Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.2003, Blaðsíða 21

Frjáls verslun - 01.09.2003, Blaðsíða 21
en stríðinu lýkur aldrei. Iifið heldur alltaf áfram að yrkja. Ég held að það sé hollt að nálgast allan rekstur þannig, baráttunni lýkur aldrei." Þorsteinn segir Vífilfell iýrst og fremst í samkeppni við Ölgerðina. „Ölgerðin er stærsti samkeppnisaðifinn okkar og sá harðvítugasti. En öll samkeppni er að sjálfsögðu tekin alvarlega. Annars reynum við líka að keppa að markmiðum sem eru óháð samkeppninni. Við reynum stöðugt að standa okkur betur gagnvart viðskiptavinum og neytendum óháð því hvað sam- keppnisaðilar eru að gera. Þannig hvílum við aldrei í gömlum af- rekum og erum stöðugt á varðbergi." „Það eru enn margir sem líta á Vífilfell sem Coca-Cola fyrirtæki eingöngu. Það eru fáir sem vita að fyrirtækið er stærst á bjórmarkaði og markaði fyrir ávaxtasafa. Við höfum nú um 45% hlutdeild í verslunum ÁTVR í bjórsölu, en 75% af magninu fer þar í gegn, og enn meiri hlutdeild ef markað- urinn er skoðaður í heild sinni. Við höfum verið að bæta veru- lega við okkur markaðshlutdeild á síðustu misserum á meðan Ölgerðin hefur misst hlutdeild og er nú með tæplega 24% í ÁTVR. Við erum að nálgast það að verða tvöfalt stærri á bjórmarkaðnum." Aðspurður um hvort Vifilfell hafi í hyggju að færa út starfsemi sína og bjóða léttvín og sterk vín til kaupenda segir Þorsteinn: „Við skilgreinum okkur sem markaðsdrifið drykkjarvörufyrir- tæki og ætlum að halda okkur við þá skilgreiningu. Það er ekkert leyndarmál að við höfum verið að skoða möguleikana á því að fara út í að selja léttvín og það er fyrst og fremst til að þjóna viðskiptavinum sem hafa óskað eftír því. Við ætfum okkur að stíga varlega til jarðar í þessu og fara okkur hægt,“ segir hann. „Það er auðvitað „consept" út af fyrir sig að geta boðið heildarpakka þ.e. gosdrykki, bjór, léttvín og sterk vin, en ég held verðmætið í þvi sé stórlega ofmetið. Það getur verið hagræði í því fyrir viðskiptavini að fá sem mest hjá einum birgi en ég hygg að flestir hugi meira að því að hafa réttu vöruna á boðstólum og minna að því að lágmarka tjölda birgja. En ástæðan fyrir því að við höfum kannað möguleika á því að færa út kviarnar með þessum hætti er fyrst og fremst sú að verða við óskum viðskiptavina.“ SH 21
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.