Frjáls verslun - 01.07.2004, Page 9
Launavernd
EF TEKJUR LÆKKA SKYWDILEGA ER ÞAÐ JAFIM
ERFITT UIÐFANGS FYRIR ÞÁ SEM HAFA LÁGAR
TEKJUR OG FYRIR ÞÁ SEM HAFA HÁAR TEKJUR.
ÞAR KEMUR LAUNAUERNDIN INN.
Launavernd er ný tegund launareiknings sem
Landsbankinn kynnti nýlega og byggir á þeirri
reynslu sem bankinn hefur af fjármálum heimil-
anna í gegnum tíðina. „Fólk hefur tekið því
fegins hendi að láta bankann sjá um að dreifa
heildargreiðslubyrði fjölskyldunnar yfir árið í
jafnar mánaðarlegar greiðslur. Ef mánaðarlaun
falla niður af einhverjum ástæðum getur komið
fljótt til alvarlegra vandræða. Tekjuupphæðin
sem slfk virðist ekki skipta öllu máli heldur
vegur skyndilegur launasamdráttur þyngst. Ef
laun lækka skyndilega er það jafnerfitt viðfangs
fyrir þá sem hafa lág laun og fyrir þá sem hafa
há laun. Þar kemur Launaverndin inn," segir
Hermann og leggur áherslu á að með Launa-
vernd sé ekki einungis verið að vernda fjöl-
skylduna heldur einnig safna í viðbótarlífeyris-
sparnað til efri áranna. Slíkt er ný hugsun í
íslenskri bankaþjónustu.
„Hugsunin i Launavernd er sú að tryggja
fjölskyldum áframhaldandi mánaðarlegar
greiðslur til framfærslu komi til fráfalls eða
alvarlegs sjúkdóms. Fái viðskiptavinur alvar-
legan sjúkdóm fær hann mánaðarlega 70%
launa sinna í tvö ár. Við andlát er erfingjum
greitt mánaðarlega 70% af launum viðskipta-
vinar í 7 ár. Þannig tryggir Launaverndin að
fjölskyldur geti haldið áfram að standa skil á
mánaðarlegum afborgunum þrátt fyrir breyt-
ingar á högum. Til viðbótar er svo greiddur út
uppsafnaður lífeyrissparnaður við 60 ára aldur
eða síðar og þannig aukast tekjurnar á þeim
tíma þegar flestir vilja hætta að vinna."
Hærri ráðstöfunartekjur í dag
„Hingað til hafa landsmenn reynt að tryggja
fjárhag fjölskyldunnar með því að kaupa trygg-
ingu fyrir einni upphæð með tiltölulega háu ið-
gjaldi sem hækkar stig af stigi með tímanum.
Með því öðlast menn í raun falskt öryggi því
slíkar ráðstafanir eru í flestum tilfellum ófull-
nægjandi ef upp koma óvænt áföll. Það er
nefnilega ekki alltaf samhengi á milli trygginga-
fjárhæðarinnar og þeirra lífsgæða sem menn
vilja viðhalda eða þess tíma sem menn þurfa til
að aðlagast breyttum forsendum. Með sam-
þættingu launareiknings, lífeyrissparnaðar og
persónutrygginga hefur okkur tekist að setja
saman launavernd sem fjölskyldan getur nýtt
sér án þess að skerða tekjur sfnar svo nokkru
nemi. Fyrir launavernd greiðir viðskiptavinurinn
lágt mánaðargjald sem tekur mið af launum og
aldri og hækkar ekki yfir samningstímann. Að
öðru leyti er launaverndin fjármögnuð í gegnum
I ífeyrissparnaðinn. “
Landsbankinn
Banki allra landsmanna
SÍMI: 410 4000 ‘ www.landsbanki.is
Áuinningur fyrir
þjóðfélagið í heild
Hermann segir að Landsbankinn sjái sér
hag í að bjóða Launavernd m.a. til þess að
minnka áhættu á vanskilum og útlánatöp-
um. „Við högnumst nefnilega ekki á fjár-
hagslegum erfiðleikum fólks eins og margir
halda, heldur töpum við á þeim. Við sjáum
það á fólki sem lendir í greiðsluerfiðleikum
að mjög margir eru ótryggðir og geta ekki
mætt mánaðarlegum útgjöldum þegar áföll
dynja yfir. Fólk hefur hreinlega ekki efni á
sjúkdóma- eða líftryggingum eða viðbótarlíf-
eyrissparnaði. Þess vegna er mikilvægt að
geta tryggt sig og fjölskylduna án þess að
minnka ráðstöfunartekjurnar. Boginn er oft
hátt spenntur hjá fjölskyldum og fjárhags-
erfiðleikar heimila sem lent hafa í áföllum
vegna fráfalls eða veikinda eru ein af erfið-
ustu málum sem starfsmenn bankans þurfa
að koma nálægt. Við teljum einfaldlega að
með Launavernd séum við með eitthvað
fyrir alla. Viðskiptavinirnir, bankinn og þjóð-
félagið í heild njóta ávinningsins. Lands-
bankinn vill að fólk njótl fjárhagslegs örygg-
is í dag á meðan það byggir upp fjárhags-
legt öryggi fyrir eftirlaunaaldurinn.“B3
9