínum eftir fjögur til
fimm ár. Þannig stefndi Samson að því að eignaraðildin í
bankanum yrðu sem dreifðust í framtíðinni.
Björgólfur Thor Björgólfsson útskýrði í ræðu sinni hvers
vegna Samson hefði fjárfest í Landsbankanum. Hann kvað
Mark Sismey-Durrant, 43 ára, er nýr bankastjóri Heritable-
bankans í London, dótturfélags Landsbankans í London.
Bankinn er 126 ára og leggur áherslu á lán til byggingafram-
kvæmda. Viðskiptavinir bankans eru aðeins nokkrir tugir.
Nýr bankastjóri
Heritable-bankans
Mark Sismey-Durrant er nýr bankastjóri Heritable-
bankans í London. Mark er 43 ára, tveggja barna
faðir. Eiginkona hans er tannlæknir. Mark tók við af
Martin H. Young sem bankastjóri Heritable-bankans sl.
haust. Martin hafði starfað í bankanum í 25 ár, þar af verið
bankastjóri frá árinu 1997. Hann situr núna í bankaráði
bankans sem varaformaður.
Mark Sismey-Durrant var ekki valinn úr hópi umsækj-
enda heldur var hann veiddur eins og það er kallað, („head-
hunting"), það var einfaldlega hringt í hann og hann
spurður hvort hann vildi taka starfið að sér. Það varð úr.
Mark hóf feril sinn hjá Midland bankanum og réðst síðan til
Sun Bank Plc. sem bankastjóri á árunum 1995 til 2001 er
hann hóf störf hjá Sun Life Financial of Canada. Þaðan lá
leiðin til Heritable-bankans.
Heritable-bankinn á sér merka sögu. Hann var stofnaður
í Skotlandi árið 1877, hann er því 126 ára. Bankinn leggur
áherslu á lán til byggingaframkvæmda og er ijöldi viðskipta-
vina aðeins nokkrir tugir hverju sinni þótt verkefnin séu
fleiri víða um Bretland. Lán bankans eru yfirleitt ekki lengri
en til 12 eða 18 mánaða.
Mark segir að Heritable bankinn hafi hagnast um 3,3
milljónir punda á síðasta ári, eða um 412 milljónir króna.
„Hagnaður jókst um 25% á síðasta ári og arðsemi eiginijár
fýrir skatta hafi verið um 20%. Bankinn stendur afar vel; við
erum með fáa en trausta viðskiptavini sem standa við skuld-
bindingar sínar þannig að afskrifuð lán eru í algjöru lág-
marki. Þá er aðhald í kostnaði hér mikið.“
Hann segir að bankinn hafi sett sér það markmið að
ijölga viðskiptavinum og lengja lánstíma lána án þess að
slaka á kröfum um áhættu. Hann telur vaxtarmöguleika í
framtíðinni liggja í íbúðarlánum, þannig að bankinn láni
ekki eingöngu til þeirra sem reisa byggingar, heldur líka til
þeirra sem eignast þær. Auk ijármögnunarstarfsemi af
þessu tagi liggi líka ákveðin tækifæri á sviði líftrygginga-
starfsemi. ffl
69