Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2004, Side 20

Frjáls verslun - 01.07.2004, Side 20
FORSÍDUGREIN: FDRSÆTISRÁÐHERRASKIPTIN Einkunnagjöf ■ Fyrsta ríkisstjórn Davíðs var ríkissljórn Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks, Viðeyjarstjórnin, sem tók við völdum 30. apríl árið 1991. Þar voru Davíð og Jón Baldvin í eldlínunni. Eftir kosningarnar árið 1995 söðlaði Davíð um, biðlaði til Halldórs Ásgrímssonar, og Sjálfstæðis- flokkurinn hóf samstarf við Framsóknarflokkinn. Það samstarf hefur staðið yfir í rúm 9 ár. Davíð Oddsson. Halldór Ásgrímsson. Jón Baldvin Hannibalsson. FRAMAR VONUM. Þjóðarkakan hefur stækkað um 40% frá því 1991. Fyrsta ríkisstjórn Davíðs, Viðeyjarsljórnin, stjórn Sjálf- stæðisflokks og Alþýðuflokks, tók við völdum í kreppu; þegar hagsveiflan var í botni. Á brattann var að sækja fyrstu árin vegna verra ástands fiskistofna en gert var ráð fyrir, og lengri efna- hagssamdráttar í heiminum. Síðan hefur hagvöxtur aukist jafnt og þétt; bæði á Islandi og erlendis. STÖÐUGLEIKI BYLTING FRÁ ÞVÍ SEM ÁÐIJR ÞEKKTIST. Áður ein- kenndist atvinnulífið oft af hatrömmum vinnudeilum og óða- verðbólgu vegna launahækkana sem engin innistæða var fyrir. Þjóðarsáttin var gerð í tíð ríkisstjórnar Steingríms Hermannssonar 1990. Lítið hefur borið á hörðum vinnu- deilum í forsætisráðherratíð Davíðs og stjórnir hans hafa „komið að“ og „liðkað fyrir“ ýmsum kjarasamningum vinnu- veitenda og launþega. Það er annar hugsunarháttur en áður við samningaborðið. LÍTIL UERÐBÓLGA í FÍNUM MÁLUM. Rikisstjórn Steingríms Hermannssonar náði verðbólgunni niður fyrir tveggja stafa tölu um mitt árið 1990 með hinum margfrægu þjóðarsáttarsamningum. Undir lok þess árs sáust svo lágar verðbólgutölur að fólk hafði aldrei kynnst því áður. Um mitt ár 1991, þegar Viðeyjarstjórn Davíðs tók við, kom nokkurra mánaða verðbólguskot. Verð- bólga hefur almennt verið lítil í tíð stjórna Davíðs, einna helst að hún hafi látið á sér kræla sumarið 2001 og í byrjun ársins 2002 þegar nokkur umræða varð um „rauða strikið" og ýmis 20

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.