Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.2003, Blaðsíða 68

Frjáls verslun - 01.09.2003, Blaðsíða 68
stærri flugsendingum og þeir hafa skrifstofur um öll Banda- ríkin,“ segir Regína Gunnars- dóttir. Samstarf TVG-Zimsen og Menlo opnar íslenskum inn- og útflytjendum leið að einu öflugasta flutninganeti í heimi sem hefur að leiðarljósi áreiðanleika og tímasetta þjónustu fyrir mjög hagkvæmt verð. Jón Bjarni Bjarnason, sölustjóri sölu- og markaðssviðs, Sævar Bjarnason, forstöðumaður sölu- og markaðssviðs, og Regína Gunnarsdóttir, deildarstjóri sölu- og markaðssviðs. TVG-Zimsen Flutt með hraði TVG-Zimsen byggir á mikilli og langri reynslu í flutningum til og frá landinu. TVG-Zimsen er alhliða flutningsmiðlunarfyrirtæki sem hefur flutninga til og frá landinu og rekstur frísvæðis að aðalstarfsemi. TVG- Zimsen byggir á mikilli reynslu, er í góðum tengslum við helstu flutningafyrirtæki heims, þekkir hagkvæmustu og einföldustu leiðirnar til og frá landinu, kann skil á öllum formsatriðum í flutningum og skjalavinnu og ræður yfir tölvubúnaði sem getur á svipstundu rakið hvar varan er á vegi stödd. TVG-Zimsen leggur ofuráherslu á að tímaáætlanir standist og flutningurinn verði hnökralaus frá borði seljanda að dyrum kaupanda. „Við bjóðum bæði upp á hraðflutninga og hefðbundna flugflutninga til og frá Bandaríkjunum, erum umboðsaðilar fyrir UPS og Menlo Worldwide Forwarding sem eru tvö af stærstu flutningsmiðhmarfyrirtækjum þar í landi,“ segir Sævar Bjarnason, forstöðumaður sölu- og markaðssviðs TVG- Zimsen. Hraðsendingabjónusta TVG-Zimsen er umboðsaðili United Parcel Service, UPS, sem er stærsta og öflugasta hraðsendingafyrirtæki heims. UPS sérhæfir sig í flutningi minni pakka þ.e. upp að 70 kg og nær þjónustunet þess til rúmlega 200 landa um allan heim. Öflugt flutninganet UPS gerir það að verkum að vara getur verið komin á áfangastað á rúmum sólarhring frá íslandi til viðtakanda í Bandaríkjunum og á um 40 tímum frá Bandaríkjunum til viðtakanda á Islandi. í samvinnu við UPS býðurTVG-Zimsen hraðsendingaþjónustu inn og út úr landinu eins og best gerist á Islandi. TVG-Zimsen er einnig umboðsaðili Menlo Worldwide Forwarding sem er einn stærsti flugfraktaðili í heimi. Flutningastarfsemi Menlo byggist á rekstri eigin skrifstofa og samstarfi við umboðsmenn um allan heim. „Þeir sérhæfa sig í Sérþehking á íslenskum markaði Það að hafa umboð fyrir þessa tvo sterku flutn- ingsaðila í Bandaríkjunum gerir TVG-Zimsen fært að bjóða heildarlausnir í flutn- ingum hvert sem er og að geta tryggt viðskiptavinum sínum hagkvæmt flutningsverð og gæðaþjónustu. „Með því að notfæra okkur styrk þeirra og þá þekkingu sem við höfum á íslenskum markaði höfum við búið til ferh sem hentar sérlega vel hér á landi. Því er ekki að neita að við höfum ákveðna sérstöðu og gerum sérkröfur um hraða og verð sem ekki eru í gildi annars staðar," segir Sævar. „Innan skamms, eða í janúar 2004, mun öll aðstaða fyrirtækisins breytast til hins betra, þá munum við flytja í rúmlega 800 fm skrifstofuhúsnæði niðri við Sundahöfn. Aðstaðan verður í Vöruhótelinu, Sundabakka 2, en TVG-Zimen á 40% hlut í því fyrirtæki á móti Eimskip," segir Sævar. „Þetta mun gjörbreyta allri aðstöðu starfsmanna þar sem öll starfsemi mun verða á einni hæð.“ Hjá TVG-Zimsen starfa nú um 60 manns. „í gegnum tíðina hefur orðið mun algengara að fyrirtæki óski þess að TVG-Zimsen sjái um alla tollskjalagerð fyrir sig. Þessi þáttur er tímafrekur og oft kostnaðarsamur í starfsemi fyrirtækja. TVG-Zimsen er vel í stakk búið tíl að taka þessi verkefni að sér bæði vegna mikillar reynslu starfsfólks og fullkomins tölvukerfis," segir Sævar. „TVG-Zimsen hf. er fyrirtæki sem samanstendur af góðu og reynslumiklu starfsfólki. Hugvit er okkar aðall og að koma vöru frá sendanda til móttakanda er flókið ferli sem starfsfólk okkar hefur sérhæft sig í að leysa á sem hagkvæmastan hátt. Starfsfólkið leggur ofuráherslu á að finna ódýrustu flutningsleiðina til og frá landinu. Viðskiptavinir, sem kaupa okkar þjónustu frá Bandaríkjunum, eru sérstaklega ánægðir með þjónustuna og hefur orðið mikil magnaukning bæði til og frá landingu í gegnum TVG-Zimsen,“ segir Sævar. Á heimasíðu TVG-Zimsen http://www.tvg.is er að finna greinargóðar upplýsingar um fyrirtækið, þjónustuna og rekja ferli sendinga. 35 68
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.