Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.2003, Side 27

Frjáls verslun - 01.09.2003, Side 27
Risarnir nota krafta sína - segir Hildur Hörn Daðadóttir, viðskiptastjóri áfengis hjá Karli K. Karlssyni. Við flytjum inn og seljum gæðabjór á flöskum, dósum sem og í krana en það umhverfi er auðvitað allt öðruvísi heldur en hjá þeim fyrirtækjum sem framleiða sinn eigin bjór - það fylgir ákveðinn kostnaður innflutningi. Það sem við höfum tekið eftir í þessari baráttu á markaðnum er að Vífilfell og Ölgerðin hafa notað krafta sina í áfengum og óáfengum drykkjum og gert heilstæða samninga við veit- ingastaði um drykkjarvörur með jafnvel hærri afslætti en áfengar drykkjarvörur bera. Þetta er eitthvað sem þeir geta nýtt sér í krafti stærðar sinnar og með því að hafa þetta framboð. Þeirra samkeppnisstaða er allt öðruvisi en okkar, sér í lagi þar sem einungis tveir aðilar hér á landi selja gos- drykki. Við höfum einnig upplifað það að veitingastaður, sem ákveður að kaupa eina vörutegund af okkur, glati jain- vel afslættinum sem þeir hafa hjá viðkomandi fyrirtæki. Þannig er harkan í þessari þaráttu." Bli verslunum. Enn vantar þó inn í slíkar mælingar kvikmyndahús, veitingastaði o.fl. Samkvæmt nýjustu tölum fyrirtækisins í gosdrykkja- markaði og sem bornar eru saman við sama tímabil í fyrra má sjá verulegar breytingar á einstökum vöruflokkum í gosdrykkjamarkaðnum. Þær tölur sem Frjáls verslun birtir í þessari grein mæla svokallað „value-share“ en það er hlutfalls- legt virði gosdrykkjanna sem seljast í verslunum. En mælingar Markaðsgreiningar eru gerðar úr frá svonefiidu „volume- share“ sem eru magnbundnar mælingar. Eins og sjá má á töfl- unni yfir 10 söluhæstu merkin í gosdrykkjum, hefur markaðs- hlutdeild Vífilfells á Coca-Cola dalað töluvert milli ára en að sama skapi hefur fyrirtækið aukið hlutdeild sína í Diet-Coke, Sprite, Fanta og Toppi. Ölgerðin hefur aukið hlutdeild sína a Pepsi-Max milli ára auk þess sem Egils Appelsín bætir við sig hlutdeild en Egils Kristall, Diet-Pepsi og Pepsi tapa hlutdeild. Þegar litil er til þess hversu stóra markaðshlutdeild fyrir- tækin tvö hafa í þessum 10 söluhæstu gosdrykkjamerkjum, sést að þau bæta bæði við sig markaðshlutdeild en Ölgerðin örlítið meira en Vífilfell. Þetta eru þó ekki nákvæmar mæl- ingar þar sem þau hafa fleiri vörumerki sem ekki mælast þar fyrir neðan. Uppgjör og sameíning Hvorki Vífilfell né Ölgerðin eru tilbúin að láta af hendi mikið af opinberum uppgjörum. Samanlögð velta Ölgerðarinnar og Lindar á síðasta ári var rúmir 5 milljarðar króna, en þess ber að geta að fyrirtækin voru ekki sameinuð fyrr en í byijun þessa árs. Velta Vífilfells er aðeins meiri, eða um 5,3 milljarðar. Hins vegar starfa mun fleiri hjá Vífilfelli en Ölgerðinni. Leiða má að þvi líkur að töluverðar hræringar geti orðið á drykkjarvörumarkaði á næstu misserum. Yfirvofandi eru sam- einingar vínfyrirtækja erlendis sem gæti hæglega leitt til ein- hverrar uppstokkunar hér heima. Samkeppnin verður þó enn til staðar jafiit á gosdrykkja-, bjór- og vínmarkaði. Vífilfell hefur ákveðið að kanna hvort grundvöllur sé fyrir því að bæta léttvínum í flóru sína sem skapar fyrirtækinu aukna veltu og veitir Ölgerðinni samkeppni. Ölgerðin hefur ákveðið að hreinsa til í vöruflokkum sínum og mun eflaust ná að sýna fram á hvernig samlegðaráhrifin af sameiningunni við Iind eiga að komafram.S!] ATLANTSSKIP Næst þegar þú sérð hvar vara e hugsaðu þá um hvernig hún komst alla 27

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.