Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.2003, Page 82

Frjáls verslun - 01.02.2003, Page 82
„Leiguformið hefur notið mikiila vinsælda erlendis um nokkurn tíma og greinilegt er að einstaklingar og fyrirtæki hér heima hafa tekið við sér og meta kostina sem þessu formi fylgja mikils," segir Bergþór Ólason, ráðgjafi hjá Lýsingu. Lýsing: Rekstrarleiga - áhugaverður kostur Lýsing hf. var stofnuð í septem- ber árið 1986 af Búnaðarbanka íslands hf., Landsbanka íslands hf., Vátryggingafélagi íslands hf. og Sjóvá-Almennum tryggingum hf. Lýsing er nú alfarið í eigu Búnaðar- banka Islands hf. Fyrirtækið ijár- magnar atvinnutæki iyrir fyrirtæki og einstaklinga í atvinnurekstri og fólksbíla iyrir einstaklinga. Það er ekki langt síðan rekstrar- leiga bifreiða var nær eingöngu ætluð fýrirtækjum en upp á síðkastið hefur færst í vöxt að einstaklingar notfæri sér þessa leið til að vera á góðum bíl án þess að þurfa að standa í miklu umstangi við kaup og sölu. Það er einnig vinsælt að vinnu- veitandi taki bíl á leigu og starfs- maður sé með hann sem hluta af launum. Eftir að samningur er kominn á, en gengið er frá öllum pappírum í viðkomandi bílaumboði, Einfalt form Bergþór segir leiguformið ótvíræðan kost fyrir einstaklinga þar sem með því sé kostnaðurinn við að eiga og reka bílinn fyrirsjáanlegur. „Því er þannig varið í dag að menn horfa meira á kostnaðinn við að eiga bíl sem neyslu en ijárfest- ingu og vilja hafa það á hreinu hver hann er,“ segir Bergþór. „Það fylgja því talvert minni áhyggjur að leigja bílinn en eiga hann, sérstaklega þegar tekið er tillit til þjónustupakkans sem fylgir með honum. Þar má telja smur- og þjónustuskoðanir, dekkjaskiptingar og auka dekkjagang. Einstaklingurinn er þar að auki alltaf á nýlegum bíl og þarf ekki að hafa áhyggjur af kostnaðarsömu viðhaldi, svo ekki sé talað um að losna við það umstang sem fylgir því að selja bíl þegar skipt er um. Niðurstaðan er sú að þetta er ein- falt form sem býður upp á mikið öryggi, þægindi og fyrirsjáanleg útgjöld." Algengast er að bílaumboðin geri þriggja ára samninga við viðskiptavini sína en þó getur lengd tímans verið önnur. Almennt lækkar mánaðarleiga eftir því sem samningur er lengri, þvi hefur 36 mánaða leiga notið meiri vin- sælda en td. 24 mánaða leigutími. Skattarnir Sé leigutaki einstak- lingur kallar það ekki á sérstakar til- færslur í skattframtali. Það sem þarf að hafa í huga er að bifreiðin er ekki skráð skattskyld eign og samningur- inn ekki sem skattskyld skuld. Ef ein- staklingur fær greiddan ökutækja- styrk vegna bifreiðar sem hann hefur til umráða og er í rekstrarleigu, getur hann farið fram á endurgreiðslu á greiddri staðgreiðslu við framtals- gerð eins og um hans eigin bifreið væri að ræða. &9 Það fylgja því talvert minni áhyggjur að leigja bílinn en eiga hann, sérstaklega þegar tekið er tillit til þjónustupakkans sem fylgir með honum við rekstrarleigu. Kostir við rekstrarleigu: 1 Lítil fjárbinding. 2 Engin útborgun. 3 Engin stimpilgjöld. 4 Aðeins mánaðarlegar greiðslur. 5 Kostnaður vegna bifreiðar er fyrir- sjáanlegur. 6 Reglulegt þjónustueftirlit innifalið í mánaðargreiðslum. 7 Ávallt ný bifreið (nýleg). 8 Einfalt að endumýja bifreið í lok samningstíma. er sú þjónusta sem veitt er framkvæmd í umboði bifreiðar- innar og í lok samnings kaupir umboðið bifreiðina af Lýsingu. „Lýsing reið á vaðið í apríl 2002 með nýja lausn sem kallast bílasamningur plús,“ segir Bergþór Olason, ráðgjafi hjá Lýs- ingu. „Sú lausn er nálgun á rekstrarleigu fyrir einstaklinga og sameinar kosti bílaláns og rekstrarleigu en við erum að þróa þetta enn frekar þessa dagana. Rekstrarleiga til einstaklinga fer af stað núna í mars 2003 og í því rekstrarleiguformi verða valkostir fyrir einstaklinga sem ekki er mögulegt að bjóða fyrirtækjum upp á, valkostir sem auka sveigjanleika samn- ingsins, en hefðbundin rekstrarleigusamningur er óuppsegj- anlegur og bindur því leigutaka í þann tíma sem samningur er gerður. Þetta verður mjög áhugaverð nálgun á rekstrarleigu fyrir einstaklinga sem við hjá Lýsingu ætlum að bjóða upp á og hvet ég fólk sem er í bílahugleiðingum að kynna sér hana enn frekar á heimasíðu okkar eða í bílaumboðunum." 82
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.