Frjáls verslun - 01.02.2003, Qupperneq 94
á íslandi að bóka bíl í öoru landi eða leysa mál sem lúta
að séróskum viðskiptavinarins. „Við leggjum mikið
upp úr því að leysa öll mál sem upp koma hvort heldur
er hérlendis eða erlendis," segir Pétur Steinn. „Það er
mjög þægilegt að geta gert þetta svona og það hefur
t.d. færst mjög í vöxt að fyrirtæki sendi okkur tölvupóst
um að þessi eða hinn starfsmaðurinn sé á leið úr landi
og vanti bíl. Við einfaldlega leysum það á mjög
skömmum tíma og viðskiptavinurinn fær ávísun
(voucher) með sér sem hann framvísar á staðnum. Þá
hefur ijöldi fyrirtækja gert fyrirtækjasamning sem
hægt er að nálgast á vefsíðu okkar, www.avis.is. Með
þessum samningi tryggjum við fyrirtækjunum besta
mögulega verð bæði innanlands og utan.“
Aukabíllinn leigður, mikið úrval Annað sem hefur
verið að aukast upp á síðkastið er að fjölskyldur leigi bíl
nr. 2 eða 3 á heimilið, þegar tímabundin þörf krefur. Avis
er með mikið úrval af bílum, allt frá smábílum upp í stóra
bíla. I vali á bílum leggjum við mikið upp úr því að
bílarnir séu heppilegir fyrir okkar aðstæður og t.d. erum
við með þrjár gerðir af bílum þetta árið sem allir hafa
verið kosnir bílar ársins í sínum flokki. Þurfi fólk t.d.
„Það er mjög vel þekkt í okkar samkeppnislöndum að fyrirtæki
bindi ekki fjármagn í bílaflota heldur kaupi þjónustuna þegar hennar
er þörf. Við sjáum mikinn vaxtarbrodd í þessari tegund þjónust-
unnar," segir Pétur Steinn Guðmundsson, framkvæmdastjóri AVIS.
Avis:
Lítil binding og mikill sueigjanleiki
- allt sem fyrirtæki og einstaklingar þurfa
Við rekum hefðbundna bílaleigu með
öllum stærðum og gerðum bifreiða,"
segir Pétur Steinn Guðmundsson,
framkvæmdastjóri Avis bílaleigu.
„Mest er leigan til einstaklinga sem
þurfa bíl tímabundið vegna bilana, ferða-
laga eða af öðrum orsökum en þó hefur
það færst í vöxt að fyrirtæki minnki hjá sér bílaflotann og leigi
frekar bíl eða bíla á álagstímum, mislangt eftír þörfum hvers
fyrirtækis.
Sum fyrirtæki þurfa bíla tímabundið, t.d. með vörur eða
sölufólk, en ekki þar á milli og okkar hlutverk er að greina
þarfirnar og koma til móts við þær.
Við erum jú aðeins með bindingu í einn dag í senn og það
frelsi hentar mörgum. Fyrirtæki vilja ekki vera bundin ef
breyting verður á t.d. peningastreymi heldur geta haft
sveigjanleika. Það er mjög vel þekkt í okkar samkeppnis-
löndum að fyrirtæki bindi ekki fjármagn í bílaflota heldur
kaupi þjónustuna þegar hennar er þörf. Við sjáum mikinn
vaxtabrodd í þessari tegund þjónustunnar.“
flWÍS um allan heim Avis er með samtengt tölvukerfi um
allan heim. Þannig tekur það örstutta stund fyrir starfsmann
aukabíl vegna álags á heimilinu, svo sem
jóla eða páska, eða vegna þess að aðeins er
til einn heimilisbíll en fjölskyldan vill
skreppa á fjöll, í sumarbústaðinn eða bara að
ferðast um landið, þá er það lítið mál. Síminn
er tekinn upp og bíllinn pantaður.
„Markaðurinn er mjög á hreyfingu í bíla-
leigunni og verðið getur verið breytilegt. Okkur hefur tekist
að vera mjög samkeppnishæf og leggjum okkur fram við að
bjóða gott verð á öllurn tímum árs,“ segir Pétur Steinn. Þetta
er ekki eins og með mjólkina sem kostar það sama í dag og í
síðustu viku, heldur fer verðið alfarið eftir framboðinu og
þörfinni. Fólk velur svo eftir verði og þjónustu en hvort
tveggja skiptir miklu máli.
„WE TRY HARDER" Sumarið er háannatími bílaleigunnar
en Pétur Steinn segir viðskiptin vera að færast æ meira á aðra
tíma ársins og ekki síst vegna nýrra pósta eins og fyrirtækja-
leigu og einstaklinga sem bæta við bíl tímabundið. „Það
merkir að við nýtum flotann betur og dreifum kostnaðinum
og getum fyrir vikið boðið enn betur. Við vinnum enn eftír
slagorði sem orðið er 40 ára og var fundið upp af Warren Avis,
stofnanda Avis bílaleiganna, „WE TRY HARDER“.“ 3H
Avis bílaleiga býður leigu á
bílum frá einum degi, allt
eftirþví hvað viðskiptavin-
inum hentar.
94