Frjáls verslun - 01.09.2003, Blaðsíða 34
skólann og síðan í Verslunarskólann. Eftir það fór hann í við-
skiptafræði við Háskóla íslands þaðan sem hann útskrifaðist
sem cand. oecon. árið 1971.
„Fór því miður aldrei út að læra“ „Ég fór því miður aldrei
út að læra, eins og vonir mínar stóðu til. Að vísu má geta
þess að ég fór á námskeið um alþjóðlegar siglingar
(International Shipping) í Noregi 1970 á meðan ég var í
námi í Háskólanum og einum áratug síðar á nokkurra
mánaða námskeið í stjórnun flugfélaga (Airline Manage-
ment) hjá MIT í Boston 1980. Ég ætlaði alltaf að fara út og
læra meira en einhvern veginn varð aldrei neitt úr því, ég
hef alltaf verið frekar upptekinn."
Strax í ábyrgðarstöður Strax eftir að Magnús Gunnarsson
útskrifaðist úr viðskiptafræðinni 1971, hóf hann störf hjá
Bandalagi háskólamanna og var þar framkvæmdastjóri einn
vetur. „Ég ætlaði mér alltaf úr því starfi í frekara nám en mál
æxluðust þannig að ég var beðinn um að taka að mér skrif-
stofustjórn hjá Sölusambandi íslenskra fiskframleiðenda. Ég
fór þangað og var þar í um það bil tvö ár, 1971-73. Síðan
þróuðust mál þannig að ég fór til vinnu fyrir Hafskip en var
þar reyndar í stuttan tíma, rúmt ár. Til viðbótar þessu kenndi
ég hagfræði og stjórnun í Verslunarskóla íslands. Ég sinnti
kennslunni áfram þar til ég tók við starfi framkvæmdastjóra
Arnarflugs. Þar var ég á árunum 1976-80 og gat ekki haldið
áfram í kennslunni, vegna þess hve mikið ég þurfti að vera
erlendis.“
Vinnuveitendasambandið Þegar Magnús ákvað að hætta
hjá Arnarflugi, bað Vilhjálmur Jónsson, forstjóri Olíu-
félagsins, hann um að koma til sín og taka við starfi aðstoðar-
framkvæmdastjóra. „Því starfi gegndi ég í stuttan tíma, 1981-
83, en síðan komu gamlir vinir mínir til mín og báðu mig um
að fara í Vinnuveitendasambandið og taka þar við af Þorsteini
Pálssyni sem framkvæmdastjóri. Þar var ég í þrjú ár, til ársins
1986, en þá lá leið mín aftur til Sölusambands íslenskra fisk-
framleiðenda. Ég var síðan beðinn um að taka við sem for-
maður Vinnuveitendasambandsins árið 1992 og tók þar við af
Einari Oddi Kristjánssyni."
Magnús var stjórnarformaður Vinnuveitendasambands-
ins til ársins 1995 og þótti farsæll í starfi. Magnús hefur
komið ótrúlega víða við á viðskiptasviðinu á Islandi. Hann var
meðal annars, auk áðurtalinna starfa, formaður Utflutnings-
ráðs íslands árin 1986-93 og formaður stjórnar HB á Akranesi
árin 1991-95.HH
Ný stjórn Eimskips
Á hluthafafundi í Eimskip þann 9. október síðastliðinn var algerlega skipt um stjórn hjá Eimskipafélagi Islands hf. í kjölfar
breyttrar eignaraðildar hjá fyrirtækinu. Magnús Gunnarsson var þá skipaður nýr stjórnarformaður Eimskips. Frá vinstri Þór
Kristjánsson, Sindri Sindrason, Þórður Magnússon, Pálmi Haraldsson, Magnús Gunnarsson, Gunnlaugur Sævar Gunn-
laugsson og Baldur Guðnason.
Ahluthafafundi í Eimsldp þann 9. október síðastliðinn var
algerlega skipt um stjórn hjá Eimskipafélagi íslands hf.
í kjölfar breyttrar eignaraðildar hjá fyrirtækinu. Magnús
Gunnarsson var þá skipaður nýr stjórnarformaður Eimskips í
stað Benedikts Jóhannessonar, framkvæmdastjóra Heims. Að
vonum hefur kastljósi fjölmiðla í auknum mæli verið beint að
Magnúsi, enda hefur hann komið víða við í íslensku atvinnu-
lífi og jafhan þótt farsæll í störfúm sínum.
Á fyrsta fundi nýrrar stjórnar Eimskipafélagsins, sem
fram fór 14. október, var ákveðið að skipta um stjórn í öllum
dótturfélögum Eimskipafélags íslands. Með Magnúsi
Gunnarssyni í stjórn Eimskipafélags Islands og allra dóttur-
félaga voru skipaðir þeir Þór Kristjánsson, aðstoðarforstjóri
Pharmaco, Sindri Sindrason, stjórnarmaður í Pharmaco,
Þórður Magnússon, fyrrverandi forstjóri Gildingar, Pálmi
Haraldsson, forstjóri Fengs, Gunnlaugur Sævar Gunnlaugs-
son, stjórnarformaður Tryggingamiðstöðvarinnar, og
Baldur Guðnason, eigandi Sjafnar. [ffl
34