Frjáls verslun - 01.09.2003, Blaðsíða 44
Sægreifinn Rokke
Skuldirnar eru að sliga norska sægreifann Kjell Inge R0kke:
Getur einhver skipt
- ég á ekki smápeninga?
Norðmaðurinn Kjell Inge R0kke var einu sinni ríkasti maður Noregs. Nú er hann í
kröggum. Hann hefur að mati sérfræðinga reynt að gína yfir of mörgu, vanrækt
að treysta fjárhagslegan grundvöll fyrirtækja sinna og verður að fella seglin.
Ríkasti maður Noregs er orðinn skuldugasti maður landsins.
Textí: Gísli Kristjánsson, Ósló
Kjell Inge Kakke greiðir yfir 40 þúsund manns laun með
einum eða öðrum hætti. Fjórir verkamanna Rukkes hafa
það verkefni að gæta sumarhúss hans að Seljahlíð í Upp-
dal í Noregi. Fjórmenningarnir eru formlega í vinnu hjá fyrir-
tæki sem heitir íbúðarhúsið h/f en þar er áðurnefndur Kjell
Inge Rokke aðalhluthafi. Hann stofnaði sem sagt hlutafélag um
sumarbústaðinn, sem er metinn á um milljarð íslenskra króna.
Allt í lagi. En Rokke leigir einnig hluta lóðarinnar undir húsið af
íbúðarhúsinu h/f en á blettinn þó aðallega sjálfur. Fyrir lóð og
hús var greitt með lánum frá öðrum fyrirtækjum Rokkes.
Rokke hefur nú keypt sjálft húsið, með þreföldum snjósleða-
skúr ásamt öðrum þægindum, af Ibúðarhúsinu h/f, sem sér þó
áfram um að gæta hússins en Rnkke greiðir samt laun fjór-
menninganna, sem gæta hússins, úr eigin vasa.
Ærir óstöðuga Þegar Rokke er spurður um tilganginn með
þessari flækju segir hann: „No comment". Og lærðir menn sjá
ekki tilganginn með að koma málum svona fyrir vegna eins
sumarhúss þótt stórt og dýrt sé. Töluglöggir bókhaldarar reita
hár sitt þegar þeir heyra um eigna- og skuldatengsl í veldi
Rokkes - já reyndar í fallandi veldi Rokkes.
En þessi saga um sumarhúsið hans Rokkes er dæmigerð
fyrir hann:
• Eignatengsl í fyrirtækum hans eru mjög flókin og stundum
erfitt að sjá tilganginn með flækjunum.
• Rokke flytur gjarnan fé milli fyrirtækja sinna, tekur lán hjá
einu til að greiða skuldir annars.
• Öll skil milli hans sjálfs og ijölda fyrirtækja og hlutafélaga,
sem hann á einn eða með öðrum, eru óljós.
• Einkaneysla Rokkes er gífúrleg og vekur oft meiri athygli
en rekstur fyrirtækja hans.
Skuldasúpa í september sl. lenti Rokke einmitt í miklum
vanda vegna óljósra stöðu eigna og skulda í fyrirtækjunum.
Eignahaldsfélagið Orkla lánaði honum árið 1996 um 600
milljónir norskra króna til að byggja upp rekstur Norway
Seafood.
Stjórnendur Orkla grunaði að Rokke tæki aðra lánar-
drottna fram yfir þá við afborganir af lánum. Þeir gjaldfelldu
því lánið til að tryggja sinn hag. Rokke hugðist redda málinu
með sama hætti og svo oft áður - nefnilega að láta Norway
Seafood taka lán hjá Aker RGI til að borga Orkla. Og þá greip
um sig ótti meðal annarra lánardrottna Rokkes og meðal
meðeigenda hans í Aker RGI.
Rokke varð að fá gjaldfrest og líklegt er að þessi skulda-
kreppa leiði til þess að veldi hans verði að hluta leyst upp að
kröfu þeirra banka og fárfestingafélaga sem mest eiga inni hjá
honum. Hitt er engu að síður ljóst að Rokke er ekki gjaldþrota.
Hann á fyrir skuldum.
Enn vel likur Yiðskiptablaðið Kapital metur hreina eign
Rakkes í ár á um 1,6 milljarða norskra króna. Það eru rúmir 17
milljarðar islenskra króna. En Rokke hefur á einu ár tapað um
10 milljörðum íslenskra króna og eignir hans nú eru aðeins um
10% af því sem var þegar hann var ríkasti maður Noregs. Núna
er hann bara 29. ríkasti maður landsins að mati Kapital.
En hvert er veldi Rokkes? Hvar vinna þessir ríflega 40
þúsund launamenn sem með einum eða öðrum hætti eru
starfsmenn hans?
Rokke á ráðandi hlut í sjö fyrirtækjasamsteypum. Þetta eru
fyrirtæki sem hann hefur eignast - oft með ævintýralegum yfir-
tökum á liðnum 15 árum. Stundum hafa kaupin reynst honum
dýr, stundum ekki.
44