Frjáls verslun - 01.09.2003, Blaðsíða 56
Latibær að springa út!
Höfundur Latabæjar, Magnús Scheving; var á dögunum valinn markaðsmaður ársins af
ímarki. Þessi útnefning kom fæstum á óvart. Magnús hefur verið óþreytandi við að breyta
Latabæ í peningamaskínu og gerði nýlega sögulegan samning við sjónvarpsstöðina
Nickelodeon um framleiðslu og sýningu á 40 þáttum um Latabæ í Bandaríkjunum.
Efdr ísak Örn Sigurðsson
Magnús Scheving, höfundur Latabæjar, var valinn mark-
aðsmaður ársins 2003 á hátíð ímarks á dögunum, en
verðlaunin voru veitt í þrettánda sinn. Það verður seint
sagt um Magnús að hann sé latur maður. Þessi meistari í
þolfimi er orðinn bisnessmaður - og hefur einfaldlega slegið í
gegn með Latabæ. Það fer ekki á milli mála að líf hefur færst í
Latabæ; Latibær er orðinn peningamaskína.
Auðvitað er engin ástæða til að fagna fyrirfram. „Það er
ekki búið að telja upp úr kössunum,“ eins og stundum er
sagt. Ævintýrið er að byija. Enginn veit hvernig og hversu
mikið það vindur upp á sig. En þar sem Magnús
hefur komið fram og kynnt það fyrir mönnum í
viðskiptum hafa allir heillast. Viðskiptahug-
myndin er góð. Samningarnir, sem hann gerði
við bandarísku sjónvarpsstöðina Nickelodeon
um að 40 sjónvarpsþættir um Latabæ fari inn á 86
milljónir heimila í Bandaríkjunum, eru vendi-
punktur fyrir Magnús. Viðskiptahugmyndin á
bak við Latabæ er að fá bæði tekjur af þáttunum
og framleiðslu varnings tengdum Lataþæ.
Nickelodeon er vinsælasta barnastöð í Banda-
ríkjunum, en hún er hluti af einni stærstu fjöl-
miðlasamsteypu þar í landi, Viacom. Vörur
tengdar sjónvarpsefhi Nickelodeons velta um 2,5
milljörðum Bandaríkjadala (175 milljörðum
króna) á ári. Slái þættirnir um Latabæ í gegn er
gert ráð fyrir umtalsverðum tekjum af sölu varn-
ings í Bandaríkjunum og víðar með frekari
útbreiðslu þeirra.
Það var stór stund fyrir Magnús þegar hann
settist niður við samningaborðið með Brown
Johnson, aðstoðarframkvæmdastjóra barna-
deildar Nickelodeons og undirritaði samninginn
um gerð 40 sjónvarpsþátta um Latabæ; söguna
sem gengur út á að hvetja börn til hollari lífs-
Magnús Scheving var valinn markaðsmaður ársins af ímarki á dögunum.
Ævintýrið um Latabæ er að vinda upp á sig og allt stefnir í að Latibær sé
að breytast í peningamaskínu. FV-mynd: Geir Ólafsson.
56