Frjáls verslun - 01.09.2003, Blaðsíða 82
Stjarna Abby Joseph Cohen, forstöðumanns spádeildar Goldmans Sachs, skaust
upp eins og hlutabréfakúrfan á síðasta áratug, en hefur haldið velli í hruna-
dansinum. Sigrún Davíðsdóttir sat fúnd með þessari merku konu á dögunum.
Texti: Sigrún Davíðsdóttir
Queen of the Bulls“, ,A stock star and not a rock star“ og
„virtasti og áhrifamesti markaðsiýnirinn" eru nokkur
þeirra heita, sem hafa hafa verið notuð um Abby Joseph
Cohen. Það er þó ekkert drottningarlegt við þessa lágvöxnu
konu 1 grárri dragt, svörtum bol, svörtum sokkabuxum og
svörtum skóm með marglita slæðu.
„Skyldi traustvekjandi fas hennar vera útspekúlerað og æft
eða ætli hún sé bara svona?“ hvíslar þýsk blaðakona. Ekki gott
að segja, fasið virðist fjarska eðlilegt, en Abby Cohen þarf ekki
að biýna raustina. Þegar hún opnar munninn þá hlusta allir,
það hægist á markaðnum og síðan fer hann upp eða niður eftir
því hver boðskapurinn er. Á hlutabréfauppgangstímum gátu
orð hennar skotið fyrirtækjum upp eða sökkt þeim.
HÚn hefur haldið velli En andstætt ýmsum ijármálagúrúum
síðasta áratugar hefur staða Abby Cohen haldið velli í niður-
sveiflunni undanfarin misseri. Hún stýrir nú bandarísku spá-
deild Goldman Sachs Jjárfestingabankans. Þegar hún
mætti á fund í London með nokkrum blaðamönnum
var Peter Oppenheimer, yfirmaður Evrópuspádeildar
bankans, með í förinni og hvorugt þeirra var bangið
við að vera bjartsýnt á framtíðina. En það er heldur
ekki stíll Cohen að vera með neitt svartagallsraus ef
hún mögulega kemst hjá því.
Látlaust yfirbragð hennar er í stíl við líf hennar.
Hún fæddist 1952 í Queens, úthverfi New York, og
þar býr hún enn með eiginmanni sínum, sem er lög-
fræðingur og starfsmannastjóri við Columbia
háskólann. Þau kynntust í skóla, giftust og eignuðust tvær
dætur sem nú eru um tvítugt. Fjölskyldan kaus að búa áfram
í hverfinu því þar bjuggu amma og afi og fleiri skyldmenni og
ijölskylduböndin eru óspart ræktuð.
Cohen er gyðingur af pólskum ættum, dóttir menntaðra for-
eldra sem lögðu hart að sér. Yfirvegaða afstöðu sína til lífsins
og tilverunnar segist hún hafa frá föður sínum. Frá mömmu
sinni lærði hún að kynna sér hlutina, mynda sér síðan skoðun
og framiylgja henni.
Tekur Strætó í vinnuna Þótt starf Abby Cohen hafi vísast fært
fjölskyklunni tekjur af stjarnfræðilegum stærðum fer hún enn
í strætó í vinnuna á Wall Street. Kosturinn er að þannig kemst
hún hratt, örugglega og þægilega í vinnuna og fær alltaf sama
sætið í strætó - segir hún sjálf og gleymir ekki að nefna að fjöl-
skyldan sé ekki nein dæmigerð Wall Street fjölskylda. Keiluspil
og billjard stundaði hún með fjölskyldunni í nágrenninu, þar til
hálsmeiðsli bundu enda á þá skemmtun
iýrir nokkrum árum. Vinnan er heldur
ekki upphafið og endirinn í lífi hennar,
undirstrikar hún gjarnan í viðtölum.
Cohen lagði stund á hagfræði og
tölvufræði við Cornell og fór svo í fram-
haldsnám í hagfræði við George Wash-
ington háskóla. Hún hóf störf hjá banda-
ríska seðlabankanum í Washington,
áður en hún fór yfir í einkageirann, upp-
lifði sveiflur og gjaldþrot í lok níunda ára-
„Drottning markað-
arins.“ „Virtasti og
áhrifamesti mark-
aðsiýnirinn." Þetta
er á meðal heita
sem hafa verið
notuð um Abby
Joseph Cohen.
82