Frjáls verslun - 01.09.2003, Blaðsíða 50
MINNISLEYSI
Er ég haldinn
Fólk, sem komið er yfir fertugt, heyrist oft kvarta sáran undan minnisleysi
og segir í háifkæringi að það sé haldið „hálfeheimer“ eða „kvartzheimer“ og
vísar þá til sjúkdómsins alzheimer. En hvað er til ráða við minnisleysinu?
Eftir Vigdísi Stefánsdóttur Mynd: Geir Ólafsson
Fólk sem komið er yfir fertugt heyrist oft kvarta sáran
undan minnisleysi. Það gleymi nöfnum fólks sem það
þekkir, stefnumótum sem það á, hvað átti að kaupa í
búðinni og þar fram eftir götunum. Stundum segir fólk í hálf-
kæringi að það sé haldið „hálfzheimer" eða „kvartzheimer“
og vísar þá til sjúkdómsins alzheimer sem leggst einkum á
eldra fólk og lýsir sér oftar en ekki í talsverðu minnisleysi.
Sem betur fer er ástandið ekki svo alvarlegt nema í undan-
tekningartilfellum en því er ekki að neita að það er óþægilegt
að finna fyrir því að minnið bregst manni. Og hvað er til ráða?
Jón Snædal, læknir á öldrunardeild LHS:
„Það eru í aðalatriðum þrír þættir sem hafa áhrif á minni
fólks,“ segir Jón. „í íyrsta lagi er það upplagið. Fólk er
mjög misjafnlega minnugt að eðlisfari og á meðan
sumir eru með það sem kallað er „límheila" og
muna bókstaflega allt sem þeir sjá og heyra, eru
aðrir í hálfgerðu basli með það að muna einföld-
ustu hluti. Flestir eru einhvers staðar þarna á
milli.
í öðru lagi hefur streita dagsins áhrif á
minnið. Hjá mörgum er hún veruleg og
felur oft í sér að það þarf að hugsa um
marga mismunandi hluti í einu, hafa
marga þræði gangandi í einu. Það kemur
NÁKVÆMLEGA eins og harði
diskurinn í tölvunum getur fyllst,
hefur minnið ákveðinn mettunar-
þröskuld og það er ekki enda-
laust hægt að troða í það.
svo aftur niður á einbeitingunni, því hún er lykillinn að því að
muna.
í þriðja lagi mætti nefna lífsstílstengda hluti eins og svefn,
áfengisnotkun, persónuleg sam-
skipti og lyf. Það er orðið
býsna algengt að
fólk neyti
50