Frjáls verslun - 01.07.2004, Blaðsíða 19
Eftir rúm þrettán ár sem forsætisráðherra er Davíð orðinn persónulegur vinur margra helstu stjórnmálaleiðtoga heimsins.
Þetta kom sterkt í Ijós er fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, Bill Clinton, og kona hans Hillary, heimsóttu Davíð og Ástríði á
dögunum. Clinton var forseti frá 1992 til 2000. FV mynd: Geir Ólafsson
hans er það að segja að óskiljanlegt er hvers vegna svo „kratísk
lög“ sem ijölmiðlalögin voru (um takmarkað eignarhald á flöl-
miðlum) höfðu ekki fulltingi vinstri aflanna á þingi. Enn fær
enginn skilið hvernig Vinstri grænir og Samfylking gátu verið á
móti lögunum. Raunar sögðust flestir vera á móti aðferðafræð-
inni - bráðlætinu við að setja lögin - fremur en lögunum sjálfum!!
Það þarf ekki mörg orð um það að viðskiptalífið er allt
annað og kröftugra núna en fyrir rúmum þrettán árum
þegar fyrsta ríkisstjórn Davíðs Oddssonar tók við völdum
30. apríl 1991, hin svonefnda Viðeyjarstjórn,
ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks.
Þeir Davíð og Jón Baldvin náðu samkomulagi
um þessa stjórn á aðeins tveimur dögum úti í
Viðey þetta vor.
Þegar Viðeyjarstjórnin tók við völdum héldu
allir að hagsveiflan væri í botni. Það reyndist
rangt. Fyrstu árin barðist stjórnin við efnahags-
legan samdrátt vegna mun verra ástands fiskistofna en gert
var ráð fyrir, og lengri efnahagssamdráttar í heiminum.
Eftir hosningarnar 1995 Það kom ýmsum á óvart þegar Davíð
söðlaði um eftir kosningarnar vorið 1995 og hóf stjórnar-
samstarf við Framsóknarflokkinn. Þetta samstarf hefur staðið
yfir óslitið í rúm níu ár. Viðeyjarstjórnin hélt velli í kosningum,
en Davíð taldi að sá meirihluti væri of naumur; að ekki væri
hægt að aka áfram án varadekkja, eins og hann orðaði það. Það
að sitja samfellt í starfi
forsætisráðherra í rúm 13 ár,
eða í 4.888 daga, er ein-
stakur árangur. Þetta er met
í sögu íslenskra stjórnmála
og með því allra mesta sem
þekkist í evrópskri stjórn-
málasögu. HH
Helsti galli Davíðs sem stjórn-
málamanns er að flestra mati
sá sami og margra annarra
leiðtoga; hann hefur verið
býsna ráðríkur stjórnandi.
Menn finna fyrir valdi hans.
19