Frjáls verslun - 01.09.2003, Blaðsíða 9
eingöngu hugbúnaðarfyrirtæki, heldur
miklu fremur ráðgjafa- og þjónustu-
fyrirtæki í upplýsingatækni.
Með sameiningu fáum við ekki aðeins
meira vöruúrval, heldur miklu fremur
dýpri þekkingu á þeim sviðum sem fyrir-
tækin vinna á. Fyrir sameiningu voru
Landsteinar og Strengur mjög áþekk
fyrirtæki. Nýtt og sameinað fyrirtæki
mun veita sömu þjónustu og áður en
mun meira mannafl stendur á bakvið
lausnirnar og dýpri þekking er til staðar."
Aukin tækifæri
og stærri hlutdeild
„Síðari ástæðan fyrir sameiningunni er
sú, að bæði fyrirtækin hafa tekið hluta af
lausnum í aðfangakeðjunni sem snúa að
verslun, pakkað þeim saman og flutt þær
út. Þegar Microsoft keypti framleiðanda
Navision skapaðist aukið tækifæri á
útflutningi og með sameiningu er Land-
steinar Strengur með langstærstu mark-
aðshlutdeild verslunarlausna fyrir Micro-
soft Business Solutions umhverfið."
Fyrir hvað stendur
sameinað fyrirtæki?
Landsteinar Strengur er leiðandi þjón-
ustufyrirtæki í upplýsingatækni með
áherslu á sölu og ráðgjöf, hugbúnaðar-
gerð og innleiðingu, þjónustu og rekstur
á þeim lausnum sem fyrirtækið býður.
„Okkar sérþekking liggur á sviðum við-
skipta-, þjónustu- og mannauðslausna.
Jafnframt lausna á sviðum aðfangakeðj-
unnar sem snúa að dreifingu og verslun,
svo og lausna á sviði fjármála, lífeyris-
sjóða og tryggingafélaga. Þetta eru þrjú
meginsvið í starfsemi okkar ásamt
ráðgjöf, innleiðingu og þjónustu.
Á öllum þessum sviðum höfum við
þróað okkar eigin kerfi sem byggja á
búnaði frá öðrum aðilum, svo sem frá
IBM og Microsoft. Kerfin byggja á margra ára þekkingu starfsmanna á
viðskiptaferlum viðskiptavina og á sumum sviðum eru kerfin orðin
útflutningsvara," segir Jón Ingi.
Útrás
„Okkur hefur gengið ágætlega í útrás á
erlendum mörkuðum og er hún sá geiri
sem er mest vaxandi innan fyrirtækjanna.
Reyndar er útrásin aðskilin í skipuriti fyrir-
tækisins. Við ætlum okkur að vera leið-
andi á þessu sviði og nýta þekkinguna,
pakka henni saman og flytja hana út.
Staðan í útrás fyrirtækisins til annarra
landa er sú að við erum með um 100
vottaða samstarfsaðila sem við höfum
þjálfað í okkar vörum. Þessir aðilar eru
búnir að innleiða lausnir okkar í ríflega 30
löndum í um 20 staðbundnum útgáfum.
Við höfum selt lausnir okkar í yfir 400
fyrirtæki út um allan heim á 16.000
búðarkössum sem tengdir eru kerfum okkar. Þar af er hugbúnaður
okkar keyrður á yfir 6.000 búðarkössum í 3.500 verslunum um allan
heim," segir Jón Ingi.HD
Landsteinar Strengur er stærsta
fyrirtækið hérlendis á upplýsinga-
tæknisviði í almennum viðskipta-
lausnum. Það er stærst í lífeyris-
sjóðalausnum og langstærst í
verslunarhugbúnaði.
Stærstir á
upplýsingatæknisviði
Landsteinar Strengur hf. er stærsta fyrir-
tækið hérlendis á upplýsingatæknisviði í
almennum viðskiptalausnum. Það er
stærst í lífeyrissjóðalausnum og lang-
stærst í verslunarhugbúnaði. „Samtals
höfum við selt okkar lausnir til u.þ.b.
2.000 viðskiptavina hérlendis. (dag erum
við með um 800 íslenska viðskiptavini í
virkum viðskiptum. Helsti styrkur samein-
aðs fyrirtækis er mikil reynsla af kjarna-
sviðum, heilsteyptar lausnir, gott starfs-
fólk og góð markaðshlutdeild.
Annar styrkur fyrirtækisins er mikil
þekking og reynsla. í sameinuðu fyrirtæki
starfa nú rúmlega 100 starfsmenn. Stór
hluti starfsfólksins er menntaður á því
sviði sem við einblínum á og er jafnt hlut-
fall viðskipta- og tæknimenntaðra. Við
erum einnig með mjög sterkar vörur sem
styðja við okkar lausnir."
Aðsetur fýrirtækisins verður til að
byrja með á tveimur stöðum, á Grjóthálsi
5 og í Ármúla 7, en stefnt er að því að
finna nýtt húsnæði sem getur rúmað alla
starfsemina.
LandsteinarStrengur
Landsteinar Strengur hf. ■ Grjóthálsi 5, 110 Reykjavík
http://www.landsteinarstrengur.is ■ http://www.landsteinar.com ■ http://www.infostore.is
Sími: 550 9000 • Fax: 550 9010
KYNNING
9