Frjáls verslun - 01.09.2003, Blaðsíða 74
A íslenskri krá í Flórída
Það var nú hrein tilviljun að við fórum í
þessa ferð,“ segir Björn Yiggósson,
framkvæmdastjóri Kerfisþróunar, þegar
hann er spurður um mótorhjólaferð sem hann
og eiginkona hans, Hallveig Björnsdóttir, fóru
í fyrir skömmu.
„Eg var í bílnum að hlusta á útvarpið þegar
ég heyrði auglýstan kynningarfund í
Harley Davidson búðinni varðandi
Harley Davdison mótorhjólaferð til
Bandaríkjanna. Eg fór á fundinn og
skráði okkur í ferðina sem SBK í
Keflavík skipulagði." Tilefni ferðar-
innar var 100 ára afmæli Harley
Davidson og áætluð heimsókn á
Bikeofest í Daytona Beach, en þar er
tvisvar á ári haldin hátíð mótorhjóla-
fólks.
„I þetta sinn voru þarna um
100.000 mótorhjól og 300.000
manns samankomin og allskonar
hjól þó mest bæri á Harley David-
son,“ segir Björn. „Eg á sjálfur Hondu Shadow sem er álíka
stórt og Harley Davidson hjólin en við leigðum okkur öll HD
hjól þarna úti.“
Það þekkja flestir
Harley Davidson mótor-
hjólin en færri vita að í
ár er 100 ára afmseli
þessara stóru hjóla.
Björn Viggósson og Hallveig Björnsdóttir.
legt að þarna voru menn og konur í sér-
stökum heimi, hjólaheimi.“ Hópurinn íslenski
skemmti sér hið besta og í hringferð sem farin
var, urðu þau fyrir óvæntri upplifun þegar þau
hittu fyrir íslenska krá. „Við fórum hringferð á
hjólunum um Flórídaskagann og á leiðinni frá
Daytona til Orlando stoppuðum við í litlu
þorpi, einhvers staðar „in the middle
of nowhere“ eins og kanarnir segja
og þar sáum við skilti sem á stóð:
„The Frosty Mug, Icelandic pub“
svona eins og maður sér oft skilti þar
sem frskar krár eru kynntar. Þetta
reyndist vera krá rekin af tveim
íslenskum systrum. Kráin hafði
reyndar valdið svolitlu uppnámi
þegar hún var stofnuð, enda hafði það
ekki tíðkast þarna að vera með slíkt.
Nú er hún aðalaðdráttaraflið í bænum
og nágrenni. I þessari hringferð
fórum við meðal annars yfir Evergla-
des fenjasvæðin en það er gríðarlega
sérstakt. Þarna er grunnt vatn yfir allan miðskagann og við
fórum á svifnökkvum í skoðunarferðir og gátum klappað
krókódílum - svona ef einhver hefði áhuga.“
FurðUhjÓI Björn segir mörg furðuhjólin hafa verið á svæðinu
og gaman að sjá þau. „Þarna var farið í eins konar skrúðgöngu
eða hjólagöngu og haldin mikil hátið en Flórída er mjög sér-
stakt hvað það varðar að þar er mótorhjólamekka heimsins ef
hægt er að orða það svo. Þarna gilda ákveðnar umgengnis-
reglur og til að mynda var yfirleitt alveg óhætt að skilja við dótið
sitt hvar sem maður var í ferðinni, það var látið í friði.
Hjólin og það sem að þeim sneri var umræðuefnið og greini-
Með sælubros á vör Björn segir ferðina hafa verið einstaklega
vel heppnaða og telur víst að slikar ferðir verði farnar áfram, líkt
og golfferðir og skíðaferðir. Fararstjórar voru þeir Hafsteinn
Emilsson hjólaáhugamaður og hvatamaður að ferðinni og Einar
Steinþórsson frá SBK ferðaskrifstofunni í Keflavík. „Það eru
margir með þetta áhugamál og ekki vafamál að þeir munu grípa
fegins hendi að fara í heimsókn til Mekka Harley Davidson,“
segir Björn að lokum. H!l
Hópurinn tilbúinn til brottfarar.
Myndir: Björn Viggósson
74