Frjáls verslun - 01.02.2003, Side 88
hjóladrif gefur ekki aðeins yfirburða eigin-
leika í akstri á vegleysum, heldur einnig
mikið öryggi og bætir aksturseiginleika á
vegum með bundnu slitlagi. Touareg er
búinn loftpúðafjöðrun með stillanlegri veg-
hæð og skynvæddum stjórnbúnaði sem auð-
veldar akstur upp og niður brekkur.
Enn ein viðurkenning til Touareg Þessar við-
urkenningar eru mikils virði fyrir
Volkswagen, en með Touareg staðfestir
Volkswagen innreið sína í lúxusbílaflokk og
Hekla:
Touareg hlaut gullna stýrið
Volkswagen Touareg var heimsfrum-
sýndur hér á Islandi í nóvember 2002
en Hekla var fyrsta Volkswagen
umboðið í heiminum til að sýna jeppann.
Touareg dregur nafn sitt af ættbálki í
Sahara-eyðimörkinni, sem oft eru kallaðir
riddarar eyðimerkurinnar. Þeir eru frægir
fyrir siðvenjur sínar, stolt, gáfur og virðuleika samhliða eigin-
leikum til að takast á við erfiðar aðstæður. Með nafninu eru
undirstrikaðir eiginleikar þessa nýja fólksbíls Volkswagen til að
takast á við hinar erfiðustu aðstæður.
Gullna Stýrið Hinn nýi Volkswagen Touareg jeppi hefur
hlotið ýmsar viðurkenningar á þeim fáu mánuðum sem hann
hefur verið á markaði. í kosningu sem þýska vikuritið (Bild am
Sonntag) stóð fyrir hlaut hinn nýi jeppi frá Volkswagen hina
virtu viðurkenningu Gullna stýrið. Meira en þriðjungur
atkvæða féll Touareg í skaut, sem tryggði honum fyrsta sætið
með gott forskot á BMW X5 og Porsche Cayenne sem komu
næstir.
Jeppaflokkur:
1. Volkswagen Touareg 29,4% atkvæða
2. BMWX5 22,1% atkvæða
3. Porsche Cayenne 18,0% atkvæða
Gullna stýrið er ekki eina viðurkenningin sem Touareg hefur
hlotnast því lesendur hins virta bílablaðs „OFF ROAD“ völdu
nýlega eftirlætis jeppana af árgerð 2003 í ýmsum flokkum. Tou-
areg sem tók þátt í þessu vali í fyrsta sinn hoppaði strax upp í
fyrsta sæti í lúxusflokki.
Það eru ýmsir þættir sem skipa Touareg fremstum meðal
öflugra keppinauta. Touareg er búinn einum fullkomnasta
aldrifsbúnaði sem völ er á í dag. Það er búið þremur mismuna-
drifslæsingum og kallað af Volkswagen 4XMotion. Aflið frá vél-
um Touareg er flutt til hjólanna um sítengt aldrif. Þetta fjór-
keppir þar óhræddur við BMW, Mercedes
Benz og fleiri. Bílaframleiðendurnir Volks-
wagen og Porsche voru samferða í hönnun
sinni á jeppum sínum en bæði Touareg og
Cayenne voru kynntir í lok síðasta árs.
Aflmesta dísilvél I fólksbíl í heimi Tou
areg er í boði með magnaðri dísilvél, þeirri öflugustu í flölda-
framleiddum fólksbíl í heimi í dag. Sú vél er 5 Ktra V10 TDI,
hún gefúr 313 hestöfl og snúningsvægi er hvorki meira né
minna en 750Nm við aðeins 2000 snúninga. í Touareg standa
nú til boða ijórar eftirfarandi gerðir véla: 3.2-lítra, 220 hestafla
V6 bensínvél með 305 Nm snúningsvægi, ný 4.2-lítra, 310 hest-
afla, V8-bensínvél með 410 Nm snúningsvægi, 2,5-litra dísilvél
með forþjöppu, millikæli og dæluspíssum, sem afkastar 174
hestöflum og hefur 400 Nm snúningsvægi og að lokum áður-
nefhd V-10 strokka dísilvél.
Þrír bílar í einum Með Touareg hefur Volkswagen náð því
markmiði sínu að skapa alhliða bíl með því að sameina þrjá
meginkosti; frábæra aksturseiginleika á vegi, bestu jeppa-
eiginleika í akstri á vegleysum og allt þetta í einum og sama
lúxusbílnum.
Frábærar móttökur hér á íslandi „Við í heklu erum gríðar
lega ánægð með þær mótttökur sem Touareg hefur fengið hér
á landi. A þessu ári eigum við frátekna 35 Touareg bíla - yfir 20
af þeim eru þegar seldir og margir viðskiptavinir eru áhuga-
samir. Nokkrir V10 dísilbílar eru á leiðinni og verða komnir á
göturnar hér á vormánuðum. Bíllinn hefur fengið frábæra
dóma í öllum blaðaumfjöllunum og reynsluprófum, jafnt hér
heima sem erlendis. Við finnum fýrir því að við erum með
þessum bíl að ná til nýs hóps viðskiptavina sem gerir miklar
kröfur og er reiðubúinn að ganga ótroðnar slóðir en það er
einmitt eitt af því sem Touareg stendur fyrir, því að fýrir hann
skiptir ekki máli hvaða vegur er valinn." [£]
Touareg dregur nafn sitt af
ættbálki í Sahara-eyðimörk-
inni sem oft er kallaður
riddarar eyðimerkurinnar.
88