Frjáls verslun - 01.02.2003, Síða 90
„Viðskiptavinir okkar eru mjög ánægðir með þessar lausnir og er Brimborg nú einn stærsti aðili á sviði rekstrarleigu hér á
landi, " segir Egill Jóhannsson, framkvæmdastjóri Brimborgar.
Brimborg:
Hagstæð leigugreiðsla
egar ákveðið er hjá fyrirtæki að
fara í rekstrarleigu bifreiða þarf
að hafa nokkur atriði í huga og
skipta máli við val á þjónustuaðila. í
fyrsta lagi er það úrval bílanna sem í
boði er en þar hefur Brimborg ein-
staklega sterka stöðu þar sem fyrir-
tækið býður allt frá litlum fólksbílum
til glæsilegra lúxusfólksbíla og öflugra
jeppa. Þar fyrir utan er atvinnutækja-
lína sem innifelur allt frá vinnuvélum upp í rútur.
I öðru lagi skiptir þjónustan gríðarlegu máli. Brimborg
hefur gengið lengra en hefðbundin rekstrarleiga og er fyrir-
tækið tilbúið til að taka algerlega að sér bílaflota stærri fyrir-
tækja og er öll þjónusta innifalin skv. kröfum framleiðanda auk
þess sem nákvæmlega er fylgst með ástandi bílanna á meðan
á leigutima stendur. Þetta er mikilvægt til að ná niður kostnaði
fyrir viðskiptavini og tryggja öruggan rekstur bílsins.
I þriðja lagi skiptir hagstæð leigugreiðsla miklu máli en það
byggist á nývirði bílsins, endurkaupaverði sem áætlað er 3 ár
fram í tímann og svo þjónustu við bílinn ásamt dekkjum. Með
mjög öflugum aðhaldsaðgerðum og traustri þjónustu hefur
Brimborg náð að bjóða einstaklega hagstæða leigugreiðslu
með því að lækka bílverð, tryggja góða endursölu, veita hag-
kvæma en góða þjónustu og með einstaklega hagkvæmum
eigin innflutningi á dekkjum frá þekktum framleiðendum."
Góðir í endursölu Nýlega opnuðust
möguleikar á því fyrir einstaklinga að
nýta sér rekstrarleigu en fram að því
höfðu einungis fyrirtæki átt þann
möguleika. Að sögn Egils hafa viðtök-
urnar verið framar vonum og er nú
svo komið að mjög stór hluti af sölu
Brimborgar er í gegnum rekstrar-
leigu. „Viðskiptavinir okkar eru mjög
ánægðir með þessar lausnir og er
Brimborg nú einn stærsti aðili á sviði rekstrarleigu hér á
landi. Vegna þeirrar miklu og góðu þjónustu, sem fyrirtækið
veitir bílunum sem eru í rekstrarleigu, má búast við því að
þeir bílar sem koma til baka í endursölu verði einstaklega
góðir og þannig verði hægt að gera góð kaup á bílum í fram-
tíðinni."
Egill segir langvinsælasta bílinn hjá Brimborg fyrir milli-
stjórnendur vera Ford Mondeo Ghia þar sem saman fari
mikil gæði, mikið rými og aukabúnaður en samt frábært
verð. Það skal tekið fram að Ghia merkir lúxus hjá Ford.
„Sem dæmi um verð get ég nefnt það að Ford Mondeo
kostar frá kr. 33.950 í rekstrarleigu hjá okkur og þá er það
nýr bíll,“ segir Egill. „Önnur heimsfræg merki okkar í bílum
fyrir utan Ford eru Volvo, Citroén og Daihatsu, en okkar
markmið er og hefur verið að bjóða aðeins frábæra gæða-
bíla hvort heldur sem er til sölu eða leigu.“ Ej
„Brimborg hefur lagt mjög mikla
áherslu á rekstrarleigu bæöi til
jyrirtækja og einstaklinga og hafa
viðtökur verið ótrúlega góðar,“
segirEgill Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri Brimborgar.
90