Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.2003, Síða 66

Frjáls verslun - 01.09.2003, Síða 66
Friðrik Pálsson, formaður Amerísk-íslenska verslunarráðsins. ferðamenn". „Þessi skilgreining vísar í það að ferða- menn frá Bandaríkjunum eru verðmætír ferðamenn þar sem þeir ferðast yfirleitt ekki á ódýrasta máta og skilja þar að auki talsvert eftir sig af gjaldeyri. Það skiptir því miklu að viðhalda þeim samskiptum og auka þau.“ Island hefur að mörgu leyti mikla sérstöðu í augum ferðamanna og Friðrik telur að leggja eigi áherslu á litla mengun og litla spillingu og þurfi það bæði að eiga við landið sjálft og þjóðina. „Eg hef ítrekað rekið mig á það að ferðamenn frá Ameríku segja þjóðlífið hafa sterkan evrópskan blæ á meðan ferðamenn frá Evrópu segja það amerískt. Við erum mitt á milli heimsálfanna og höfum náð því að blanda saman í hæfilega miklum mæli áhrifum frá báðum. Eg tel að okkur hafi tekist að fleyta qómann ofan af og það er mikils virði.“ Fleira en fiskur Ýmis önnur viðskiptí en fiskur og ferðamál eru fyrirferðarmikil á milli landanna. Stór hlutí af innfluttum matvælum kemur að vestan, fyrir- Mitt á milli heimsálfa Friðrik Pálsson er formaður Amerísk-íslenska verslunar- ráðsins og hefur langa reynslu af viðskiptum við Bandaríkin í gegnum störf sín. „Eg var forstjóri SH í 13 ár og síðar stjórnarformaður SIF í 4 ár og bæði þessi fyrirtæki eiga umfangsmikil viðskiptí við Bandaríkin," segir Friðrik. „Mín samskipti við Ameríku hafa fyrst og fremst verið verslun með fisk og fiskafurðir vegna þessara starfa minna en viðskipti Islendinga við Bandaríkin hafa verið afskaplega mikilvæg fyrir útflytjendur, þó svo hlutfallslega hafi dregið úr þeim á undan- förnum árum. Bandaríski fiskmarkaðurinn er þó enn sá verð- mætasti fyrir íslenska fiskútflytjendur. Þegar horft er fram á veginn tel ég augljóst, að Bandaríkjamarkaður verði einn af þeim mörkuðum sem munu skipta okkur mestu máli.“ Sterk Staða íslands „Þó að fiskmarkaðurinn vestra sé okkur mikilvægur, undirstrikar Friðrik að það verði seint fullmetið hvað það hefur þýtt mikið fyrir viðskipti og samskipti Islend- inga við umheiminn að Loftleiðir fengu í sínum tíma leyfi til flugs til Bandaríkjanna. Það skipti áreiðanlega sköpum fyrir viðskiptalífið hér á landi í heild sinni. „Fyrir vikið höfum við haft auðveld samskipti við þennan mikilvæga markað og höfum þar býsna sterka stöðu í marg- víslegu tilliti og fyrir þjóð sem er og verður aldrei annað en örmarkaður í samanburði við önnur lönd, skiptir það miklu máli.“ Islenskur ferðamannaiðnaður reiðir sig að talsverðu leyti á ferðamenn frá Bandaríkjunum sem eru að sögn Friðriks „góðir tæki á hátæknisviði hafa verið að þreifa sig áfram vestan hafs og segir Friðrik þau samskipti hafa verið farsæl og skilað talsverðu til landsins. „Við flytjum síðan að sjálfsögðu inn mikið af tölvum og ýmsum hátækni- og vélbúnaði frá Bandaríkjunum auk hug- búnaðar. Af öðrum viðskiptum við Bandaríkin ber kannski einna mest á bílum, flugvélum og tækjum, en það hefur m.a. sveiflast mikið eftír gengishreyfingum og fyrir nokkrum ára- tugum tíðkuðust ýmsar undarlegar viðskiptahindranir, sem nútíma Islendingum myndi ganga illa að skilja, en þær höfðu gríðarleg áhrif á það frá hvaða löndum máttí kaupa og til hvaða landa viðskiptum var beint.“ Amerískar vörur hafa yfirleitt á sér talsvert sterkan gæða- stímpil. Þekkt er ending bandarískra heimilistækja og á heimili Friðriks er ennþá Westínghouse eldavél frá um 1960. „Frábært heimilistæki, fljótvirkt og afkastamikið," segir Friðrik. „Svo á ég 1947 árgerðina af Willys í góðu standi, bílnum sem vann seinni heimstyijöldina að margra mati. Byijað var að framleiða hann snemma í heimstyijöldinni og núna 60 árum síðar byggja framleiðendur jeppa ennþá á sömu grunnhugmyndunum, grind með tveimur öxlum og tjórum hjólum, háu og lágu drifi og framdrifi. Svona mætti lengi áfram telja og enda þótt fjölmargar aðrar þjóðir hafi að sjálfsögðu skákað bandarískri framleiðslu á ýmsum sviðum á undan- förnum áratugum stendur einhvern veginn alltaf uppúr, að það sem er bandarískt er sterkt, traust, notadijúgt og kannski líka dálítið stórt í sniðumríHH ísland er mitt á milli Evrópu og Ameríku. Ekki bara í landfræðilegum skilningi, heldur einnig hvað menningu snertir. 66
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.