Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2004, Blaðsíða 45

Frjáls verslun - 01.07.2004, Blaðsíða 45
VIÐTAL ROBERT MELAX - Hvað er það sem Litháar hafa fram yfir Eistlendinga og Letta? .Ástæðan fyrir því að það er ekki eins spennandi að vera með útrás inn í Eistland og Lettland er sú að í Eistlandi er þessi þróun í keðjumyndun og samþjöppun miklu lengra komin og mjög langt í heildsölunni. í Lettlandi er þessi þróun styttra komin. Þar er hinsvegar kvóti á apótekum. Til að opna nýtt apótek verður að loka apóteki annars staðar. Það þýðir að þau kauptækifæri sem voru fyrir hendi voru ekki það spennandi að við vildum grípa þau.“ Skífan skemmtileg „forretning“ sú frétt vaktí atiiygii í sumar að Róbert Melax væri búinn að kaupa Skífuna í samstarfi við Sverri Berg Steinarsson, annan tveggja eigenda Noa Noa og Next í Kringlunni. Róbert hafði þá nýlega selt síðasta hlut sinn í Lyfju og var farinn að leita sér að nýjum Jjárfestingatækifær- um. Þá kom nafn Skífunnar upp á borðið enda bæði stórt, skemmtílegt og spennandi fyrirtæki. Róbert brosir þegar hann ritjar upp að 95 ára amma konunnar sinnar hafi sagt þegar hún fékk fréttirnar: „Er þetta ekki miklu skemmtílegri forretning en lyfin?“ „I Skífunni er hraðinn miklu meiri og hlutírnir eru ekki eins formfastír og í lytjunum. Lyfin eru nánast hálfopinber geiri þar sem yfirvöld ákveða álagningu o.s.frv. í Skífunni er maður kominn á hinn endann. í afþreyingunni er alltaf eitthvað nýtt, spennandi og skemmtílegt að gerast." Skífan er fyrirtæki sem stendur á mörgum fótum og margs konar mismunandi rekstur innan fyrirtækisins, t.d. bíórekstur, tónlistarútgáfa, rekstur hljóðvera, heildsala á tónlist, tölvu- leikjum og DVD. I verslunarhlutanum eru Skífuverslanirnar, BT-búðirnar, Office 1, Sony Center og Hljóðfærahúsið. Veltan nemur um 5 milljörðum á þessu ári. Sverrir er forstjóri Skíf- unnar og segir Róbert að þeir komi báðir úr verslunargeir- anum. „Við sjáum töluvert mikið af tækifærum í því að gera betur. Skífan er frá fornu fari heildsölufyrirtæki með heildsölu- menningu. BT stendur á hinn bóginn traustum fótum á sviði lágvöruverðsverslunar enda hugmyndin sótt tíl Best Bay í Bandaríkjunum. Eftir sameininguna við BT um síðustu áramót felast tveir þriðju hlutar starfseminnar í smásölu og þar er mikið af spennandi tækifærum tíl að gera betur. Office 1 er t.d. vöru- merki sem ég tel að hafi mikla framtíð fyrir sér. Markaðshlut- deildin er ekki mikil og því mikil vaxtartæki- færi. Innkaupa- Á kerfi Office 1 gerir okkur mögulegt að kaupa inn mikinn tjölda vörutítla á mjög hag- stæðu verði frá einum birgi. Office 1 hefur skapað sér sterka stöðu á skólamarkaði og nú á að blása ^ til sóknar á fyrirtækjamarkaði." Litháen í Litháen búa 3,4 milljónir manna. Þar af eru 9 prósent Rússar og 8 prósent Pólverjar. Stærstu borgirnar eru Vilnius, þar sem búa 600 þúsund manns, og Kaunas með 500 þúsund íbúa. Stærsta smásölukeðjan er Vilnius Prekyba sem er með nokkur vörumerki, þar á meðal stærstu lyfjakeðjuna. Hún hefur líklega yfir 20% markaðshlutdeild. Margir Þjóðverjar og Norðurlandabúar eru að hasla sér völl í apótekarekstri Litháen. - Hvernig sérðu jyrir þérframtíð Skíjunnar? „Fyrirtækið er tvöfalt stærra en það var í ársbyijun fyrir sam- runann við BT. Fyrstu verkefni stjórnenda eru að gera þetta að einu fyrirtæki og nýta þau hagræðingar- og sóknartæki- færi sem af þessum samruna skapast. Hagræðingartækifærin eru mörg en það stærsta er sennilega fólgið í að sameina vörudreifingu fyrirtækisins undir einn hatt. Upplýsingakerfi félagsins er í tveimur kerfum og augljóslega hagræði í að flytja öll umsvifin í eitt kerfi. Fyrirtækið hefur verið undir mikilli pressu með peninga um langt skeið. Skífan var inni í Norðurljósum þar sem alltaf vantaði peninga og þeir teknir í annað svo að það var lítið hægt að nýta tækifæri sem gáfust tíl nýrra hluta. Sama gilti um BT sem var inni í Tæknivali. Við ætlum því að koma með ýmsar nýjungar sem ekki hefur verið hægt að nýta áður. Hins vegar eru ekki fyrirhugaðar neinar stórar breytingar á rekstri Skifunnar.“ Klárlega langtímaverhefni Róbert segir að þegar búið verði að ná utan um reksturinn hér á íslandi verði spennandi að skoða möguleikann á því að flytja til útlanda þá þekkingu sem er innan fyrirtækisins. Þar séu nokkur tækifæri sem gaman væri að skoða, t.d. útflutning á íslenskri tónlist, rekstur kvik- myndahúsa eða eitthvað af þeim vörumerkjum sem fyrir- tækið er með í smásölunni. Ekki komi tíl greina að fara í út- rás með Skífuna í heild en skoða rnegi ákveðna rekstrarþætti sem fyrirmynd á erlendri grundu. Þetta gerist örugglega ekki fyrr en eftir eitt tíl tvö ár. Markaðurinn í Austur-Evrópu sé mjög spennandi í því sambandi, sérstaklega fyrir verslunar- og kvikmyndahúsarekstur enda komin ákveðin reynsla af því markaðssvæði innan fyrirtækisins í gegnum Róbert og Farma. „Markmiðið þessa mánuðina er fyrst og fremst að ná utan um reksturinn. Við erum nýkomnir að þessu og okkar markmið er bara að gera reksturinn skilvirkari. Sameining átti sér stað í byrjun þessa árs og slíkt tekur alltaf talsverðan tíma þannig að ég ætla okkur alveg ár til þess að klára þessa sameiningu og gera fyrirtækið straumlínulagað. í við- skiptum gerast hlutirnir hratt. Við komum að sjálfsögðu til með að vera með augun opin og grípa þau tækifæri sem gefast. Þegar maður er að reka fyrirtæki þá leitast maður við að stækka það. Það er annaðhvort að vera í áframgír eða bakkgír, ekkert þar á milli. Við erum í áframgírnum.“ - Eru kauþin á Skíf- unni nokkurs konar millileik- ur? ^„Nei. Þetta er alveg klárlega lang- tímaverkefni og enginn millileikur. Það liggur ljóst fyrir.“S!i 45
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.