Frjáls verslun - 01.09.2003, Blaðsíða 88
„Á fyrsta mánuði hjá TALi kom reynsla mín af vinnu með fötluðum fram. Ég var
sjálf að læra á farsíma og möguleika þeirra og sá strax að sms-textaskilaboð væru
bylting fyrir heyrnarlausa og ræddi það við yfirmenn mína," segir Baldvina Snæ-
laugsdóttir, markaðsstjóri hjá Og Vodafone. Mynd: Geir Ólafsson
FÓJLK
þá reynslu að leiðarljósi síðan.“ Atvikin
höguðu því svo að árið 1997 þótti Bald-
vinu hún standa á krossgötum í lífinu.
Hún ákvað að söðla algjörlega um, skipta
um umhverfi og prófa annan starfs-
vettvang.
„Þetta var ekki auðveld ákvörðun þar
sem starf mitt á sambýlinu gaf mér mjög
mikið og tengsl mín við íbúa þar voru
orðin mjög sterk. Eg ætlaði að flytja til
Danmerkur, en komst nú ekki lengra en
til Reykjavíkur. Eg fór að svipast um eftir
starfi, vildi eitthvað allt annað en ég hafði
áður prófað og sá auglýsingu um laust
starf hjá Islenska farsímafélaginu hf. sem
átti að hefja farsímarekstur þá um vorið.
Þetta fannst mér nógu spennandi og óllkt
þvi sem ég hafði starfað við. Hugsaði með
mér: Þetta er starf sem ég tek ekki með
mér heim á kvöldin eða tek inn á mig á
einhvern hátt Það fór svo að ég fékk
starfið og Islenska farsímafélagið hf. hóf
rekstur sinn undir nafninu TAL hf. Og þá
byrjaði ballið! Þetta var írábær tími.
Baldvina Snælaugsdóttir,
markaðssljori hjá Og Vodafone
Bfdr Vigdisi Stefánsdóttur
Baldvina Snælaugsdóttir er fædd og
uppalin á Akureyri og segist bara
nokkuð stolt af því. „Eg nýti frí-
stundir til að skreppa norður og leyfa
mömmu að stjana við mig og ekki er
verra að komast í kjötbollurnar hennar
ömmu,“ segir hún. „Eg á systur sem býr
á sveitabæ rétt fyrir utan Akureyri og það
er fátt betra til að tappa af sér stressi og
streitu, en að komast þangað í kyrrðina.
Þar er allt annar taktur í gangi. Að
komast á skíði í Hlíðarfjalli um páskana
finnst mér toppa allt, meira að segja jólin.
Annars má segja að áhugamál mín
iýrir utan vinnuna sé vinnan! Félagslífið
er einnig mjög gott og við starfsmenn
finnurn okkur endalaust tilefni til að hafa
meira gaman. Frítíma sem gefst reyni ég
að nýta lýrst og fremst með dóttur minni.
Við erum tvær sem skottumst í heimili
og í erilssömu starfi mínu hefur þetta oft
verið erfitt púsluspil, þar sem bestu
barnapíurnar, ömmur og afar, eru fyrir
norðan. Þetta er samt allt að verða léttara
í dag, þar sem skvísan er orðin 13 ára en
við pössum vel að eiga okkar gæða-
stundir."
Baldvina segist hafa farið í gegn um
hefðbundna skólagöngu á Akureyri og
tekið stúdentspróf frá MA árið 1985. Eftir
það flutti hún suður til Reykjavíkur og hóf
nám í þroskaþjálfun og lauk því árið 1989.
„Eg flutti árið eftir aftur norður, en það
átti bara að vera eitt ár. Var þá að eignast
mitt fyrsta barn og vildi vera nálægt
mömmu svona fyrst um sinn. Arin voru
svo áður en ég vissi af orðin sjö!
Eg starfaði í sérskóla fyrir fatlaða, en
bauðst að taka þátt í uppbyggingu á nýju
sambýli fyrir fjölfatlaða og veita því for-
stöðu. Þar öðlaðist ég mikla og góða
reynslu, í stjórnun, skipulagningu og
ekki hvað síst lærði ég mikið af skjól-
stæðingum mínum sem hafa kennt mér
að með lífsgleði og jákvæðni er hægt að
sigrast á öllum erfiðleikum. Eg hef haft
Fyrstu tvö árin starfaði ég í þjónustu-
veri og kenndi landanum að nota talhólf
og senda sms og hef frá vori 2000 starfað
í markaðsdeild þar sem mér finnst ég á
réttri hillu. Þetta er mjög spennandi starf
í alla staði og fjölbreytt og ég gegni
margþættu hlutverki. Aðalstarfið er
tengsl við auglýsingastofu við auglýs-
ingagerð svo og birtingahús, gerð
tilboða og þróun nýrrar þjónustu, sam-
starfsverkefni, innri markaðssetning og
sérstakar uppákomur miðaðar við að efla
ímynd vörumerksins. A fyrsta mánuði
hjá TAIi kom reynsla mín af vinnu með
fötluðum fram. Eg var sjálf að læra á
farsíma og möguleika þeirra og sá strax
að sms-textaskilaboð væru bylting fyrir
heyrnarlausa og ræddi það við yfirmenn
mína. Það varð úr að fyrirtækið kynnti
þessa tækni fyrir nemendum og for-
eldrum Heyrnleysingjaskólans, gaf
þeim gsm-síma og flýtti þannig fyrir upp-
götvun þeirra á þessari tækni sem hefur
gjörbrejht lífi heyrnarlausra. [E
88