Frjáls verslun - 01.02.2003, Qupperneq 98
INGVAR HELGASON
Ingvar Helgason/Bílheimar:
Margar nýjungar þetta árið
að er margt í okkar umhverfi nú
sem gefur tilefni til bjartsýni er
varðar bílasölu og tengda þjón-
ustu,“ segir Hannes Strange, markaðs-
stjóri. „Eftir tvö mögur ár eru margir
komnir á þá skoðun að nú sé kominn tími
til að endurnýja bílinn og það sýnir sig í
sölunni."
Hannes segir margar nýjungar á ferðinni þetta árið „Við
höfum þegar kynnt til leiks breyttan Nissan Patrol og viðtökur
voru afar góðar. Einnig sjálfskiptan Opel Vectra með nýrri
2200cc bensínvél sem gefur 147 hestöfl og nýrri 5 þrepa sjálf-
skiptingu. Nýr Subaru Impreza litur dagsins ljós nú í mars og
í enda marsmánaðar verður svo kynntur nýr og gjörbreyttur
Nissan Micra. Þessi bíll hefur þegar sópað til sín íjölda verð-
launa og margir hér á landi eru farnir að bíða spenntir eftir
þessum bíl.“
Nýr sendibíll Ingvar Helgason og Bílheimar hafa ekki lagt
mikla áherslu á sendibíla fram til þessa en nú mun verða breyt-
ing þar á. „Nýverið kom til landsins nýr Opel Combo sem er
gjörbreyttur frá iýrri bíl,“ segir Hannes. „Hann er m.a með
tveimur renndum hliðarhurðum sem er til mikilla þæginda
fyrir notendur bílsins. Frá Opel og Nissan kemur ný og öflug
sendibílalina eftír um það bil þrjá mánuði. Bflar sem eru með
heildarþyngd um 2900 kg og skemmtilega hannaðir með þarfi
notandans í huga. Þetta eru tvær tegundir frá Nissan sem nefn-
ast Interstar og Primastar. Frá Opel kemur Vivaro sem bæði
fæst sem sendiferðabíll og sem sætabfll. Mjög spennandi við-
bót fyrir okkur og viðskiptavini okkar sem nú geta enn frekar
en áður fengið heildarlausn í bflamálum sínum hjá okkur.
Við höfum einnig fullan hug á því að fara í innflutning á
bílum frá General Motors, bflum eins og
Chervolet og Cadillac en við höfum
umboð fyrir General Motors. Það mun
ekki fara fram hjá neinum þegar við
förum af stað með þá, enda um frábæra
bfla að ræða,“ segir Hannes.
Rekstrarleiga - nýtt torm Hvað snertir
notaða bíla hefur sá markaður breyst að
sögn Hannesar. „Fyrst og fremst hefúr það gerst að við
höfum kynnt rekstrarleigu á notuðum bifreiðum og virðumst
hafa hitt þar á markað sem beið, svo góð hafa viðbrögðin
verið. Fólki finnst þetta greinilega góður kostur til viðbótar
þeim sem fyrir eru. Við bjóðum upp á gífurlega gott úrval, allt
frá smábílum upp í jeppa og geta þannig allir fundið eitthvað
við sitt hæfi.
FjÖlnotabílar Bifreiðaframleiðendur koma sífellt með nýjar
áherslur og tegundir og hafa td. ljöbotabílar verið að ryðja sér
braut hér á landi. Ingvar Helgason og Bflheimar hafa staðið vel
þar með bílum eins og hinum 7 manna Opel Zafira. Síðar á
þessu ári er von á minni gerð Opel Zafira, Opel Meriva. Sú
breytíng tengist rekstrarleiguforminu hjá fyrirtækinu.
Slærri fólksbílar Hannes segir markað fyrir svonefnda lúxus-
bíla fara stækkandi og með því sjái fyrirtækið sér leik á borði
með bflum á borð við Saab, Nissan og GM. „Þarna er bæði um
að ræða Saab 9-3 og Saab 9-5,“ segir hann. „Frá Nissan kemur
svo Maxima og frá GM kemur Cadillac CTS sem er geysilega
skemmtilegur og öflugur bfll. Þess má svo að lokum geta að
Cadillac hefur alltaf verið talinn toppurinn í bílaframleiðslunni
og segja menn gjarnan að þessi eða hinn bfllinn sé „algjör
Cadillac“.B!l
Bílasala er í eðli sínu frekar
óstöðug en þetta árið fer hún vel
afstað að sögn Hannesar
Strange, markaðsstjóra Ingvars
Helgasonar og Bílheima.
NissanX-Trail
NissanPatrol
98