Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.2003, Page 89

Frjáls verslun - 01.09.2003, Page 89
FÓLK Efdr Vigdísi Stefánsdóttur Ætli það séu ektó góðir reyfarar," segir Oskar Tómasson, einn af eigendum og framkvæmdastjóri Bang & Olufsen á íslandi, glettnislega þegar hann er spurður um uppáhalds- bókmenntirnar og bætir við: .Auðvitað ætti ég að segja eitthvað háleitt og nefna stór bókmenntaverk en ég hef aldrei séð ástæðu til að sýnast eitthvað annað en ég er og læt þetta því flakka.“ Óskar stundaði nám í Danmörku og segist hafa upplifað það sem svo margir hafi gert, að finna sig meiri Islending þá en nokkru sinni. ,Á meðan ég var úti las ég íslenskar sögur og allt mögulegt sem minnti mig á landið," segir hann. „Það á einhvern veginn svo vel við og tengir mann við heimalandið." Rekstraraðilar Bang & Olufsen á Islandi er Aldamót ehf., sem hefur það eina hlutverk að sinna rekstri Bang & Olufsen. Óskar segist hafa í námi og starfi sínu í Danmörku kynnst vel hinum vönduðu vörum B&O en hafa fyrir utanförina þekkt til þeirra og hrifist af gæðum og fegurð þeirra. „B&O eru danskar vör^-sem sýna hið besta sem velkomsi ^ BeoLab 8000 »ound. ilmptkny o' <>' U' dol.vrn* MPorkM* i.í modeit dimennoin BeoSound 3200 Hlít'rtí'd 10 P'C oihfi rl««if*l equ.pmeot „Á meðan ég var úti las ég íslenskar sögur og allt mögulegt sem minnti mig á landið," segir hann. „Það á einhvern veginn svo vel við og tengir mann við heima- landið," segir Óskar Tómasson, framkvæmdastjóri Bang & Olufsen. Mynd: Geir Ólafsson Oskar Tómasson, Bang & Olufsen Danmörk elur af sér, tækni og hönnun, og hafa frá upphafi verið framleiddar í litlum bæ, Struer. Fyrirtækið hefur verið til frá árinu 1923 og hefur enn þann dag í dag sömu markmið og í upp- hafi, að nota sér tæknina sem til er til að búa til vönduð tæki sem passa inn í fallega hönnun. Hönnunin er aðalatriðið og fyrsta stigið en svo koma verkfræð- ingarnir og finna leið til að koma fyrir því sem þarf til að tækið virtó, hvort sem það er hljómtæki eða annað. Það hefur alla tíð verið efst í huga B&O að tækin séu falleg og endingagóð, sýnileg inni á heimilum og það hefur tekist mæta vel. Þeim sem finnst tæki frá okkur fallegt í dag, finnst það líka eftir 10 ár eða 20.“ Aður en Óskar hóf rekstur fyrirtækis- ins var hann í ferðageiranum og hafði verið í fjölda ára. Hann vann fyrir íslenska ferðaskrifstofu í Danmörku og Svíþjóð samhliða skólanum þar sem hann stund- aði nám í markaðsfræði og hagfræði. Hann segir árin í Danmörku hafi verið góð og þar mótast hugmyndin um að fara út í eigin rekstur þegar heim væri komið. Þegar svo spurningin um áhugamálin kemur upp, vandast málið nokkuð. „Þegar maður er í eigin rekstri er lítill tími fyrir áhugamál," segir Óskar en bætir þvi við að hefði hann nægan tíma, myndi hann sjálfsagt fara í golf. „Eg spilaði golf á meðan ég var úti í Danmörku en hef engan tíma haft til þess síðan,“ segir hann. „Það heillar mig þó alltaf og mig dreymir um að hafa nægan tíma til að sinna því og á sjálfsagt eftir að finna þann tíma að lokum þó að ég sjái ekki fram á það í augnablitónu. Annars hef ég gaman af því að lesa og Arnaldur Indriðason er í alveg sérstöku uppáhaldi hjá mér. Þar fyrir utan fer tíminn í flölskylduna, eiginkonuna, Auði Pálmadóttur og dæturnar tvær sem eru 8 og 15 ára og við reynum að sinna því að vera fjölskylda og eyða tíma saman.“B!] 89

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.