Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.2003, Side 78

Frjáls verslun - 01.09.2003, Side 78
Gróska í starfsemi Eimskips Siglingar milli Bandaríkjanna, Kanada og íslands á vegum Eimskips eru samtengdar sögu félagsins frá upphafi og fastar siglingar staðið yfir óslitið frá árinu 1939. Að sögn Garðars Jóhannssonar framkvæmdastjóra utan- landssviðs Eimskips starfrækir Eimskip starfsstöðvar í Nor- folk í Virginíu, Halifax á Nova Scotcia og St. John's á Nýfundnalandi auk þess sem Eimskip er hluthafi í og rekstraraðili umsvifamikillar löndunar- og frystigeymsluþjón- ustu í Harbour Grace á Nýfundnalandi. Skip Eimskips sigla hálfsmánaðarlega milli Islands og austurstrandar Bandaríkj- anna og Kanada. Siglingahringurinn tekur að jafnaði 28 daga og hafa skipin fasta viðkomu í sex höfnum vestanhafs í hverri ferð. „Umsvif þjónustu- og flutningastarfsemi Eimskips í Bandaríkjunum og Kanada hafa verið í miklum vexti á þessu ári, svo miklum að þar á bæ muna menn vart meiri flutninga á vegum félagsins á þessu markaðssvæði" segir Garðar. ,Almennir stykkjavöruflutn- inga frá Bandaríkjunum til Islands hafa aukist verulega á árinu miðað við fyrri ár. Astæðan er aukin viðskipti milli landanna og á þróun gjald- miðla þar vafalítið sinn þátt. Þá hafa flutningar félagsins til og frá Kanada og Nýfundnalandi slegið öll fyrri met. Miklar landanir fiskiskipa af Flæmska hattinum, flutningar sjávar- afurða til Nýfundnalands, sérstaklegar frá Islandi og Noregi hafa verið í örum vexti, uppbygging samfara auknum olíu- Garðar Jóhannsson, framkvæmdastjóri utanlandssviðs Eimskips. iðnaði á Nýfundnalandi er umtalsverð ásamt virkri þátttöku Eimskips í uppþyggingu flutningaleiðar milli Kanada og Grænlands.“ Reglulegir gámaflutningar Garðar segir skip félagsins hafa verið afburða vel nýtt allt þetta ár og oftar en ekki full- bókuð, bæði í inn- og útflutningi. „Vegna mikilla landana fiskiskipa á Nýfundnalandi á þessu ári hefur Eimskip, til við- bótar við áætlanaskipin verið með frystiskip í rekstri milli Islands og Nýfundnalands góðan part ársins auk þess sem nokkrum flutningum frá Bandaríkjunum til Islands hefur verið stýrt um Evrópu," segir Garðar og bætir því við að því fari fjarri að flutningastarfsemin miðist eingöngu við flutninga til og frá Islandi. Þessu til stuðnings nefnir Garðar að alltaf séu reglulegir gámaflutningar með skipum félagsins milli Bandaríkjanna og Evrópu þar sem gámunum er um- skipað á Islandi. Starfsstöðvar félags- ins vestanhafs stundi öfluga flutnings- miðlun þar sem gámar eru fluttir, sérstaklega til Evrópu og Austurlanda ijær, algjörlega utan áætlanakerfa Eimskips. Umtalsvert magn hafi verið flutt frá Evrópu til Nýfundna- lands tengt olíuiðnaðinum, bæði með skipum félagsins og sérstökum leiguskipum beint frá Bretlandi. Þá sé þátttaka Eimskips í uppbyggingu flutningaleiðar milli Kanada og Grænlands áhugavert og skemmtilegt verkefni sem unnið sé í samvinnu við grænlenska skipafélagið Royal Arctic Line og hafi Skógafoss skip Eimskips haft átta viðkomur í Nuuk á Grænlandi á þessu ári á leið skipsins frá Kanada til Islands. Aðspurður um framtíðaráform Eimskips vestanhafs segir Garðar uppbygginguna undanfarin ár að mestu hafa miðast við innri vöxt, þ.e. að þyggja upp og efla starfsstöðvar félags- ins út frá þeim grunni sem þær starfi á, auka samlegðaráhrif milli starfsstöðvanna og virkja þá þekkingu sem býr í starfs- fólki félagsins. „Nýlegar ijárfestingar og þróunarverkefni eins og í löndunar- og frystigeymsluþjónustu á Nýfundnalandi og flutningar milli Kanada og Grænlands eru verkefni sem falli vel að og styðja við sérhæfingu Eimskips sem leiðandi flutn- ingsaðila á sjávarafurðum á N-Atlantshafi. Islensk fýrirtæki eru í auknu mæli að hasla sér völl í Kanada. Nýverið var stofnað til íslensk-kanadísks verslunarráð og Eimskip ætlar sér að vera virkur þátttakandi í þeirri þróun sem þar á sér stað. Framundan eru áhugaverðir tímar fyrir Eimskip bæði í Bandaríkjunum og Kanada félagið mun örugglega halda áfram að vaxa í þessari heimsálfu." 33 EIMSKIP HEFUR VERIÐ í hópi leiðandi aðili í þróun samgangna og útrásar íslenskra fyrirtækja í Bandaríkjunum og Kanada allt frá því félagið hóf fyrst siglingar til Ameríku 1915. 78

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.