Frjáls verslun - 01.09.2003, Blaðsíða 29
Þögla kynslóðin
-fólk sem fætt er fyrir 1950
H ralöng reynsla hefur kennt þessari
Hkynslóð að treysta á reynslu og
hyggjuvit; þ.e. reyndar, prófaðar og
sannaðar aðferðir við að gera hlutina.
„Þegar þú ert við stjórnvölinn, taktu þá
stjórnina. Þegar þú ert í vafa, gerðu þá
það sem er rétt!“ Eftir áralanga
reynslu af að vinna undir stjórnun sem
gekk út á að „stjórna og stýra“ verður
þetta fólk að nota eigin dómgreind til
að horfast í augu við þær miklu breytingar sem eiga sér stað í
vinnuumhveríinu. Breytingar sem orðið hafa á stjórnun nú til
dags eru meðal annars þær að fólk þarf sjálft að finna bestu
leiðirnar að hámarksárangri, en því er ekki stjórnað og stýrt
eða sagt nákvæmlega hvernig það á að gera hlutina.
Ráð íyrir leiðtoga og stjórnendur sem eru með starfsfólk af
þessari kynslóð:
• Leiðtogar ættu með kurteislegum og vingjarnlegum hætti
að halda í vald sitt, alls ekki með ægivaldi, og sýna einnig
fram á eigin getu og verk.
• Best er að kenna Þöglu kynslóðinni á allar nýjungar í
öruggu umhverfi og jafhvel að fá hana til að taka þátt í miðl-
un nýjunga sem kennara.
• Þegar starfslok Þöglu kynslóðarinnar nálgast, eða hún fer
á eftirlaun, er góð hugmynd að ráða hana í hlutastarf við að
leiða og stýra verkefnum og einnig sem leiðbeinendur fyrir
þá sem eru nýir í starfi. Þekking og reynsla þessarar kyn-
slóðar er mjög verðmæt fyrir þá sem á eftír koma. HD
Sjöfn Sigurgeirs-
dóttir, auglýsinga-
stjóri Frjálsrar
verslunar, fædd
1939.
Barnabombu-kynslóðin
-fólk fætt ca. 1950-1965
Starfsfólk sem tilheyrir þessari kyn-
slóð kleif metorðastigann á meðan
reglur eldra vinnuumhverfis voru í
gildi og því finnst núna sem það starfi
í skugga niðurskurðar, endurskipu-
lagningar og endurhönnunar. Þetta
fólk stærir sig af getu sinni til að lifa af
„syntu eða sökktu“-stjórnunaraðferð-
ina. En færri eru viljugir nú til dags til
að halda uppi þeim ofsa og hraða.
Æ fleiri úr þessari kynslóð hafa tekið upp hugarfar sem
hefur þótt einkenna yngri kynslóðir, það er að halda fýrst og
fremst tryggð við sjálfan sig á vinnumarkaðnum (e. free
agent).
Konur af þessari kynslóð voru brautryðjendur í að þrýsta á
um sveigjanlegt starfsumhverfi.
Ráð fyrir leiðtoga og stjórnendur sem eru með starfsfólk af
þessari kynslóð:
• Leiðtogar ættu að vera leiðbeinendur sem greiða fyrir
niðurstöðum, ekki að stýra nákvæmlega leiðinni.
• Til að ná hámarksárangri frá þessari kynslóð er vænlegast
að bjóða sveigjanleika, vald og virðingu.
• Mikilvægt er að hvetja þessa kynslóð til að halda áfram að
vaxa, jaíht í starfi og einkalifi. Blí
Jón G. Hauksson,
ritstjóri Frjálsrar
verslunar, fæddur
1955.
X-kynslóðin
-fólk fætt ca. 1965-1977
Starfsfólk þessarar kynslóðar var í
fararbroddi varðandi þann hugs-
unarhátt að halda fyrst og fremst
tryggð við sjálft sig á vinnumarkaðn-
um. Núna er þetta fólk að fullorðnast
og að færast upp í stöður ábyrgða,
mannaforráða og leiðtoga. En það er
þó alls ekki á leiðinni að hætta eða
setjast í helgan stein. Þessi kynslóð
er vel á verði og veit að starfsöryggi
hennar felst fyrst og fremst í því að halda sér „á tánum“. Það
er enn tilbúið til að sveigja reglurnar til að gera hlutina betur
og hraðar.
Ráð fyrir leiðtoga og stjórnendur sem eru með starfsfólk af
þessari kynslóð:
• Stjórnendur þessa hóps ættu að svara spurningum
þessarar kynslóðar með spurningunni: „Hvað er málið?“
• Best er að stjórna henni með því að vera til staðar og
leiðbeina, ekki að „stjórna" of mikið, veita því SMART
endurgjöf (Sértæka, Mælanlega, Áreiðanlega, Réttmæta
og Tímanlega) og umbuna fyrir árangur. SD
Geir Ólafsson,
Ijósmyndari
Frjálsrar verslunar,
faeddur 1966.
29