Frjáls verslun - 01.07.2004, Side 20
FORSÍDUGREIN: FDRSÆTISRÁÐHERRASKIPTIN
Einkunnagjöf ■
Fyrsta ríkisstjórn Davíðs var ríkissljórn Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks, Viðeyjarstjórnin,
sem tók við völdum 30. apríl árið 1991. Þar voru Davíð og Jón Baldvin í eldlínunni. Eftir
kosningarnar árið 1995 söðlaði Davíð um, biðlaði til Halldórs Ásgrímssonar, og Sjálfstæðis-
flokkurinn hóf samstarf við Framsóknarflokkinn. Það samstarf hefur staðið yfir í rúm 9 ár.
Davíð Oddsson. Halldór Ásgrímsson. Jón Baldvin Hannibalsson.
FRAMAR VONUM. Þjóðarkakan hefur stækkað um 40% frá
því 1991. Fyrsta ríkisstjórn Davíðs, Viðeyjarsljórnin, stjórn Sjálf-
stæðisflokks og Alþýðuflokks, tók við völdum í kreppu; þegar
hagsveiflan var í botni. Á brattann var að sækja fyrstu árin vegna
verra ástands fiskistofna en gert var ráð fyrir, og lengri efna-
hagssamdráttar í heiminum. Síðan hefur hagvöxtur aukist jafnt
og þétt; bæði á Islandi og erlendis.
STÖÐUGLEIKI
BYLTING FRÁ ÞVÍ SEM ÁÐIJR ÞEKKTIST. Áður ein-
kenndist atvinnulífið oft af hatrömmum vinnudeilum og óða-
verðbólgu vegna launahækkana sem engin innistæða var
fyrir. Þjóðarsáttin var gerð í tíð ríkisstjórnar Steingríms
Hermannssonar 1990. Lítið hefur borið á hörðum vinnu-
deilum í forsætisráðherratíð Davíðs og stjórnir hans hafa
„komið að“ og „liðkað fyrir“ ýmsum kjarasamningum vinnu-
veitenda og launþega. Það er annar hugsunarháttur en áður
við samningaborðið.
LÍTIL UERÐBÓLGA
í FÍNUM MÁLUM. Rikisstjórn Steingríms Hermannssonar
náði verðbólgunni niður fyrir tveggja stafa tölu um mitt árið
1990 með hinum margfrægu þjóðarsáttarsamningum. Undir
lok þess árs sáust svo lágar verðbólgutölur að fólk hafði aldrei
kynnst því áður. Um mitt ár 1991, þegar Viðeyjarstjórn
Davíðs tók við, kom nokkurra mánaða verðbólguskot. Verð-
bólga hefur almennt verið lítil í tíð stjórna Davíðs, einna helst
að hún hafi látið á sér kræla sumarið 2001 og í byrjun ársins
2002 þegar nokkur umræða varð um „rauða strikið" og ýmis
20