Frjáls verslun - 01.09.2003, Blaðsíða 46
Fyrirtækjaveldi Kjell Inge Rokke
Heimild: Aftenposten
eða öðrum hætti rekstri Aker Kværner
og móðurfyrirtækisins Aker RGI. Yfir-
takan á Kværner var Rokke dýr og hefur
enn ekki skilað honum arði.
Sagan um kolbítinn í norskum þjóð-
sögum segir oft frá kolbítnum Asbirni
Askeladden. Þetta er bláeygur drengur
sem vex upp við lítil afrek og er talinn
ónytjungur af öllum sem til þekkja. En
drengur fer út í hinn stóra heim og
reynist þá úrræðagóður í öllum þrautum.
Hann leikur á tröll og forynjur - og vinnur
Fyrirtækjaveldi Rokke byggist á sjö samsteypum. Móðurfyrirtækið er Aker RGI. að i0kum ástir dóttur konungs og hálft
konungsríkið með. Kjell Inge Rokke er oft
Hlutabréfin voru því í lágu verði þegar Rokke keypti meiri-
hlutann og greiddi að sögn eftir á með láni hjá Aker! Aker Yards
er metið á 19 milljarða íslenskra króna og hjá fyrirtækinu vinna
um 10 þúsund manns.
Rokke á einnig stóra hluti í Ijórum minni samsteypum sem
metnar eru á um 10 milljarða íslenskra króna. Þetta eru Dexion
sem framleiðir hillusamstæður fyrir fyrirtæki og söfii. Rekstur
þess gengur afleitlega og er Dexion til sölu.
Rokke á einnig 39,9% í Avantor, sem á og leigir út skrifstofu-
húsnæði. Það er til sölu. Sömu sögu er að segja um fasteigna-
fyrirtækið Legend Properties, sem m.a. hefur staðið fyrir bygg-
ingu glæsiíbúða á Flórída.
Rokke á einnig fyrirtækið Atlas-Stord. Það framleiðir búnað
til nota við olíuvinnslu og skilar góðum arði. Þar vinna 120
manns.
líkt við Asbjörn þennan Askeladden.
Rokke á til alþýðufólks að telja. Hann er fæddur í Molde í
Vestur-Noregi 25. október árið 1958. Hann lauk grunnskóla-
námi og fór til sjós 16 ára gamall. Hann keypti sinn fyrsta bát
24 ára gamall. Auður Rokkes varð fyrst til þegar hann
stundaði sjómennsku við Kyrrahafið. Hann var togara-
sjómaður og síðar togaraútgerðarmaður við Alaska og rak
fyrirtæki sitt RGI (Resource Group International) í Seattle í
Bandarikjunum.
Hann lét fyrst til sín taka sem iðjuhöldur heima í Noregi árið
1996 með kaupum á stórum hlut í Aker og árið 1997 sameinaði
hann Aker og RGI. Þá var hann ríkasti maður Noregs. Hann
hefúr alltaf verið útgerðarmaður togara öðrum þræði og alltaf
hefur gengið á ýmsu í útgerðinni. Fræg er útgerðarsaga stærsta
togara heims - American Monarch - sem lengi var bundinn
kvótalaus við bryggju í Rússlandi.
Of margir boltar á lofti Það er enginn hörgull á sérfræðingum
sem fullyrða að Rokke vasist í of mörgu. Reksturinn er of
flókinn og ráðlegra væri að einbeita sér að færri fyrirtækjum og
reka þau vel. Norway Seafoods þykir lífvænlegt fyrirtæki, sem
Rokke er mikið í mun að halda, en fyrirtækið er skuldsett og í
raun á valdi lánadrottnanna.
Spár norskra Ijölmiðla um framtíð Rokkes ganga nú út á að
hann selji á næstu árum stóran hluta af eignum sínum. Enginn
veit þó hve mikið og hvaða fyrirtækjum hann nær að halda.
Hann náði samkomulagi við Orkla um gjaldfrest fram til ársloka
2004. Sá frestur á þó aðeins við um lán Orkla til Norway
Seafoods.
Mjúk lending Þetta var engu að síður mjúk lending fyrir
Rokke. Hann slapp úr klípunni að þessu sinni en lánardrottnum
hans er ljóst að hreinsa verður til í eignamöppu hans. Stærstu
lánadrottnarnir eru Den Norske Bank, bankar í Svíþjóð og líf-
eyrissjóðir. Að ógleymdum Rokke sjálfum. Hann hefur verið
óspar á að taka fé að láni í eigin fyrirtækjum. Skuldirnar nema
hundruðum milljarða íslenskra króna.
Mjög er þó snúið að fá yfirlit yfir hve mikið fyrirtæki Rokkes
skulda þegar allt er talið. Norska dagblaðið Aftenposten hefur
fuilyrt að innbyrðis skuldir í fyrirtækjasafni Rokkes nemi 200
milljörðum íslenskra króna. Mest af þessu fé tengist með einum
Einn á báti Fyrstu ár sín í viðskiptum var Rokke jafnan í nánu
samstarfi við sveitunga sinn Bjorn Rune Gjeldsten. Rokke
keypti Gjeldsten út árið 1999 og hefúr síðan verið einn á báti.
Þeir félagar voru saman til sjós og vöktu þjóðarathygli í Noregi
þegar þeir keyptu fótboltaliðið í heimabænum Molde og
björguðu því frá gjaldþroti - og þeir áttu saman enska fótbolta-
liðið Wimbleton.
Rokke er einstakur meðal norskra auðmanna. Miklu meira
er ijallað um hann en aðra. Ekki er nýtt að eigendur fyrirtækja
lendi í kröggum, en þegar Rokke á í hlut er eins og allir gangi
af göflunum. Blöðin fyllast af greinum um Rokke og sjónvarps-
menn hanga nótt sem nýtan dag fyrir utan skrifstofur hans á
Akerbryggju í Ósló bara til að geta myndað hann á leið inn eða
út úr húsinu.
Helsta ástæðan fyrir þessu er að Rokke hefur aldrei farið
leynt með auð sinn. Það er óvenjulegt í Noregi og jafnvel talið
ósiðlegt. Lítillæti er dyggð í Noregi. Þessu er öfugt farið í
Bandaríkjunum þar sem sjálfsagt þykir að berast á - ekki síst
ef fátækir fá að njóta auðsins að einhveiju leyti með gjöfum.
Óskráð lög auðmanna í Noregi má auðurinn helst ekki sjást
og þá reglu hefur Rokke brotið. Hann hefur keypt sér dýr leik-
föng - lystisnekkju, hraðbáta, einkaþotu - og á eitt stærsta
46