Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.2003, Qupperneq 87

Frjáls verslun - 01.09.2003, Qupperneq 87
Piedmont á íslandi Fijótt á litið er nokkuð gott úrval vins frá Piedmont í verslunum ÁTVR. Þegar hins vegar er betur að gáð, er lítið um áhugaverð vín frá Piedmont, sum eru hreint og beint annars flokks borðvín. Vissulega er hægt að fá ljóm- andi vín, en þau kosta skildinginn. Gaja Barbaresco á kr. 13.790,- Þó að þetta sé í sjálfu sér ljómandi vín er það þó ekki 13.000 króna virði. Gaja Barolo Sperss kostar aðeins kr. 16.900,- Þetta er svo sannarlega frábært vín sem hægt er að mæla með fyrir þá sem hafa efni á því. Þó að það sé rauðvín sem er hvað áhugaverðast frá Piedmont, þá koma þaðan einnig nokkrar áhugaverðar hvítvínstegundir, einkum sætt eftirréttavín. La Zerba Gavi Terrarossa á kr 1.500.- er einkar þægilegt hvítvín. Þetta er þurrt og ávaxtaríkt vín, létt og frísk- andi, - úrvals fordrykkur og ágætt eitt sér, til dæmis í staðinn fyrir þjór. Giordani Barbera d’Asti Maestri Italiani á kr. 1.210,- er hins vegar athyglisvert rauðvín á góðu verði. Þetta er létt rauðvín með berja-, já jafnvel bláberjabragði og ögn af kryddi. Monchiero Barolo Riserva Montanello kr. 2.590.- er sæmilegt Barolo á þægilegu verði. Michele Chiralo Barolo á kr. 4.060,- er hins vegar áætis Barolo, frábært matarvín t.d. með lamba- kjöti. Þetta er bragðmikið vín, dökkt á lit með ávaxta- og berja- bragði, einnig gætir flókins kryddbragðs og vanillu, neguls og pipars. Þetta vín er nokkuð stamt í munni en mun opnast betur á næstu árum. Þetta er ekta gott Barolo. Rétt er að geta þess að nú fyrir jólin mun koma töluvert magn af nýjum vín- tegundum á reynslulista ÁTVR, meðal annars vin frá meistar- anum mikla Gaja. Bava I þann mund sem ég er að setja þennan pistil á þlað, eru að koma í reynslusölu hjá ÁTVR áhugavert vín frá skemmtilegum vínlramleiðanda í Piedmont, - fjölskyldufyrir- tækinu Bava. Höfuð fjölskyldunnar er pabbinn Piero, en segja má að synirnir Roberto, Giulio og Paolo reki fyrirtækið í dag. Fjölskyldan hefur stundað vínrækt í sex kynslóðir. I fyrstu ræktuðu þau vínþrúgur og seldu til annarra framleiðenda. Árið 1911, þegar járbrautin kom til Piedmont, fór flölskyldan að framleiða vín og selja til Rómar, Torino og Milano. Bava er tiltölulega lítið fyrirtæki, - framleiðslan er aðeins um 600.000 flöskur á ári. Einkenni Bava vínsins er að búið er að laga það að nútímanum ef svo má segja. Það er þó einkennandi fyrir Pied- mont, gamlar hefðir eru í heiðri hafðar. Vín frá Bava er hins vegar léttara og mýkra en gengur og gerist með vín héraðsins. Bava hefur sérhæft sig og þróað Barbera vín á skemmtilegan hátt. Vínin frá Bava fjölskyldunni eru því einkar góð matarvín. vínið fra Bava Framkvæmdastjóri Bava, Roberto, var staddur hér á landi í lok nóvember. Átti ég þess kost að bragða á nokkrum víntegundum fjölskyldunnar. Iibera er ungt vín en purpurarautt á lit. I nefi er ilmur af karamellu og balsamediki. Bragðið er þægilegt, mild vanilla, pipar og marmelaði.Ljúft matarvín á góðu verði. Arbést er vín sem hefur vakið verulega athygli, enda gæðavín með skemmtilegum sérkennum. Þrúgurnar eru handtíndar og vínið látið þroskast í frönskum eikartunnum, fyrst í svokölluðum Barriques, sem eru litlar tunnur og svo i stórum eikarámum. Þetta er ilmríkt vín með Vínin frá Bava-fjölskyldunni eru gott dæmi um þá byltingu sem orðið hefur ívíngerð ítala. Bava-vínin eru byggð á hefð- um héraðsins en hafa verið aðlöguð smekk nútímans. angan af ávöxtum, jarðarbeijum og kryddi. Bragðið er ávaxta- ríkt og létt kryddað, gott kjötvín. Stolt Bava ijölskyldunnar er Stradevario, - í einu orði sagt frábært vín með alla góða eigin- leika vínanna frá Piedmont. I nefi má greina ávexti og vanillu. Bragðið er mjúkt og þægilegt, austrænt krydd og ávextir, eink- anlega má greina bragð af þurrkuðum ávöxtum og í eftir- bragðinu er beijasulta og jafnvel kaffi. Þetta er rétta vínið með villibráðinni. Þeir lesendur sem eiga ijúpur frá því í fyrra ættu að hafa þetta frábæra vín með jólarjúpunni. Piedmont, matur 09 vín Eins og áður hefur komið fram er matur og vín Piedmont-héraðs frábær. Héraðið er því tilval- inn áfangastaður fyrir sælkera og unnendur góðs víns. Landslag héraðsins er heillandi, grónir dalir og fjöll og lítil vinaleg þorp. 35 Sigmar B. Hauksson mælir með eftirtöldum vínum: Hvítvín La Zerba Gavi Terrarossa kr. 1.510,- Rauðvín Giordani Barbera d'Asti Maestri Italinai kr. 1.260,- Monchiero Barolo Riserva Montanello kr. 2.590.- Michele Chiarlo Barolo kr. 4.060.- Libera Barbera d'Asti kr. 1.690.- Arbest Barbera d'Asti kr. 1.990,- Stradivario, Barbera d'Asti Superiore kr. 3.690.- 87
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.