Frjáls verslun - 01.09.2003, Blaðsíða 6
RITSTJÓRNARGREIN
KAUPIN A DV:
Tíu mínútna kenningin
egar Fréttablaðið hið fyrra hóf göngu sína vorið 2001
voru ein helstu rök útgefandans þau að obbinn af fólki
hefði engan tíma á morgnana til að komast í gegnum
fremur þunglamalegar greinar í Morgunblaðinu og því væri
þörf á nýju blaði með stuttar og frískar fréttir sem fólk gæti
lesið á um tíu mínútum áður en það héldi til vinnu. Svarið væri
einfalt; Fréttablaðið sem borið væri frítt í öll hús. Það var sett til
höfuðs risanum Morgunblaðinu strax í upphafi og átti að hirða
af honum bæði lesendur og auglýsendur. Það hefur vissulega
náð að ógna Morgunblaðinu. Áskrifendum Morgunblaðsins
hefur fækkað lítillega og auglýsingadeild blaðsins hefur fundið
fyrir Fréttablaðinu. Það kom hins vegar engum á óvart að DV
varð mest fyrir barðinu á hinu nýja blaði. DV náði sér aldrei á
strik eftir komu þess inn á markaðinn. Enda var það Frétta-
blaðið sem veitti því þyngsta höggið og gerði allt til þess að
koma því fyrir kattarnef.
DV-MENN gerðu sjálfsagt margt rangt í rekstri
blaðsins, en það réð þó úrslitum að þeir áttu ekkert
svar við þeirri formúlu Fréttablaðsins að bera blaðið
frítt í öll hús og að helstu eigendur þess, Baugs-
veldið, mokuðu auglýsingum í Fréttablaðið en
frystu DV. Þá náði Fréttablaðið fljótlega markaði
smáauglýsinga undir sig. Formúlan, sem fáir trúðu
á, hafði gengið upp. Hún lagði DV í gólfið en ekki
þann sem upphaflega var miðað á, Morgunblaðið.
Fréttablaðið er mikið lesið. Það er frísklegt og sækir
núna auglýsingar langt út fyrir raðir eigenda sinna í
krafti útbreiðslu.
FRÉJITABIAÐSMENN segja sjálfir að blaðið sé rekið með
hagnaði þótt ýmsir séu vantrúaðir á það. Hvað DV snertir þá
kvað markaðurinn upp sinn dóm, DV varð gjaldþrota, lesendur
og auglýsendur sáu ekki þörfina fyrir gamla DV sem þriðja dag-
blaðið.
AUDVITAÐ urðu margir hvumsa þegar Fréttablaðsmenn
sögðust sakna DV og að gjaldþrot þess væri sorglegt; víst væri
þörf fyrir þriðja dagblaðið - hvasst og hispurslaust síðdegis-
blað sem kæmi út á morgnana. Og þeir stóðu ekki við orðin
tóm heldur keyptu þrotabú DV og útgáfuréttinn af Landsbank-
anum. Ekki verður hér farið nánar út í söluaðferð bankans en
Árvakur, útgefandi Morgunblaðsins, hafði áhuga en var
hundsaður af bankanum. Það var ekki einu sinni kannað
hvaða verð Árvakur byði.
NÝJA DV verður morgunblað með ásjónu síðdegisblaðs.
Það verður í áskrift og lausasölu og mun ekki leggja áherslu á
auglýsingatekjur. Fréttablaðsmenn ætla að gefa sér þrjú til
fimm ár til að ná settum markmiðum í áskrift. Núna er formúl-
an þessi: DV á að hirða frekari áskrift af Mogganum og Frétta-
blaðið á að höggva af meiri slagkrafti í auglýsingasölu hans
náist að höggva stærra skarð í lesendahópinn. Samnýta á skrif-
stofu, auglýsingadeild, ljósmyndir og fleira.
GOTT OG VEL. En gengur dæmið upp með nýtt DV á
meðan Morgunblaðið og Fréttablaðið eru svo sterk blöð - og
hvað þá meðan að Fréttablaðið kemur út frítt? Var Árvakur að
missa af einhveijum stórgróða þótt hann fengi ekki DV hjá
Landsbankanum þótt við blasi að hann missir prenttekjur? Eru
svona miklir peningar í sjónmáli með DV? Er ekki líklegra en
hitt að Frétt ehf. þurfi að borga meðlagsgreiðslur með
króganum næstu árin?
EN DOKUM AÐEINS VIÐ. Hvað með 10 minútna reglu
Fréttablaðsmanna frá því fyrir tveimur árum um að fólk hafi
ekki tíma til að lesa nema í tíu mínútur á morgnana og sá tími
dugi ekki til að komast í gegnum Moggann
og því sé Fréttablaðið eina svarið? Hefur
fólk eitthvað meiri tíma til að lesa DV og
Fréttablaðið á morgnana? Vill fólk fá þrjú
dagblöð inn um lúguna hjá sér á morgn-
ana? Er líklegt að fólk gefi Moggann
skyndilega upp á bátinn fyrir DV? Hvað
með hinn utanaðkomandi andstæðing allra
prentmiðla sem er minnkandi lestur ungs
fólks og árátta þess að nema sannleikann í
gegnum tal, tóna og myndir?
ÁFRAM MÁ SPYRJA. Hver kann ekki að meta það að fá
frítt dagblað inn um lúguna á morgnana? Til hvers þá að vera
áskrifandi að tveimur dagblöðum líka, kaupa þess utan áskrift
að sjónvarpsstöðvum, tímaritum og greiða símreikninginn af
Netinu þar sem fréttir dagblaðanna eru ókeypis og ógna raunar
móðurskipunum í áskrift? Er ekki líklegt að of margir hugsi
sem svo: Dugir ekki að vera bara áfram með Moggann og fá
Fréttablaðið frítt? Komumst við yfir fleiri dagblöð í allri þessari
ijölmiðlun? Markaðurinn mun svara þessu og ákveða hvort
þörf sé fyrir þrjú dagblöð. Ef 10 mínútna kenning Fréttablaðs-
manna er rétt þá gæti hún reynst nýju DV Þrándur í Götu. Eða
gildir 10 mínútna kenningin ekki um nein önnur morgunblöð
en Moggann?
FYLLSTA ÁSTÆÐA er til að óska Fréttablaðsmönnum til
hamingju með DV. Þeir eru hugrakkir og hæfileikaríkir. Því
augljóslega þarf hugrekki til að fara inn í hringinn með nýtt DV
sem áskriftarblað og óttast ekki að lenda strax í koðlunum. [H
Jón G. Hauksson
Eru svona miklir
peningar í sjónmáli
með DV? Er ekki
líklegra en hitt að
Frétt ehf. þurfi að
borga meðlags-
greiðslur með króg-
anum næstu árin?
6